blaðið - 01.11.2005, Page 27
blaðið ÞRIÐJUDAGUR 1. NÓVEMBER 2005
IMYNDIR I 35
HÁDEGISBÍÓ
400 kr. MIÐAVERÐ A ALLAR MYNDIR kl: 12 UM HELGINAISAMBÍÓUNUM KRINGLUNNl
5T«STA KVIKMYNDAHÚS UNDSIHS • HAGATORGi • S. 530 191» • wwwJioskoloblo.ti
Robert Bowney Jr. Val Kilmer
5Prá höfundi we.pon
KJrnlíf. Morá. Bulúð.
Velkomln í partýið.
FROM THE DIRECTOR5 OF 'THERE’5 SOMETHINO ABOUT MARY'
KISS KISS BANG BANG
PERFECT CATCH
FLIGHTPLAN
WALLACE & GROMIT ísi. tol
KL. 6-8.15-10.30 B.l. 16
KL. 6-8.15-10.30 B.l. 16
KL 8-10.15 B.1.12
KL6
KL. 6-8.15-10.30 B.l. 16
KL 3.45-6-8.15-10.30
KL. 3.50-6-8.15-10.30 B.l. 12
KL4-6
KL. 6-8.15-10.30
KL 10.30 B.l. 14
KL 5.30-8-10.30 B.l. 14
KL 8.15
KL3.40
KL3.50
KL.3.50
KISS KISS BANG BANG
KISS KISS BANG BANG VIP
FLIGHTPLAN
WAliACE & GROMIT sl. tal
WALLACE & GROMIT nskt tal
CINDERELLA MAN
THE 40 YEAR OLD VIRGIN
GOAL
VALIANT ísi. tol
SKYHIGH
CHARLIE & THE CHOCOLATE FACTORY
—
OKTOBERBIOFEST
(Hóitólafcfói og Regnboga 26. októbc
STEVE CARELl
fTHE 40 YEAR-OLD
AKUREYRI { 46! 4666_______KEFLAVÍK C 42II170
CINDERELLA MAN FUGHTPLAN KL.8 KL.8
AKUREYRI
CORPSE BRIDE KL.8
FLIGHTPLAN KL8-10
THE 40 YEAR OLD VIRGIN KL.10 1
Kvikmyndir:
Hamingjan góðal
The Legend of Zorro
Leikstjóri: Martin Campbell.
Aðalleikarar: Antonio Banderas, Catherine Zeta-Jones og Rufus Sewell.
Sýnd í Laugarásbíói, Regnboganum og Smárabíói.
Ekki veit ég hvort minnið í mér sé
að bregðast mér eða hvort Holly-
wood ákvað að færa Zorro endan-
lega í einhvern farsabúning með
The Legend of Zorro. Ég man alla
vega að mér þótti Zorro langbestur
þegar ég var yngri - ásamt reynd-
ar Batman. Hins vegar man ég
ekki eftir honum sem jafnmiklum
kjána og hann er í túlkun Antonio
Banderas.
The Legend of Zorro má samt
sem áður eiga það að henni er
ætlað að hafa Zorro áfram í eigu
barna í stað þess að gera hann að
einhverri fullorðinshetju. Myndin
er öll mjög gáskafull og nóg er af
fimmaurum ásamt nokkrum vand-
aðri bröndurum. Hins vegar ganga
rugludallarnir við myndavélarnar
aðeins of langt þegar þeir láta hið
glæsilega hross, Hvirfilvind, taka
upp drykkju og reykingar - það er
einfaldlega of langt gengið.
Það sem stendur upp úr í mynd-
inni er leikur hins kornunga Adri-
an Alonso sem Joaquin de la Vega,
sonur Zorro og hans helsti aðdá-
andi. Drengurinn sýnir hér stór-
góðan leik þrátt fyrir ungan aldur
Lagasmiður Creedence Clearwater Rivival
snýr aftur til útgáfufyrirtœkisins
John Fogerty snýr aftur
(fæddur 1994) en þó verður að slá
þann varnagla við að aðrir leikarar
standa sig í flestum tilfellum illa
og ganga of langt í farsanum þann-
ig að ekki tekst að gera myndina
nógu trúverðuga. Annar hápunkt-
ur sem er góður fyrir „helgarpabb-
ana“ er mjög svo glæsilegur fata-
skápur Catherine Zeta-Jones, en
það er alls kostar ótengt gæðum
myndarinnar.
