blaðið - 01.11.2005, Page 12
12 I VÍSINDI
ÞRIÐJUDAGUR 1. NÓVEMBER 2005 blaöiö
Ofurtölva
tvöfaldar eigið met
280,6 milljónir útreikn-
inga á sekúndu
Ofurtölvan Blue Gene/L hefur bætt
eigið met í fjölda útreikninga sem
hún ræður við á sekúndu með því að
auka þá um helming. Tölvan, sem er
hönnuð af IBM og var afhent Lawr-
ence National Library í Kaliforníu
til geymslu á föstudaginn síðasta,
tvöfaldaði vinnsluhraða sinn frá síð-
ustu opinberu mælingum og mælist
hún nú með vinnslu upp á 280,6 tera-
flop. Það þýðir að hún getur fram-
kvæmt 280,6 milljónir útreikninga
á sekúndu. Þar með er hún formlega
orðin öflugasta tölvan á hnettinum.
Öflugustu ofurtölvurnar í heimin-
um eru mældar og flokkaðar á hálfs
árs fresti. Þrátt fyrir að Blue Gene sé
ennþá að þróast og sé ekki enn full-
komlega tilbúin þá hefur vinnslu-
hraði hennar fjórfaldast á síðast-
liðnu ári. Það tæki einfaldan mann
með vasareikni marga áratugi að
framkvæma sömu útreikninga og
Blue Gene getur nú framkvæmt á
hverri sekúndu. Fullbyggð mun tölv-
an notast við 130.000 örgjörva og
á að ná vinnslugetu upp á 360 tera-
flop á sekúndu í framtíðinni að sögn
framleiðandans, IBM.
Kemur í stað kjarnorkutilrauna
Tölvan verður meðal annars not-
uð til þess að styrkja öryggisstoðir
kjarnorkuvopnabúrs Bandaríkj-
anna samhliða annarri ofurtölvu,
ASC Purple. Samkvæmt Linton F.
Brooks, talsmanni kjarnorkuörygg-
isstofnunar Bandaríkjanna (NNSA),
þá á samhæfð tölvuvinnsla þessara
tveggja tölva sér engin fordæmi og
telur hann tölvurnar vera gífurlega
mikilvæg tól til þess að mögulegt
sé að viðhalda sífellt eldra kjarn-
orkuvopnabúri án þess að þurfa að
stunda tilraunir með vopnin. Blue
Blue Gene/L er orðin öflugasta ofurtölva f heimi.
99...................
Öflugustu ofurtölvurnar
íheiminum eru mældar
og flokkaðar á hálfs
árs fresti. Þrátt fyrir að
Blue Gene sé ennþá að
þróast og sé ekki enn
fullkomlega tilbúin
þá hefur vinnsluhraði
hennar fjórfaldast
á síðastliðnu ári.
Gene mun meðal annars sjá um að
reikna út hversu vel þau efni sem
eru í sprengjunum eldast, sameind-
ar-hreyfifræði og óstöðugleika í
straumfræði. Purple á síðan að nota
þær upplýsingar sem koma út úr út-
reikningum Blue Gene til að keyra
þrívíddar vopnakóða sem notaðir
eru til að líkja eftir frammistöðu
kjarnorkuvopna. Slíkar tilraunir
höfðu áður farið fram með tilrauna-
sprengingum neðanjarðar þannig
að það er ljóst að tilkoma Blue Gene
er mikil bragabót jafnt í öryggisleg-
um og umhverfisvænum skilningi.
Þá hafa stjörnufræðingar einnig
notast við tölvurnar tvær til að end-
urskapa hvernig alheimurinn þróað-
ist í þá lögun sem einkennir hann
í dag þannig að notagildi þessarar
ofurtölva er bæði víðfeðmt og árang-
ursríkt. ■
t.)uliusson@vbl.is
a stigaganginn
Falleg aðkoma að heimilinu skiptir máli.
Teppi er slitsterkt gólfefni sem auðvelt
er að þrífa, hljóðeinangrandi og hlýlegt.
Viö seljum vönduð og endingargóö teppi
sem eru ofnæmisprófuö og á góðu verði.
Armúla 32 Sími 533 5060
www.stepp.is
Er tonlist
mögulega tungumál?
