blaðið - 01.11.2005, Síða 16
ÞRIÐJUDAGUR 1. NÓVEMBER 2005 blaöíö
16
BÖHN OG UPP
KappAbel á íslandi
Stœrðfrœðikeppni sem sýnir
hvernig stœrðfrœði er nýtt daglega
KappAbel er stærðfræðikeppni
sem stendur 9. bekkingum til
boða og er ætlað að gefa krökkum
tækifæri til að skoða hve víða
stærðfræði kemur við á ýmsum
sviðum þjóðlífs og áhugamála
Íieirra. I ár er KappAbel haldin á
slandi í fimmta sinn og áður hef-
ur allt að þriðjungur af árgangn-
um tekið þátt. Anna Kristjánsdótt-
ir stjórnar KappAbel á íslandi og
hún bíður spennt eftir þessari
skemmtilegu keppni.
Anna segir að KappAbel skeri sig úr
öðrum stærðfræðikeppnum. „Þetta
er langumsvifamesta stærðfræði-
keppni á landinu og sker sig úr á
marga vegu því heilir bekkir keppa
saman en ekki krakkarnir hver við
annan. Bekkirnir sækja verkefni á
Netið með aðgangsorði og þau fá 100
99.........................
Það er alveg makalaust
hvað þetta unga fólk
erflott, bæði hvað
þau eru nærgætin
gagnvartþeim sem eru
að keppa á sviðinu og
hvað þau eru frjó og
fljót að finna lausnir.
mínútur til að leysa þau. Verkefnin
leysa þau í litlum hópum. Þá þurfa
þau að ná samkomulagi innan hóps-
ins um lausnina og svo þarf bekk-
urinn að komast að samkomulagi
hvaða lausn þau ætla að senda frá
sér,“ segir Anna full tilhlökkunar
og bætir við að krakkarnir rökræði
þetta fram og aftur og sýni mikla
frumlega hugsun. „Kennarinn er
ekki til staðar til að kenna þeim held-
ur bara að stjórna þessu. I mörgum
tilvikum sér kennarinn að krakkarn-
ir geta meira og rökstyðja betur held-
ur en þegar þau sitja bara í tímum
og hlusta."
Stærðfræði mikið nýtt þó
það sjáist ekki alltaf
í KappAbel leysa krakkarnir stærð-
fræðiþrautir sem enginn hefur kennt
þeim að leysa og verkefnin eru leyst
tvisvar sinnum í skólastofunni, í
nóvember og í janúar. Anna segir
að verkefnið í ár verði stærðfræði
og samskipti og að keppnin hjálpi
krökkunum að sjá það sem skóla-
kerfið hjálpar þeim venjulega ekki
að sjá. „Eins og hvernig maður getur
nýtt sér stærðfræðina í daglega líf-
inu og hvað hún er ofboðslega mikið
nýtt þó maður sjái það ekki alltaf.“
Betur má ef duga skal í ís-
lenskri stærðfræðikennslu
1 lok keppninnar í janúar kemur í
ljós hver hefur náð flestum stigum
og þá er bekkjum boðið til undan-
úrslita. „Undanúrslitin hafa venju-
lega verið í Reykjavík í apríl og það
eiga að vera tvær stelpur og tveir
strákar í hverjum hópi, það er al-
gjört skilyrði. Svo er lokakeppni á
milli fulltrúa frá þremur bekkjum
og lokakeppnin hefur verið í Há-
skólabíói. Þangað höfum við boðið
krökkum af stór-Reykjavíkursvæð-
inu að koma og vera með. Þau fá að
spreyta sig á verkefnunum úti í sal
um leið og krakkarnir eru á sviðinu.
