blaðið - 01.11.2005, Blaðsíða 10
10 I ERLENDAR FRÉTTIR
ÞRIÐJUDAGUR 1. NÓVEMBER 2005 blaöiö
Koizumi stokkar upp stjórnina
Shinzo Abe var tilnefndur aðaltalsmaður ríkisstjórnar Japans og styrkist þar með staða
hans sem líklegs arftaka Koizumis sem forsœtisráðherra landsins.
Junichiro Koizumi, forsætisráðherra
Japans.tilnefndiShinzoAbesemaðal-
talsmann ríkisstjórnarinnar þegar
hann stokkaði upp stjórnina í gær.
Fyrr um morguninn hafði gamla
stjórnin sagt af sér til að liðka fyrir
breytingunum. Þar með styrktist
staða Abes en hann er talinn líklegur
arftaki forsætisráðherrans á næsta
Shinzo Abe var tilnefndur aðaltalsmaður
ríkisstjórnar Japans í gær en hann er
talinn líklegur eftirmaður Koizumi, forsæt-
isráðherra.
ári. Koizumi, sem leiddi Frjálslynda
lýðræðisflokkinn til stórsigurs í
kosningum í síðasta mánuði, hefur
lýst því yfir að hann muni draga sig í
hlé þegar kjörtímabili hans sem leið-
togi flokksins lýkur í september á
næsta ári og að hann myndi útnefna
þá sem kæmu til greina í starfið við
uppstokkun stjórnarinnar.
Fukuda haldið utan
við nýju stjórnina
Koizumi hélt Yasuo Fukuda utan við
stjórnina og helstu embættum en
hann er talinn einn af helstu keppi-
nautum Abes. Abe, sem er 51 árs,
hefur oft lent efst á blaði yfir þá sem
kjósendur vilja helst að taki við af
Koizumi. 1 skoðanakönnun í byrjun
október sögðust 55% kjósenda styðja
hann til embættisins. Abe gerði lítið
úr spurningum um hvort hann væri
næsti eftirmaður Koizumis á frétta-
mannafundi í gær og sagðist aldrei
hafa litið á sig sem slíkan. Verði Abe
forsætisráðherra er óhætt að segja
að honum kippi í kynið en afi hans
var eitt sinn forsætisráðherra og fað-
ir hans utanríkisráðherra. ■
Óeirðir fjórða
kvöldið i röð
Til átaka kom á milli lögreglu og
ungmenna í Clichy-sous-Bois, út-
hverfi Parísar á sunnudag, fjórða
kvöldið í röð. Hópar ungmenna
köstuðu steinum og kveiktu í bílum
í óeirðunum aðfararnótt mánudags.
Sjónvarpsstöðin LCI sagði að sex lög-
regluþjónar hefðu slasast í átökun-
um og að ellefu manns hefðu verið
handteknir.
Ofbeldið hófst fyrir fimm dögum
í kjölfar þess að tveir unglingar lét-
ust af völdum raflosts á flótta und-
an lögreglu. 16 slösuðust í átökum
í hverfinu á föstudag og hundruð
íbúa mótmæltu ofbeldinu með þög-
ulli göngu daginn eftir. ■
www.volkswagen.is
Volkswagen Passat
I * 1*11 * • I
Luxusbill arsins!
: M
H
ii!i fiiia mí Íii; m JtL i I i ií; j.» gg f
M iii! •'"« 1 li Ilii MlH*. 1 iffi iii m í’3s 4
A T
P A
Nýr Volkswagen Passat er kominn og með honum
enn meiri lúxus. Passat býðst með nýjum og öflugum
FSI® bensín- og TDI® dísilvélum með 6 gíra
handskiptingu eða 6 þrepa sjólfskiptingu.
Bandalag íslenskra bílablaðamanna
valdi Volkswagen Passat bíl órsins í
flokki stærri fjölskyldu- og lúxusbíla.
*BILL^
ÁRSINS
•% * 2006 * jS-
''&ÍAÐ^
Verd fró 2.150.000 kr.
Reynsluaktu Volkswagen
og þú gætir unnið ferð fyrir fjóra í ævintýralandið
Autostadt, skemmtigarð í Wolfsburg í Þýskalandi,
sem dregur að sér 4 milljónir gesta órlega.
Dregið verður 20. desember 2005
Hátíðahöld í skugga hryðjuverka
Indverjar bjuggu sig í gær undir Di-
wali, ein mestu hátíðahöld hindúa-
trúar, í skugga hryðjuverkaárása
sem gerðar voru í Nýju Delhi á laugar-
dag. Lögregla leitar enn þeirra sem
báru ábyrgð á sprengjuárásunum
þremur sem urðu að minnsta kosti
59 að bana á fjölmennum mörkuð-
um í borginni. Lögreglu hafa borist
ýmsar vísbendingar og meðal ann-
ars rannsakar hún litt þekktan hóp
frá Kasmír sem lýsti ábyrgð á ódæð-
unum á hendur sér. Manmohan
Singh, forsætisráðherra, hefur kennt
hryðjuverkamönnum um sprenging-
arnar en hefur þó ekki skellt skuld-
inni á neinn tiltekinn hóp.
Fréttaskýrendur segja að Bylt-
ingasamtök íslams, sem lýstu yfir
ábyrgð á ódæðinu, séu að öllum
líkindum yfirvarp fyrir önnur og
þekktari samtök frá Pakistan sem
kallast Lashkar-e-Taiba. Þeir telja
ennfremur að með sprengingunum
hafi hugsanlega átt að eyðileggja
hægfara friðarferli á milli Indlands
og Pakistans en við lá að stríð bryt-
ist út á milli ríkjanna vegna Kasmír-
deilunnar fyrir þremur árum. ■
Kona syrgir ættingja sem fórst í einni af
þremur hyrðjuverkaárásum í Nýju Delhi á
laugardag.
Selur bítur
nef af konu
Selur beit nefið af konu sem reyndi
að hjálpa honum að komast aftur í
sjóinn austan við Höfðaborg í Suð-
ur-Afríku á laugardag. Nefið fannst á
staðnum en ekki var hægt að koma
því aftur á sinn stað og mun konan
því gangast undir aðgerð í vikunni.
Selurinn hafði legið á sama stað á
ströndinni í rúman sólarhring og því
vildi konan, ásamt öðru fólki, freista
þess að koma honum aftur á haf út
með áðurnefndum afleiðingum.
Selir eru algengir við strendur Suð-
ur-Afríku og eru oft ar en ekki vinsæl-
ir á meðal ferðamanna enda óvenju
manngæfir. Þeir geta þó reynst
hættulegir og ráðast stundum á fólk
sem hættir sér of nálægt þeim. ■