blaðið - 01.11.2005, Síða 11
blaðið ÞRIÐJUDAGUR 1. NÓVEMBER 2005
ERZnENDAR FRÉTTIR I 11
Ólga á Fílabeinsströndinni:
Gbago áfram við völd
Laurent Gbago, forseti Fílabeins-
strandarinnar, hefur lýst því yfir að
hann muni vera við völd í landinu
fram að kosningum og storkar þar
með stjórnarandstöðunni sem hef-
ur krafist þess að hann segi af sér.
Gbago lét þessi orð falla í sjónvarps-
ávarpi kvöldið sem fimm ára kjör-
tímabili hans hefði átt að ljúka. Búið
er að fresta kosningum og Samein-
uðu þjóðirnar hafa tekið þá ákvörð-
un að Gbago verði við völd í allt að
eitt ár til viðbótar. Gbago sagði í
ávarpinu vonast til þess að hægt
yrði að halda kosningarnar löngu
áður en árið yrði liðið. „Það verður
verkefni forsætisráðherrans sem ég
mun tilnefna innan nokkurra daga,“
sagði hann. Fréttaritari breska ríkis-
útvarpsins í landinu segir að vegna
skiptingar þess hafi verið ógjörning-
ur að halda kosningar í því skyni að
kjósa eftirmann Gbagos.
Lögregla tekst á við mótmælendur
Fyrr um daginn hafði óeirðalögregla
hleypt af viðvörunarskotum og not-
að táragas til að dreifa hundruðum
mótmælenda í Abidjan. Að minnsta
kosti einn slasaðist þegar hundruð
mótmælenda reyndu að ganga að bú-
stað forsetans í borginni.
Ringulreið hefur ríkt á Fílabeins-
ströndinni síðan uppreisnarmenn
lögðu norðurhluta landsins undir
sig árið 2002. Meira en 10.000 frið-
argæsluliðar frá Frakklandi og Sam-
einuðu þjóðunum hafa umsjón með
landsvæði sem skilur að uppreisnar-
mennina í norðri og stríðsmenn sem
styðja Gbago í suðurhlutanum. ■
Lögregla þurfti að beita táragasi og
skjóta viðvörunarskotum til að leysa upp
hóp fólks sem mótmælti Laurent Gbago,
forseta landsins, á sunnudag.
UK C^tll /., •
Við óskum Passat-eigendum til hamingju.
Ykkur hinum bjódum við að koma og kynnast kostum hans af eigin raun.
Aus Liebe zum Automobil
Verð fró 2.270.000 kr.
Umboösmenn um land allt: Höldur hf., Akureyri, slmi 461 6020 • HEKLA, Borgarnesi, slmi 437 2100 • HEKLA, ísafiröi, slmi 456 4666 I HEKLA, Uugavegi 174, sími 590 5000
HEKLA, Reyöarfiröi, sími 470 5100 • HEKLA, Reykjanesbæ, sími 420 5000 • HEKLA, Selfossi, sími 482 1416 | www.hekla.is, hekla@hekla.is
Beta veldur eyðileggingu
í Nígaragúa og Hondúras
Fellibylurinn Beta eyðilagði hús og
reif tré upp með rótum þegar hann
gekk á land í Nígaragúa á sunnudag.
Vindstyrkur bylsins mældist um 175
km/klst þegar hann skall á lítil þorp
við ströndina en síðan dró úr styrk
hans. Ekki hafði verið tilkynnt um
nein dauðsföll í gær en báts með 10
manns innanborðs var saknað frá
hinum afskekkta strandbæ Puerto
Cabezas.
Avil Ramirez, varnarmálaráð-
herra, sagði Reuters-fréttastofunni
að fjöldi veikbyggðra húsa hefðu
eyðilagst þegar fljót flæddi yfir
bakka sína í þorpinu Karawala, ná-
lægt staðnum þar sem Beta gekk á
land. Talsmaður hersins sagði að 120
heimili hefðu eyðilagst á svæðinu en
enginn hafi farist eða slasast.
Einnig urðu flóð í kjölfar Betu í
nágrannaríkinu Hondúras og í veiði-
mannbænum Iriona neyddust íbúar
til að klifra upp á þök húsa sinna til
að komast undan hækkandi vatn-
inu.
„Það flæðir vatn um 80% bæjarins,“
sagði bæjarstjórinn Simeon Cris-
anto og bætti við að hans eigið hús
væri umlukið vatni.
Um 8.000 manns þurftu að rýma
hús sín og stjórnvöld sendu flugvél-
ar hlaðnar matvælum, vatni og tepp-
um. ■
Kona öslar vatnið á götu
í bænum La Ceiba í Hon-
dúras á sunnudag.