blaðið - 01.11.2005, Page 6
6 I INAJLENDAR FRÉTTIR
ÞRIÐJUDAGUR 1. NÓVEMBER 2005 blaðiö
Fiskverð:
Lækkaði um
7% milli vikna
Geislavarnir ríkisins:
Leita að geislavirkum gæsum
Á fiskmörkuðum landsins
var meðalverð rétt rúmar 109
krónur á kílóið í síðustu viku.
Verðið hafði lækkað um átta
krónur á hvert kíló frá vikunni
á undan sem er um 7% lækkun.
Á vef Fiskifrétta segir að lækk-
unin stafi ekki af breytingum
á framboði því að svo til sama
magn var í Soði, eða 2.223 tonn
í síðustu viku og 2.224 tonn
í vikunni á undan. Framboð
er sem fyrr langmest af ýsu
og þorsld en gott framboð var
einnig af gullkarfa. Tryggvi
Leifur Óttarsson, framkvæmda-
stjóri Fiskmarkaðs íslands,
sagðist í samtaU við Blaðið
eldki kunna neinar einhlítar
skýringar á lækkuninni.
Veiðimenn hafa verið beðnir um aðgefa Geislavörnum ríkisins þœrgœsirsem þeirgeta séð
af Tilgangurinn er að kanna magn geislavirkra efna ífuglunum.
FL Group og Kaupþing:
Útrás til Asíu
FL Group og Kaupþing hafa
stofnað með sér eignarhalds-
félagið IceSing, en það keypti
á dögunum átta ára gamla
Boeing 747-400F fraktflugvél
af Singapore Airlines Cargo,
en það félag mun leigja
hana áfram næstu 10 árin.
Kaupin voru að hluta
fjármögnuð af Arab Banking
Corporation í Dubai og nam
lánið um fjórum milljörðum ís-
lenskra króna. IceSing var stofn-
að sérstaklega til þessa verkefn-
is, en gefið hefur verið til kynna
að fleiri bankastofnunum verði
gefinn kostur á aðkomu að
þessu fjárfestingarverkefni.
„Þetta er hluti af vöktunarmæl-
ingum sem við erum með í gangi
og hafa staðið yfir síðan 1989. Þar
mælum við sýni úr ýmsum hlutum í
náttúrunni eins til dæmis sjó, þangi,
fiski og lambakjöti,“ segir Kjartan
Guðnason, rannsóknarmaður hjá
Geislavörnum ríkisins. „Af og til
mælum við hitt og þetta úr hinum
ýmsu fæðuflokkum til að stækka
gagnagrunninn og nú er komið
að gæsinni." Að sögn Kjartans er
ástandið á Islandi hvað þetta varðar
mjög gott.
„Það er afskaplega lítið af geisla-
virkum efnum í umhverfinu í
kringum okkur. Málið er bara það
að við eigum svo góð mælitæki að
við mælum þau samt. Þess vegna er
fróðlegt fyrir okkur að sjá hvernig
þau hegða sér svo við getum vitað
betur hverju við getum átt von á ef
eitthvað gerist og hvernig vistfræði-
lega ferlið er. Við höfum tekið eftir
því að geislun mælist meiri í gæs en
til dæmis lunda. Það er hins vegar al-
veg eðlilegt þar sem lundinn lifir á
sílum en í þeim mælist engin geisla-
virkni. Gæsin er hins vegar grasbít-
ur. Sú mengun sem við höfum mælt
í gæs er þó langt innan við öll örygg-
ismörk. Til samanburðar höfum við
mælt geislun í gæs upp á 5,6 Bq/kg
en í milliríkjaviðskiptum með mat-
væli er miðað við að allt sé öruggt
ef magnið er undir 1.000 Bq/kg. Við
viljum hins vegar kanna þetta betur
og fá fleiri sýni. Þannig að þetta er
mest gert til að svala fróðleiksfýsn
okkar og svo við getum kortlagt
þetta betur," segir Kjartan.
Geislavirkni af völdum
tilraunasprenginga
Sú geislavirkni sem á annað borð
mælist hér á landi er af völdum úr-
fellis frá tilraunum með kjarnavopn
sem framkvæmdar voru á árun-
um 1959-1963. „Þá voru menn að
sprengja sprengjur víða um heim
og það má segja að geislavirk efni
hafi dreifst jafnt um allt norðurhvel
jarðar. Mest féll strax til jarðar en
helmingunartíminn er svo langur
á þessum efnum að þau fyrirfinnast
ennþá í náttúrunni þrátt fyrir að ára-
tugir séu síðan tilraunum var hætt.
