blaðið - 01.11.2005, Síða 4
4 I INNLENDAR FRÉTTIR
ÞRIÐJUDAGUR 1. NÓVEMBER 2005 blaðiö
Kristjíín Giiöimindsson, trcsniiður <>}> varabor}>arl'iiIltrúi
cr formaöur Vcrkalýösráðs Sjállstæöisflokksins -
Hann cr í skipnlagsráöi, oj> franikvæimlaráöi Kcykjavíkurborgar
límmt^Tætið
•f - •« •
Sýnum styrk sjálístæðismanna og tökum jtátt
í prófkjörinu - taktu al’stöðu og vertu með
Ríkissjóður:
Lánshæfi
staðfest
Alþjóðlega matsfyrirtækíð
Standard & Poor’s greindi firá því
í gær að það staðfesti lánshæfi-
seinkunnir ríkissjóðs á langtíma-
skuldbindingum f erlendri mynt
AA- og AA+ fyrir langtímaskuld-
bindingar í íslenskum krónum.
Um leið staðfesti fyrirtækið
lánshæfiseinkunnina A-i+ fyrir
skammtímaskuldbindingar í
erlendri mynt og íslenskum
krónum. Fyrirtækið hefur
ennffemur staðfest lánshæfis-
einkunn ríkissjóðs í erlendri
mynt og íslenskum krónum. í
tilkynningu ffá Seðlabanka
Islands í gær segir að horfur um
lánshæfismatið séu stöðugar.
Afbrot:
Lélegur þjófur
Um helgina var brotist inn
í verslunina Krílið á ísafirði.
Þegar lögregla kom á staðinn
var þjófurinn á bak og burt en
ekki reyndist þó erfitt að hafa
hendur í hári hans. Um nóttina
hafði nefnilega snjóað á ísafirði
og þurfti lögreglan ekki að gera
annað en að rekja fótspor þjófsins
að húsi þar sem hann reyndist
gestkomandi. Frá þessu er sagt á
heimasíðu Bæjarins besta á Isa-
firði. Þar kemur ennfremur ffam
að maðurinn hafi iðrast gjörða
sinna og gengið skilmerkilega ffá
sínum málum þegar hann vakn-
aði - líklega eins gott því miðað
við ffammistöðuna á hann vart
mikla framtíð í hinum harða
heimi glæpamennskunnar.
Slysahœttur leynast víða
Rúllustigar geta valdið
alvarlegum meiðslum
Rúllustigar geta reynst hættulegir
börnum og fjölmörg dæmi eru um
að þeir hafi valdið því að börn hafa
skaðast illa á fæti að sögn Herdísar L.
Storgaard, verkefnisstjóra Árverkni-
barnaslysavarna hjá Lýðheilsustöð-
inni. Ónógum merkingar og ósam-
ræmi í opinberum reglugerðum er
kennt um.
Lán að ekki fór verr
I síðustu viku lenti sex ára gamall
drengur f því að það klipptist fram-
an af öðru stígvéli hans þegar hann
var að stíga af rúllustiga í Smára-
lindinni. Það sem vildi honum til
happs var að stígvélin voru vel við
vöxt þannig að tærnar sluppu. Sam-
kvæmt Herdísi L. Storgaard, verkefn-
isstjóra Árverkni-barnaslysavarna,
er þetta ekki í fyrsta skipti sem
svona slys á sér stað og því miður
séu tilfelli þar sem börn hafa skað-
ast mjög illa á tánum. Herdís segir
vandamálið liggja í því að ekki sé
samræmi milli merkinga og að fólk
fái heldur ekki nægar upplýsingar.
„Vinnueftirlitið sér um eftirlit á þess-
um stigum en það sem mér finnst
slæmt við þetta mál er að það eru
ekki samræmdar kröfur um merk-
ingar á stigunum þ.e. hvar þú mátt
ekki standa. í Kringlunni eru gular
rendur meðfram til hliðar og fram-
an á þrepinu sem þýðir að þarna
mátt þú ekki standa. En hvort að al-
menningur viti það veit ég ekki, því
það vantar leiðbeiningar sem segja
fólki hvað þessi gulu strik þýða.“ Her-
dís segir að þó að börn séu almennt
Herdís með stígvélið þar sem sjá má hvernig táin hefur klippst af
í mestri hættu sé fullorðnir það líka
þannig að það sé mikilvægt að fólk
sé meðvitað um þennan vanda.
