blaðið - 01.11.2005, Page 8
8 I ERLENDAR FRÉTTIR
ÞRIÐJUDAGUR 1. NÓVEMBER 2005 blaöiö
Reid vill að
Rove segi
af sér
Fallið frá refsiaögeröum
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna mun ekki beita Sýrlendinga efna-
hagslegum refsiaðgerðum vegna rannsóknarinnar á morðinu á
Rafiq Hariri.
ý komið
uxur.yi
LOFTUR MÁR SIGURÐSSON
Harry Reid, leiðtogi minnihluta
demókrata í öldungadeild
Bandaríkjaþings, hefur sagt að
Karl Rove, einn helsti ráðgjafi
George Bush, Bandaríkjaforseta,
eigi að segja af sér vegna þáttar
hans í afhjúpun leyniþjónustu-
manns. Á föstudag sagði Lewis
Libby, starfsmannastjóri Dick
Cheney, varaforseta, af sér í kjöl-
far ákæra fyrir þátt sinn í leka-
málinu svokallaða. Reid sagði
ennfremur að það hefðu verið
vonbrigði að Bush og Cheney
hefðu brugðist við ákærunni
með því að ljúka lofsorði á Lib-
by og lagði hann til að þeir ættu
frekar að biðjast afsökunar á
lekanum sem afhjúpaði Valerie
Plame, leynilegan starfsmann
bandarísku leyniþjónustunnar.
Alito tilnefndur hæstaréttardómari
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna sam-
þykkti í gær ályktun þar sem farið er
ffam á fulla samvinnu Sýrlendinga á
morðinu á Rafiq Hariri, fyrrverandi for-
sætisráðherra Líbanons. Öryggisráðið
lét af hótun um að beita Sýrland refsiað-
gerðum en Bandaríkjamenn, Bretar og
Frakkar höfðu reynt að fá allar fimm-
tán þjóðir ráðsins til að samþykkja slík-
ar aðgerðir. Samkvæmt þeirri ályktun
hefði með vísun í stofnskrá Sameinuðu
þjóðanna mátt beita landið efnahags-
legum refsiaðgerðum ef það sýndi ekki
fulla samvinnu. Kínverjar og Rússar
voru því mjög mótfallnir að minnst
væri á refsiaðgerðir á meðan rannsókn
á morðinu stæði enn yfir. Samkvæmt
nýja textanum er ekki lengur vísað í
stofnskrá Sameinuðu þjóðanna og að-
eins sagt að ef Sýrland sýni ekki fulla
samvinnu „muni öryggisráðið íhuga
ffekari aðgerðir efþörfkrefur." Einnig
féllust þær fimm þjóðir sem hafa neit-
unarvaíd í ráðinu á að hætta við að fara
fram á að Sýrlendingar höfnuðu öllum
stuðningi við hryðjuverkastarfsemi.
Grunaðir ífarbann
I lokadrögum ályktunarinnar er farið
ff am á Sýrlendingar hneppi í varðhald
Kofi Annan, aðalritari Sameinuðu þjóðanna, ræðir við Farouk al-Sharaa, utanríkisráð-
herra Sýrlands, fyrir atkvæðagreiðslu í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna í gær.
hvern þann sem rannsóknarnefnd
Sameinuðu þjóðanna hafa undir grun
um aðild að málinu. Ennfremur verða
sýrlensk stjórnvöld að leyfa rann-
sóknarmönnum að ákveða hvar og við
hvaða aðstæður hinir grunuðu y rðu y f-
irheyrðir. Samkvæmt ályktuninni má
einnig leggja hald á eignir grunaðra
og setja þá í farbann.
John Bolton, sendiherra Banda-
ríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum,
sagði fréttamönnum að utanríkisráð-
herrar Bandaríkjanna, Kína, Breta,
Frakka og Rússa hefðu komið sér
saman um breytingarnar í þeirri von
að ályktunin hlyti nánast einróma
samþykki í ráðinu. Þrátt fyrir breyt-
ingarnar segir hann að ályktunin sé
harðorð og muni án nokkurs vafa
senda skýr skilaboð. ■
Leiðtogi demókrata í öldungadeild
Bandaríkjaþings vill að Karl Rove
segi af sér út af lekamálinu svokall-
aða.
George Bush kynnir tilnefningu sína á
Samuel Alito til embættis hæstaréttar-
dómara í gær.