Það er alveg makalaust hvað þetta
unga fólk er flott, bæði hvað þau eru
nærgætin gagnvart þeim sem eru að
keppa á sviðinu og hvað þau eru frjó
og fljót að finna lausnir. Sigurvegar-
inn fer síðan áfram í Norðurlanda-
keppnina sem verður í Þrándheimi
í júní.“ Aðspurð um hvort Önnu
finnist stærðfræðikennslu á Islandi
vera ábótavant segir hún að sér finn-
ist íslenskir kennarar vera að byggja
verulega upp á síðustu fimmtán ár-
um. „En betur má ef duga skal. Það
þarf alltaf liðsinni við svo fólk fari
að trúa því að það geti allir nemend-
ur rökstutt. Það er spurning um að
þeir sjái merkingu á viðfangsefninu
sem þeir eru að fást við.“ Þeir bekk-
ir sem hafa áhuga á að skrá sig í
KappAbel er bent á að hafa hraðann
á því skráningarfrestur rennur út 3.
nóvember en skráning er á síðunni
www.staerdfraedin-hrifur.khi.is.
svanhvit@vbl.is
Bleyjulaus við
þriggja vikna aldur
Flest börn í vestrænum menning-
arheimum nota bleyjur fyrstu árin
og telst það fullkomlega eðlilegt.
í raun má segja að bleyjunotkun
sé svo rótgróin vestrænni menn-
ingu að það er nánast ómögulegt
að ímynda sér lífið án þeirra. En
nokkrir foreldrar í Bandaríkjun-
um hafa enga trú á þessari miklu
bleyjunotkun og álíta að auðveld-
lega sé hægt að venja barn af bleyju
við þriggja vikna aldur. Eftir það
notar barnið aldrei bleyju framar.
Hreyfingin „Bleyjulaus við þriggja
vikna aldur" heldur því fram að eftir
fyrstu þrjár vikurnar þurfi barnið
aldrei að nota bleyjur á ný. Ef foreldr-
ar taka eftir því þegar barninu er mál
rétt eins og þeir taka eftir öðru í fari
barnsins, eins og ef það er svangt,
vill láta halda á sér eða er þreytt, þá
er hægt að venja barnið af bleyju við
þriggja vikna aldur. Foreldrar fylgj-
ast þá með óðagotinu, grettunum
og fyndnu andlitunum sem má sjá
þegar barninu er mál. Einnig má
Ætli þessi ungi piitur hafi lært á koppinn
viö þriggja vikna aldur?
tengja þvagferðir við daglegar hefðir
barnsins, til að mynda pissa börn oft
eftir að þeim er gefið og þegar þau
vakna. Á þeim tímapunkti er auðvelt
að halda barninu á koppnum og fljót-
lega tengir barnið koppinn við þenn-
an verknað og þar með hefur munst-
ur myndast.
Snýst um samskipti
frekar en kennslu
Þetta er þó ekki það sem við erum
vön enda er álitið í vestrænni menn-
ingu að ungabörn hafi enga stjórn á
þvagfærum sinum, jafnvel þó marg-
ir foreldrar hafi upplifað hið gagn-
stæða. Þessi tiltekna hreyfing nýtur
stuðnings barnalækna í herferð sinni
og fram kemur á heimasíðu þeirra að
þetta snúist um samskipti frekar en
kennslu. Þegar farið er með litlu kríl-
in á klósett eða kopp í kringum þann
tíma sem þau þurfa að pissa þá gef-
um við þeim tækifæri til að æfa sig í
að nota „klósettvöðvana" og hvetjum
þau til frekari samskipta um þvaglát.
Þetta gefur þeim tækifæri til að þróa
þvagfærin eins fljótt og mögulegt er.
Flest böm í heiminum hafa
aldrei notað bleyjur
Þessi hugmynd er þó á engan hátt
ný enda er það svo að flest börn i
heiminum, utan vestrænnar menn-
ingar, hafa aldrei notað bleyjur. For-
eldrar í þeim löndum, eins og Kína,
Indlandi og Kenýa, líta á bleyjur sem
síðasta úrslitakost enda má í raun
spyrja sig af hverju verið er að binda
klunnaleg klæði um börnin. 1 þess-
um löndum er galdurinn sá að barnið
er alltaf líkamlega nálægt foreldrinu
og því skynjar foreldrið hvenær barn-
inu er mál og þá er bara næsta hola
fundin. Þeir sem vilja fræðast frekar
um bleyjulaus börn við þriggja vikna
aldur er bent á heimasíðuna www.dia-
perfreebaby.org.