Ef þú hefur einhvern tímann séð
tónlistarmann tala á meðan hann
er að hlusta á tónlist í einrúmi þá
þarf hann ekkert endilega að vera
einhverfur eða eitthvað skrýtinn,
hann gæti mögulega verið að
svara tónlistinni. Lucy Patson,
doktorsnemi við Vísindaháskól-
ann í Auckland á Nýja-Sjálandi,
heldur því nefnilega fram að
tónlistarmenn heyri tónlist sem
tungumál.
Patson segir að fyrri rannsóknir sýni
það að tónlistarmenn vinni úr tón-
list með vinstra heilahveli á meðan
þeir sem eru ekki aðdáendur tónlist-
ar geri slíkt með því hægra. „Vinstra
heilahvelið er fyrst og fremst notað
til að vinna úr og skilja tungumál
þannig að rannsóknir mínar hafa
beinst mestmegnis að því hvort að
tónlistarmenn melti tónlist eins og
tungumál,“ segir Lucy Patson. Til að
kanna þetta fékk Patson 36 afburða
tónlistarmenn og 36 manns sem
voru ekki tónlistarmenn í lið með
sér og lét þá gangast undir fjöldan
allan af prófum. Hver þátttakandi
var látinn gangast undir tvö sjón-
ræn próf og tvö tungumálapróf í
þremur mismunandi aðstæðum: Án
tónlistar, með tónlist sem var spiluð
í réttum nótum og með tónlist sem
var spiluð falskt.
Ef að tónlistarmennirnir fram-
kvæmdu tungumálaprófin án hljóð-
legs áreitis, þá skoruðu þeir hærra á
prófunum en þeir sem ekki voru tón-
listarmenn. Undir þeim kringum-
stæðum þar sem tónlist var spiluð þá
var frammistaða þeirra mun lakari.
Frammistaða samanburðarhópsins
breyttist lítið eftir því hvernig ytri
aðstæður voru, sem gaf til kynna að
tónlistin hefði engin sérstök áhrif á
þá. Patson segir að þessar niðurstöð-
ur bendi til þess að tónlistarmenn-
irnir heyri tónlist sem tungumál
þar sem þeir eiga I erfiðleikum með
að melta tónlist og tungumál sam-
timis því að heilinn sé að keppa um
sömu auðlindirnar. Óvæntur hliðar-
fundur varð síðan á rannsókninni
þar sem hún sýndi að sögn Patsons
að tónlistarmenn standi sig betur
í prófum þegar þeir eru umluktir
þögn sem gæti mögulega haft áhrif
á það hvernig börnum eru kenndir
hlutir frá unga aldri. ■
t.juliusson@vbl.is
14 svín
klónuð á Ítalíu
Sömu ítölsku rannsóknarmennirnir
og sköpuðu fýrsta einræktaða hest-
inn tilkynntu í síðustu viku að þeim
hefði tekist að klóna 14 grísi. Dýr-
in fæddust fyrir mörgum vikum á
rannsóknarsetri sem einbeitir sér að
æxlunartækni og er staðsett í Crem-
ona á Italíu. Talsmaður rannsókn-
arsetursins, Cesare Galli, sagði að
tilgangur klónunarinnar hefði verið
sá að auka á þekkingu á liffæraflutn-
ingi milli dýra og manna. Vísinda-
menn hafa nú opinberlega klónað
kindur, mýs, nautgripi, geitur, kan-
ínur, ketti, svín, múlasna og hunda.
Fyrsti hesturinn sem var ldónaður
fæddist á sömu rannsóknarstofu
sumarið 2003. Þá hefur þessi hóp-
ur einnig klónað kýr. Nýjasta rann-
sóknin var hluti af verkefni á vegum
Evrópusambandsins sem miðar að
því að rannsaka stofnfrumur í klón-
uðum dýrum. Vísindamenn um all-
an heim hafa tekið þessari nýjustu
þróun fagnandi og eru mjög áhuga-
samir um að nota svínin sem líkan
fyrir líffæraígræðslur þar sem svín-
in eru sú tegund dýra sem stendur
mannskepnunni næst í líffæra- og
lífeðlisfræðilegum skilningi. ■
t.juliusson@vbl. is