Bush þegar hann tilkynnti val sitt
í gær. „Hann hefur gott vald á lög-
fræði og sterka réttlætiskennd,"
sagði Bush ennfremur og benti á að
Alito hefði meiri reynslu af dómara-
störfum en nokkur sem hefur verið
tilnefndur til embættis hæstaréttar-
dómara síðustu 70 ár. Bush hvatti
öldungadeild Bandaríkjaþings ein-
dregið til að staðfesta valið fyrir
árslok.
Umdeiid tilnefning
Líklegt má telja að tilnefningin
valdi pólitiskum deilum í Banda-
ríkjunum en öfugt við Miers má
Alito eiga von á mikilli andstöðu
Demókrata. „Öldungadeildin þarf
að komast að því hvort að maður-
inn sem kemur í stað Miers sé of
róttækur fyrir bandarísku þjóðina,"
sagði Harry Reid, öldungadeildar-
þingmaður Demókrataflokksins
sem leiðir minnihluta þeirra. ■
George Bush, Bandaríkjaforseti, til-
nefndi í gær hinn íhaldssama dóm-
ara, Samuel Alito, í embætti dóm-
ara við Hæstarétt Bandaríkjanna
í stað Söndru Day O’Connor. Áður
hafði forsetinn tilnefnt Harriet Mi-
ers, lögfræðilegan ráðgjafa sinn, til
embættisins en hún baðst undan til-
nefningunni eftir að hafa sætt mik-
illi gagnrýni meðal annars vegna
skorts á starfsreynslu sem dómari.
„Alito er einn af færustu og virtustu
dómurum í Bandaríkjunum,“ sagði
Grímsbæ við Bústaðarveg • Ármúla 15 • Hafnarstræti 1061
600 Akureyri • Sími 588 8050. 588 8488, 462 4010
emaib smartgina@simnet.is
Lögregla íKólumbíu lœt-
ur til skarar skríða:
Háttsettur
eiturlyfjabarón
handtekinn
Lögregla í Kólumbíu hefur
handtekið mann sem talinn
er vera leiðtogi valdamikils
eiturlyíjahrings og er enn-
fremur efirlýstur í Bandaríkj-
unum fyrir eiturlyfjasmygl og
peningaþvætti. Jhon Eidelber
Cano Correa var handtekinn í
norðvesturhluta Kólumbíu eftir
að sérsveitir gerðu áhlaup á
búgarð með stuðningi fjögurra
þyrla. Cano er talinn vera þriðji
valdamesti leiðtogi í Norte
del Valle hringnum. Árið 2003
fór dómstóll í New York fram
á að hann yrði framseldur til
Bandaríkjanna á grundvelli tíu
ákæra í tengslum við eitur-
lyfjamál. Hann er grunaður
um að hafa staðið fyrir smygli
á um það bil 500 tonnum af
kókaíni til Bandaríkjanna.
Norte del Valle-hringurinn er
talinn sá síðasti úr hópi gömlu
eiturlyfjahringanna sem fýlltu
upp í skarðið sem varð til við
fall Medellin og Cali hringanna.
Prinsessa
er fædd
Letizia, krónprinsessa Spánar,
ól í gær stúlkubarn sem mun
hljóta nafnið Leonor. Stúlk-
an mun erfa krúnuna nema
hjónin eignist síðar sveinbarn
en samkvæmt núgildandi
stjórnarskrá ganga sveinbörn
fýrir stúlkubörnum. Ríkis-
stjórn sósíalista íhugar þó að
breyta stjórnarskránni í þá
veru að stúlkur geti erft ríkið
þó að þær eigi yngri bræður.
Prinsessan unga fæddist
tveimur vikum fyrir áætlun og
þurfti að beita keisaraskurði
til að hjálpa henni í heiminn.
Hinn nýbakaði faðir sagði þó
að bæði móður og barni heilsað-
ist vel. „Bæði Letizia prinsessa
og ég erum yfir okkur ánægð
og hamingjusöm með fæðingu
dóttur okkar,“ sagði prinsinn.
Felipe, krónprins Spánar, spjallar
viö fréttamenn um frumburðinn,
dótturina Leonor.
slaufur • púðar • g I u g g a s k r ey t i n g a r • jólaskraut • gjafapokar • jólaseríur • kerti • silkiblóm • greinar
jólakúlur • blómaskreytingar • greinar • pakkaskraut • gjafabönd ■ servéttur • dúkar • öskjur • kransar
Melabraut 19 • 220 HafnarfjÖrður • Sími 575 0200 • danco@danco.is
DANCO
HEILDVERSLUN