blaðið - 01.11.2005, Qupperneq 20
ÞRIÐJUDAGUR l.NÓVEMBER 2005 blaðið
28 I AFPREYING
Konur horfa
á vísinda-
skáldskap
1 fyrsta skipti er hlutfall
kvenna sem fylgjast með
sjónvarpsþáttum gerðum eftir
vísindaskáldskap hærra en
hlutfall karla. Nú eru þær 51%
áhorfenda gegn (líklegast) 49%
karla. Ástæðan er talin vera
fjölgun kvenhetja á borð við
Buffy, Láru Croft og Xenu.
109 SU DOKU talnaþrautir
Leiðbeiningar
Su Doku þrautin snýst um aö
raöa tölunum frá 1-9 lárétt
og lóðrétt í reitina, þannig
að hver tala komi ekki nema
einu sinni fyrir í hveni línu,
hvort sem er lárétt eða lóðrétt.
Sömu tölu má aukin heldur
aðeins nota einu sinni innan
hvers níu reita fylkis. Unnt er
að leysa þrautina út frá þeim
tölum, sem upp eru gefnar.
9 2 1 5 3
5 7 8
8 4
3 7 5
5 3 1 8 2
1 2 4
6 4
5 3 1
8 1 2 3 7
Lausn á síðustu þraut
9 7 8 1 4 3 5 6 2
5 4 6 2 8 7 3 9 1
1 2 3 6 5 9 4 8 7
6 3 2 8 1 4 9 7 5
8 1 5 7 9 6 2 3 4
4 9 7 3 2 5 6 1 8
7 8 9 4 6 2 1 5 3
3 6 4 5 7 1 8 2 9
2 5 1 9 3 8 7 4 6
SÖLUHÆSTU LEIKIR
1. Football Manager2006 PC SEGA
2. Pro Evolution Soccer 5 PS2/XB0X Konami
3. Fifa 06 Allformats EA Sports
4. Singstar Pop PS2 Sony
5. F.E.A.R PC VUGames
6. Quake IV PC Activision
7. EyeToy Kinetic PS2 Sony
8. Sims 2 Nightlife PC EA
9. SSXOnTour Allformats EA Sports
10.BurnoutRevenge All formats Activison
(SENA: VIKA 42)
Veislu
og fundarbakkar
uizhosSub
Pantanir: 577 5775
„Jibbum" út um allt
Komnar eru til landsins þrjár
bækur sem eru samantekt á
hinum sígildu Doom Patrol
blöðum. Bækurnar ná yfir
tölublöð 19 til 41 og segja frá
„furðulegustu hetjum heimsins“,
hópi ofurfurðufugla. Hljómar
e.t.v. að einhverju leyti eins og
X-Men en í raun komu Doom
Patrol bækurnar á undan og
munaði þar heilum mánuði.
í þessum bókum er þáttur
Grant Morrison sem höfiindar
gerður upp en hann tók þenn-
an furðulega flokk ofurhetja
undir sína arma í hvað lengstan
tíma. Doom Patrol er hópur
undirmálsmanna með óvenju-
lega ofurkrafta sem verða til
þess að oft vilja þeir einfaldlega
vera venjulegir eins og Jón
og Gunna. Sögurnar hafa oft
verið sagðar undir áhrifum frá
dadaisma, Nietzche og slíku
svo það má ekki búast við logn-
mollu meðan þær eru lesnar.
í Wanted eru ofurhetjurnar dauðar eftir
að ofurþorpararnir tóku höndum saman
og eyddu þeim öllum. Wesley Gibson
er næsti ofurþorparinn, hann veit bara
ekki af því.
Wanted sögurnar eftir Mark Millar eru
snilldarlega teiknaðar af JG Jones sem
færir lesendum persónur fullar af lifi.
Þær hófu göngu sína í desember 2003
og seldist fyrsta tölublað upp á tæpum
mánuði, annað tölublað á svipuðum tíma
og einnig það þriðja. Þá virðist sem út-
gefandinn hafi áttað sig og byrjað að
prenta fleiri eintök. Vinsældirnar áttu þó
allt annað en eftir að dala þar sem karla-
tímaritið FHM valdi sögurnar sem bestu
dægradvölina síðasta sumar.
Wanted er allt annað en barnvæn saga
og nóg er af ofbeldi en með samvinnu
Millar og Jones er þó komið í veg fyrir að
lesandanum sé ofboðið á „smekklegan”
hátt. Sífellt er lesandinn settur andspæn-
is sínum grundvallarsjónarmiðum og oft-
ast er hann á móti því sem aðalhetjan
ákveður þrátt fyrir skilning á gjörðum
hans í flestum tilfellum.
Sagt er frá Wesley Gibson, ónytjungi
sem aldrei hefur þekkt fööur sinn. Faðir
hans er hins vegar þekktur sem Morðing-
inn en við lát hans er komiö að Wesley
að taka við hlutverki fjölskylduföðurins.
Hann kynnist leynisamfélagi ofurþorp-
ara sem kemst upp með öll spellvirki
sem hugsast getur. Þar sem margir slæm-
ir koma saman er hins vegar fljótt að
kastast í kekki og stutt er í svik og pretti
þar sem Wesley er í eldlínunni ásamt
hinni þokkafullu Fox. Hver saga endar á
allt annan hátt en búist er við fyrirfram
svo sögurnar koma ávallt á óvart enda
er enginn Superman til þess að bjarga
deginum.
í Nexus við Hverfisgötu er nú hægt
að kaupa sex tölublöð í kiljuútgáfu (soft
cover) en einnig er mikið af aukaefni í
útgáfunni, t.d. mismunandi forsíður og
nokkrar línur frá teiknaranum.
Skrýtnustu
hetjur
heimsins
„Jibb keppni Geira frænda“ var stofn-
uð af Ásgeiri Höskuldssyni, for-
manni Brettafélags íslands, um leið
og snjórinn sá sér fært að koma suður
fyrir heiðar. Samkvæmt heimasíðu
félagsins, www.bigjump.is, er keppn-
in ætluð til að hvetja snjóbrettafólk
landsins til að fara út í snjóinn og
sýna „jibblistir" sínar (jibb gengur
út á að taka stutta atrennu á stökk-
pall og skrika (slæda) á hvaða hindr-
un sem er áður en komið er til lend-
ingar). í raun og veru verður JKGF
haldin um allt land og skiptir ekki
máli hvort þið eruð á Raufarhöfn
eða í Bolungarvík.
Fyrirkomulag
Keppnin hófst á laugardaginn og
stendur til fimmtudags en þátttaka
er með þeim hætti að keppendur
„jibba“ og láta taka mynd af sér með-
an á því stendur. Myndirnar eru
því næst sendar til Brettafélagsins
á geiri@bigjump.is. Myndin verður
að vera tekin á ofangreindu tíma-
bili og á íslandi. Þetta er ekki ljós-
myndakeppni þannig að „jibbarinn"
á myndinni fær verðlaunin en ekki
ljósmyndarinn. Vídeobrot eru ekki
leyfð að þessu sinni og myndin má
helst ekki vera stærri en í mb. Nauð-
synlegt er að velja myndina vel þar
sem hver einstaklingur fær aðeins
að senda inn eina mynd af sér og
ekki má gleyma að merkja hana vel.
Veitt verða verðlaun fyrir þrjá bestu
„jibbarana“ en þeir eru metnir eftir
frumleika, flottleika og erfiðleika
en nánari útskýringar er að finna
á vefsíðunni. Verðlaunin verða frá
Oakley búðinni í Smáralind.