The Legend of Zorro er mynd fyr-
ir unga áhorfendur sem eru vaxnir
upp úr SpyKids en ekki enn orðnir
nógu gamlir til að sjá blóð í kvik-
myndum. Hún greinir frá alþýðu-
hetjunni Zorro sem berst fyrir rétt-
indum litla mannsins í samfélagi
þar sem hann á oft á brattann að
sækja. Það er stutt í klisjurnar eins
og svo oft í myndum sem þessum
og sem dæmi má nefna að vondi
karlinn er franskur með mong-
ólskan einkaþjón. Á tíðum er líka
óþægilega auðvelt að geta sér til
um söguþráðinn.
Fyrir unga verðandi ofurhuga er
Zorro frábær bíómynd en hún ger-
ir lítið fyrir eldri gesti kvikmynda-
húsanna. Hins vegar eru líkur á
að upp úr fertugu geti fólk aftur
haft gaman af ævintýrum grímu-
klædda mannsins.
Auk þess legg ég til að hlé verði
lögð niður í íslenskum kvikmynda-
húsum.
agnar.burgess@vbl.is
Eftir rúmlega 30 ára hlé hefur söngv-
ari og lagasmiður Creedence Clear-
water Rivival snúið aftur til útgáfu-
fyrirtækisins Fantasy Records sem
hann yfirgaf á hátindi frægðar Cree-
dence með tilheyrandi leiðindum.
Að því tilefni verður í fyrsta skipti gef-
inn út safnplata sem inniheldur alla
smelli John Fogerty, bæði frá sóló-
ferli hans og Creedence Clearwater
Revival tímabilinu. Platan heitir
The Long Road Home, kemur út
1. nóvember og henni mun fylgja
fjórar nýjar upptökur í pakkanum.
Þá mun ný hljóðversplata koma út
á næsta ári. Lögin á plötunni The
Long Road Home eru meðal annars:
Born On The Bayou, Bad Moon Ris-
ing, Centerfield, WhoTl Stop The
Rain, Rambunctious Boy, Fortunate
Son og mörg fleiri. Þá mun platan
innihalda lagið Fortunate Son sem
tekið var upp á tónleikum. ■
Magnús Pór
Sigmundsson
gefur út plötu
Það er orðið langt um liðið eða 20
ár síðan Magnús Þór Sigmundsson
gaf síðast út sólóplötu. Nú er Magn-
ús að gefa út plötu sem heitir Hljóð
er nóttin og áætlaður útgáfudagur
er 10. nóvember. Hann gaf síðast út
plötuna Crossroads sem kom út árið
1986. Þar á undan hafði hann gefið
út tvær plötur í eigin nafni. í seinni
tíð hefur Magnús samt helst verið
þekktur fyrir lagasmíðar. Hann hef-
ur samið lög fyrir marga flytjendur
og fékk til dæmis íslensku tónlistar-
verðlaunin fyrir lag ársins 2003.
I sumar kviknaði sú hugmynd
að endurskapa nokkur laganna úr
hinu þykka sönghefti Magnúsar.
Sjálfur sér hann um sönginn en nýt-
ur aðstoðar nokkurra valinkunnra
hljóðfæraleikara. Eftir tiltölulega
stutta yfirlegu raðaðist áreynslu-
laust saman neðangreindur listi
laga en í sviganum er tilvísun til
upphaflegs flytjanda. Þú átt mig ein
(Villhjálmur Vilhjálmsson), Húmar
að (Ragnheiður Gröndal), ísland er
land þitt (Pálmi Gunnarsson), Álfar
(MÞS), Ást (Ragnheiður Gröndal),
Dag sem dimma nátt (I svörtum
fötum), Sú ást er heit (Björgvin Hall-
dórsson), Jörðin sem ég ann (MÞS),
Ást við fyrstu sin (Páll Oskar Hjálm-
týsson), Ólýsanleg (Nýtt), Hljóð er
nóttin (Nýtt), Blue Jean Qeen (MÞS),
Sunshine (Magnús og Jóhann), Play
me (Þórunn Ántonía) og Amazon
(MÞS)
Upptökur fóru fram undir stjórn
Jóns Olafssonar, sem jafnframt leik-
ur á hljómborð. Auk hans koma við
sögu Birgir Baldursson (trommur),
Róbert Þórhallson (bassi) og Stefán
Magnússon (rafgítar). Magnús sér
sjálfur um kassagítarleik. Nokkr-
ir aðrir þekktir hljóðfæraleikarar
leggja svo hönd á plóginn með spar-
legri notkun blásturs og strengja-
hljóðfæra. H
Framboðsfundur á Kaffi
Sólon þriðjudaginn 1. nóv
kl: 20:30. Fundurinn verður
með ungum
frambjóðendum í prófkjöri
Sjálfstæðismanna i
Reykjavík.
Allir velkomnir!
ÐOQDÍffl^SiQ.Q.QOlIloÖÖ