FJÖLVÍTAMÍN DROPAR M/ DHA
Fullkomnari samsetning
Mælt með af barnalæknum
Inniheldur DHA
Engin jarðhnetuolía né aðrir þekktir
ofnæmisvaldar
Hágæða framleiðandi -
IWlNLAB
fímá impnmd
T
TVrtWAB-
NFANT
ARH
mm
vnm in'
rnors
,vkh DHA
Aí 4 ’jsz
Útsölustaðir Apótek
www.medico.is
Akralind 3, 201 Kóp
Snjórinn og hætturnar
sem honum fylgja
Um þessar mund-
ir flykkjast börn-
in út að leika sér
í snjónum víðs
vegar um land og
ekkert nema gott
um það að segja
að börnin okkar
stundi holla úti- Hert*ís L- Storgaard
veru. Það er hins
vegar ýmislegt sem ber að varast og
ágætt að rifja upp ýmis öryggisat-
riði sem fylgja leikjum í snjó.
Hálkuslys og börn
Flestir halda að það sé bara gamalt
fólk sem verði fyrir hálkuslysum en
svo er ekki. Flest hálkuslys verða
á skólalóðum og þegar fólk er að
fara með ruslið út í tunnu og er á
slitnum inniskónum. Huga þarf að
því að börn noti góða skó sem eru
með góðu gripi á sólanum. Það er
oft þannig að þau klæða sig eftir
tískunni en ekki skynseminni þegar
þau verða eldri. Hægt er að láta setja
harðkornasóla undir flesta skó en
það er góð vörn gegn hálku.
Sleðaferðir
Mikilvægt er að huga að eftirfarandi
atriðum þegar börnin fara út að
renna sér á sleða eða snjóþotu. Velja
þarf öruggan stað þar sem börnin
eru fjarri umferð. Oft má sjá börn
renna sér nálægt umferðargötum
en óhætt er að segja að það geti ver-
ið lífshættulegt. Mikilvægt er að þau
yngstu séu undir eftirliti foreldra
sinna því þau átta sig ekki á því hvar
er öruggt að renna sér. Ferðin gæti
til dæmis endað á tré eða girðingu
með alvarlegum afleiðingum. Mikil-
vægt er að börn séu með bogin hné
þegar þau renna sér á snjóþotu og
noti hjálm, þau geta notað reiðhjóla-
hjálminn en mikilvægt er að þau
noti lambhúshettu eða buff undir.
Mikilvægt er að stilla hjálminn rétt
þannig að hann verji ennið vel.
Gúmmíslöngur
Talsvert er um að börn séu að nota
gúmmíslöngur til að renna sér á en
þeim fylgja miklar hættur. Bæði
renna börnin stjórnlaust og geta rek-
ist á með alvarlegum afleiðingum.
Önnur hætta sem foreldrar átta sig
ekki alltaf á er að ef hringurinn er
rúmur, þannig að afturendi barns-
ins nær næstum niður að jörð er
hætta á hryggskaða ef þau keyra yf-
ir harðar ósléttur. Dæmi er um að
börn hafi lamast í slíkum slysum.
Snjóhús
Oft eru börn að nota skafla til að
grafa sér snjóhús en það getur ver-
ið hættulegt ef ekki er vel að gáð.
Dæmi er um að stórir skaflar hafi
fallið yfir smábörn og þau kafnað.
Foreldrar, notið tækifærið, verið úti
með börnunum ykkar og kennið
þeim að byggja örugg snjóhús.
Góða skemmtun
Herdís L. Storgaard
herdis@lydheilsustod. is
verkefnastjóri barnaslysavarna
Árvekni, Lýðheilsustöð.