Þessi efni eru því hér af völdum
þessa, en ekki til dæmis frá Cherno-
byl slysinu. Hér á landi mælist ekki
mengun frá því. Við höfum verið að
eltast við að mæla mengun í sjó frá
Sellafield en ekki fundið mikið enn.
Við búumst þó við því að við gætum
verið að mæla aukningu frá því hvað
á hverju. Losun efna jókst mikið í
Sellafield árið 1999 og það er talið að
það taki um tíu ár fyrir mengunina
að berast hingað til lands.“ ■
Félagsmálaráðherra:
Reglugerð um daggæslu í heimahúsum
Ný reglugerð hefur verið sett um
daggæslu barna í heimahúsum.
Með reglugerðinni hefur umsjón
og eftirlit með starfsemi af þessu
tagi verið eflt til muna í því skyni að
efla öryggi og aðbúnað barna. I drög-
um að reglugerðinni var lagt til að
hámarkstala barna hjá hverju dag-
foreldri yrði lækkuð úr 5 börnum í
4. Um þetta náðist hins vegar ekki
samstaða í nefndinni, meðal annars
vegna þess að ekki tókst að tryggja
fjármagn til frekari niðurgreiðsíu
sveitarfélaga í þjónustunni, sem
komið hefði í veg fyrir tekjuskerð-
ingu dagforeldra vegna breytingar-
innar. Sveitarfélög voru hvött til að
leggja fram umsagnir um málið og
brugðust þau vel við því. í tilkynn-
ingu frá ráðuneytinu segir að ein
mikilvægasta breytingin frá eldri
reglugerð sé aukið og bætt eftirlit.
Nú er kveðið á um a.m.k. þrjár óboð-
aðar heimsóknir á ári auk tilfallandi
eftirlits þegar aðstæður krefjast.
Hetjur óskast:
Bakkelsi í boði fyrir
rétta aðila
Blóðbankinn hefur hafið herferð í
samstarfi við Og Vodafone til þess
að fjölga reglulegum blóðgjöfum
undir slagorðinu „Hetjur óskast“. Til-
gangurinn er að gera bankann betur
í stakk búinn til þess að bregðast við
alvarlegum slysum, náttúruhamför-
um og neyðarástandi. Það eru um
9.000 manns hér á landi sem gefa
blóð daglega og telur Blóðbankinn
sig þurfa um 70 blóðgjafa á dag til
þess að geta sinnt sínu hlutverki. í
herferðinni eru reglulegir blóðgjaf-
ar hvattir til þess að koma með vin,
vinnufélaga eða ættingja til þess að
fjölga megi í blóðgjafahópnum.
rétt dagsins á kr.500-
Réttur dagsins kr.990-
Pljótlegt að koma við og taka aeð sér rétti
Græna línan, Bæjarhrauni 4, S:565-2075
*•'. SYNCRO
Heyrnartœki
með gervigreind
• Afgreiðslutími innan
þriggja vikna
• Bjóðum margar tegundir
af sjálfvirkum, stafrœnum
heyrnartœkjum
• Verðfrá 47.000-170.000 kr
fyrir eitt tœki
• Persónuleg og góð þjónusta
Akureyri - ísafirði - Egllsstööum
Heyrnurtœkni
Betri heyrn
•bœtt lífsgœði
www.heyrnartaekni.is
Glæsibær Álfheimum 74 104 Reykjavík • Tryggvabraut 22 600 Akureyri • sími: §68 6880
IMEC Símkerfi
sérsniðnar heildarlausnir fyrir fyrirtæki og heimili
Símstöð stækkanleg í símtæki og IP síma
Fjárfesting sem vex með þér...
INJEC
Infrontia
símtæki
NEC
Infrontia
símtæki
XN120 símstöð
i 3 hliðrænar bæjarlinur
Jk 2 x ISDN grunnt. 4 bæjarlínur
Tengi fyrir 16 símtæki,
stafræn eða hliðræn
8 stk. XN Vision slmtæki
með 22 hnöppum
XN120 slmstöð
3 hliðrænar bæjarllnur
4 x ISDN grunnt. 8 bæjarlínur
Tengi fyrir 16 símtæki,
stafræn eða hliðræn
12 stk. XN Vision slmtæki
með 22 hnöppum
ttTlJ
BOfllGÍO
&
Boðleið ehf. Hlíðasmára 8 201 Kópavogi
Sími 535 5200 Fax 535 5209 bodleid@bodleid.is
Kíktu á úrvalið á heimasíðunni vvw.faodleid.is