Evrópustöðlum fylgt
Magnús Guðmundsson hjá Vinnu-
eftirlitinu segir ekki neinar sérstak-
ar reglur vera í gildi varðandi merk-
ingu rúllustiga á íslandi en hins
vegar sé stuðst við Evrópustaðla
sem lúta m.a. að öryggismálum og
stigarnir athugaðir með reglulegum
hætti. „Það eru reglur sem gilda sem
heita reglur um vélar og tæknilegan
búnað og þetta eru Evrópureglur.
Síðan eru stigarnir framleiddir og út-
búnir samkvæmt sérstökum staðli
sem fellur undir þessar reglur. Þar
koma fram merkingar og stigarn-
ir eiga að vera merktir samkvæmt
þessum staðli. Að öðru leyti eru eng-
ar sérreglur,“ segir Magnús. Hann
segir að ekki sé á döfinni af hálfu
Vinnueftirlitsins að krefjast þess að
rúllustigar séu merktir sérstaklega.
„Það er þekkt að börn hafi fest stígvél
og aðrar tegundir af gúmmískóm
vegna viðnáms efnisins við hreyfan-
lega hluti. Við höfum þó aðeins fylgt
þessari línu sem er gefin út sam-
kvæmt staðlinum og ekki farið út í
það að gera meiri kröfur.“ ■
| myndunum
Glataðar
minningar
koma ekki aftur
Láttu framkalla
stafrœnu myndirnar
Þú hefur marga möguleí
...þú sendir myndirnar á ncijrt
... þú kemui rncð minniskorlið eða
j] myndavólina og við aðsloðum þig
við að skoða og velja myndirnar
... þú kemur með myndlrhar á geisladisk!
..þú kemur með myndlrnar á USB minnislykli
...hjá okkur gefur þú skoðað og valið
myndirnar þínar á snertiskjánum okkar
<\U»
Vtt°
Alfabakka 14 s. 557 4070
www.myndval.is
Gallup:
Sjálfstæðis-
flokkur með
yfirburði í
borginni
Sjálfstæðisflokkurinn fengi
hreinan meirihluta ef kosið
yrði til borgarstjórnar nú.
Hann mælist með 57% fylgi.
Þetta kom fram í fréttum
Ríkisútvarpsins í gær. Gallup
framkvæmdi könnun á fýlgi
flokkanna í borginni og
eru sjálfstæðismenn með
mikla yfirburði samkvæmt
henni. Samfylkingin fengi
25% atkvæða, vinstri grænir
12%, Framsókn 4% og
frjálslyndir 2%. Þess ber
að geta að 38% aðspurðra
neituðu að svara og tæp 6%
sögðust ekki ætla að kjósa
eða skila auðu. Á landsvísu
hefur fylgi Sjálfstæðisflokks
hins vegar dalað um 2,6%
frá fyrri könnun en vinstri
grænir bæta við sig sömu
tölu. 1 Alþingiskosningum
fengi D-listi því 41%, S-listi
tæp 28%, B-listi rúm 10%
og frjálslyndir tæp 4%.
Vinstri-grœnir:
Mótmæla
miðstýringu
Vinstri-grænir ályktuðu á lands-
fundi sínum gegn samræmdum
stúdentsprófum í ff amhaldsskóla.
í tilkynningu ffá flokknum segir
að samræmd próf geri námið
einsleitara aukþess sem aðeins
sé prófað í nokkrum greinum,
sem fái þá aukið vægi á kostnað
annarra. „Þetta mun njörva skól-
ana niður í sama far og reynslan
sýnir að brátt gæti kennslan
farið að snúast um prófin en ekki
öfugt,“ segir ennffemur. Flokkur-
inn krefst þess því að horfið verði
af þeirri braut miðstýringar og
samræmingaráráttu sem hann
segir hafa einkennt mennta-
stefnu núverandi ríkisstjórnar.
66°Norður
Opnar verslun
í New York
í dag opnaði fyrirtækið
66°Norður nýja verslun í
SoHo-hverfinu í New York. 1
tilkynningu frá fyrirtækinu
segir að ekki sé um eiginlega
verslun að ræða, heldur nokk-
urs konar fslands-gallerí eða
tveggja mánaða „gjörningaverk-
smiðju“, þar sem land og þjóð
verður kynnt með margvísleg-
um hætti. Gert er ráð fyrir að
boðið verði upp á tónlistar-
viðburði, ljósmyndasýningar
og fleira í versluninni þann
tíma sem hún verður opin.
„Myndum af íslenskri
náttúru verður varpað á stór
sýningartjöld um alla verslun-
ina og á veggjum verða sýnd
myndbönd af hvers konar
útivist sem stunduð er hér á
landi allan ársins hring,“ segir
einnig í tilkynningunni.