blaðið - 01.11.2005, Síða 26
34 I KVIKMYNDIR
ÞRIÐJUDAGUR 1. NÓVEMBER 2005 biaði6
^ t j **** *****
Plfrlí V
M ffotl.nl,i t«rollv<'k|ó .irtim" / .
w / .mJ***,w f '
Bölvum "4-r T14 C **** *
(GKKAMIMUMMAR ^ ! Ht...........
BbLvuntisr
VfGAKAtíimiMMAP\
ITMII utxUfl mynúlfln \
bt itutönyndr 'MatUgascar ’Aorgæsimjr
lubU i KXataðangur" iync.
Sdescent X
Sýnd kl. 5,20,8 og 10.40 B.i. 12 ára Sýnd kl. 8 og 10 B.L 16 ðra
; 400 kr. í bíó! Glldlr á allar sýnlngar merktar með rauðu
1 J OKTOBERBIOFEST
26. október -14. nóvember
The Aristocrats * Sýnd kl 6 It's all gone Pete Tong • Sýnd kl 6
Enskt tal/ótextnð Enskt tat/ótextað
Crónicas * Sýnd kl 8 Pusher II • Sýnd kl 8
The King * Sýnd kl 10 Inkasso • Sýnd kl 10
HUGSAÐU STÓRT
★ ★★★
SVHBT
helmildarmynd
hefur tariB sigi
Sýnd kl. 5.40 og 10.20
Irá framlei&endum Tho Prafessional
og La Femme Niklta
I Fór beint álmjpinn i iiUflU
Sýnd kl. 3.50 með fslcnsku tali.
Heiðursverðlaunahafi Myndstefs 2005 Gabríela Friðriksdóttir
Heiðursverðlaunahafi Myndstefs
Gabríela Fríðríksdóttir,
verðlaunahafi Myndstefs
Gabríela Friðriksdóttir, myndlist-
armaður, er heiðursverðlaunahafi
Myndstefs árið 2005 sem forseti Is-
lands afhenti í fyrsta sinn við hátíð-
lega athöfn í Listasafni Islands í gær.
Viðurkenninguna hlýtur hún fyrir
myndbandsverkið Versations/Tetra-
lógía. Þá hlaut Ragnar Axelsson,
ljósmyndari, styrk fyrir einstakt og
framúrskarandi verk myndhöfund-
ar fyrir bók sína Andlit norðursins.
„Framúrskarandi fram-
tag myndhöfundar"
Heiðursverðlaun Myndstefs, mynd-
höfundasjóðs Islands, nema sam-
tals einni milljón króna og eru þau
veitt fyrir „framúrskarandi framlag
myndhöfundar í nútíð og á allra síð-
ustu árum,“ eins og fram kom í setn-
ingarávarpi Knúts Bruun, stjórnar-
formanns Myndstefs við athöfnina
í gær. Jafnframt er verðlaununum
ætlað að leggja áherslu á ört vaxandi
mikilvægi hvers konar myndverka í
margmiðlunar- og upplýsingasamfé-
lagi nútímans. Landsbanki íslands
er fjárhagslegur bakhjarl heiðurs-
verðlaunanna og leggur til helming
verðlaunafjárins en hinn helmingur-
inn kemur úr sjóðum Myndstefs.
Ragnar Axelsson Ijósmyndari
hiýtur aukaverðlaunin
Dómnefndin var einnig einróma
í þeirra ákvörðun að 250 þúsund
króna aukaverðlaun Landsbankans
- til að styrkja einstakt framúrskar-
andi verk myndhöfundar - skyldu
renna til Ragnars Axelssonar, ljós-
myndara, fyrir bókina Andlit norð-
ursins. Átta myndhöfundar voru
tilnefndir til heiðursverðlauna
Myndstefs og var það einróma
niðurstaða dómnefndar, sem skip-
uð var þeim Valgerði Bergsdóttur,
myndlistarmanni, Guðmundi Ing-
ólfssyni, ljósmyndara, og Björgólfi
Guðmundssyni, stjórnarformanni
Landsbanka íslands, að Gabríela
Friðriksdóttir hlyti heiðursverðlaun
Myndstefs 2005 fyrir verkið Versati-
ons/Tetralógía. m
Gamalt vín á
gömlum belgjum
Queen: Return of the Champions 2005
Ekki myndi maður halda að það
væri vegna blankheita sem gömlu
mennirnir í Queen taka saman.
Tvöfaldi geisladiskurinn: Return
of the Champions, inniheldur upp-
tökur af tónleikum sem haldnir
voru í Sheffield í maí á þessu ári. I
stað Freddy Mercury syngur Paul
Rodgers, sem menn muna eftir
úr hljómsveitunum Free og Bad
Company. Ekki veit ég ástæður
þessa samkrulls en lítið þykir mér
til koma. Ekki það að flutningur
þessara öldnu kempa sé slæmur,
fjarri því, en tilgangur þess að
taka upp tónleika með þekktustu
lögum þessarar hljómsveitar með
öðrum söngvara er mér hulinn.
Ekki bætir þetta neinu við annars
glæstan feril hljómsveitarinnar
Queen. Á síðari disknum er að
finna slagarann All Right Now
með Free. Heitustu aðdáendur
hljómsveitarinnar munu eflaust
kaupa þennan disk þó ekki væri
til annars en að eiga allt með uppá-
halds hljómsveitinni sinni.
Einhvern veginn læðist þó að
manni sá grunur að þessi diskur
verði ekki mikið settur á fóninn
★
þar sem aðalstjörnuna, Freddy
heitinn, vantar.
Stjörnuna fær Paul Rodgers fyr-
ir að reyna ekki að líkja eftir Fred-
dy heldur syngur hann með sínu
nefi.
Hér þykir mér ansi langt gengið
í að blóðmjólka gamla hljómsveit.
Eftir að hafa hlustað á þennan
disk setur maður hann upp í hillu
og þar fær hann að vera í friði.
Skyldi einhvern tímann grípa
mann löngun til að hlýða á Queen
velur maður gömlu góðu diskana
með Freddy Mercury.
ingo@vbl.is
Umsögn Rolling Stone um Iceland Airwaves
Iceland Airwaves rokkar
David Fricle frá hinu virta banda-
ríska tímariti Rolling Stone, sem
heimsótti Iceland Airwaves hátíð-
ina um síðustu helgi, kallar hátíð-
ina „the hippest long weekend on
the annual music-festival calendar"
í grein sinni um hátíðina. Þar fjall-
ar hann um þá tónlistarmenn sem
hann sá á hátíðinni og er sérstak-
legahrifinn af Ghostdigital, Jakobín-
arína, Benna Hemm, Þóri, Apparat
Organ Quartet, Kira Kira, Daníel
Ágústi og José González. Hann seg-
ist ekki hafa heyrt neitt eitt sem
ætti eftir að slá í gegn en var mjög
jákvæður. Þá sagðist hann hafa séð
margt sem minnti sig á hvers vegna
hann hefur alltaf komið aftur síðan
1988 og áhugi hans á íslenskri tónlist
sé mikill. ■
Blaðið/Esther