blaðið - 01.11.2005, Page 29
blaðið ÞRIÐJUDAGUR 1. NÓVEMBER 2005
DAGSKRÁ I 37
Hvaða sjónvarpsþætti máttu ekki missa af?
SigurðurVignir Jóhanns- Heiðrún Baldursdóttir Anna Vallí Baldursdóttir Ragnar Lárusson
son ÉgmáekkimissaafMylie Footballer's Wives. House og Bráðavaktinni.
Það er enginn sjónvarps- og héðan í frá Footballer's
þáttur sem ég má ekki Wives.
missa af.
Sjónvarpið
Veronica Mars
- kl. 20.40
Bandarísk
spennuþáttaröð
um unga konu
sem tekur til við
að fletta ofan
af glæpamönnum eftir að besta
vinkona hennar er myrt og pabbi
hennar missir vinnuna.
Stöð 2 - Amazing Race 7 - kl. 20:30
Ellefu lið eru mætt galvösk til leiks,
reiðubúin til þátttöku í sjöunda
Kapphlaupinu. f síðustu keppni
ferðuðust keppendur um nokkrar
heimsálfur og höfðu m.a. viðkomu
á íslandi.
Skjár 1 - Allt í drasli - kl. 20:30
Allt í drasli hóf göngu sína síðasta
vetur og vakti mikla lukku. Þar
sýndu þau skötuhjúin ótrúleg til-
þrif við hreingerningarnar og gáfu
landsmönnum heilræði um hvernig
best er að bera sig að við tiltektina.
Að þessu sinni verður tekið til hend-
inni á landsbyggðinni og áhorfend-
ur mega búast við að sitja agndofa
fyrir framan skjáinn.
Óli Palli er verkefnastjóri tónlistar á Rás 2
Hvernig hefurðu það í dag?
Ég hef það ágætt. Það er mánudagur og
mér finnast mánudagar góðir dagar.
Hvenær byrjaðirðu fyrst að vinna í
fjölmiðlum?
Eg byrjaði að vinna hjá RÚV árið 1991.
Langaði þig að verða útvarpsmaður
þegar þú varst lítill?
Nei alls ekki, ég ætlaði að verða flugmað-
ur eins og allir eðlilegir ungir menn. Ég
átti flugmannahúfu og bláan samfesting
sem var nógu líkur flugmannabúningi
fyrir mig og svört gúmmístígvél og þá var
ég góður. Þá var ég flugmaður og svona
labbaði ég upp og niður götur Akraness í
flugmannabúningi.
Hvernig finnst þér að vinna í útvarpi?
Mér finnst það alveg frábært og finnst ég
ótrúlega heppinn að fá að vinna við þetta.
Mér finnst skemmtilegt að geta miðlað
tónlist til fólksins. Ef ég heyri eitthvað
skemmtilegt lag þá get ég komið því til
annarra, það er alveg stórkostlegt.
Hvað er það vandræðalegasta sem hef-
ur gerst fyrir þig í útsendingu?
Það er alltaf eitthvað vandræðalegt að
gerast en ég held að það vandræðaleg-
asta hafi verið þegar hljómsveitin Ný
dönsk kom og spilaði í Popplandi í beinni
útsendingu. Þetta var á föstudegi, sama
dag og þeirgáfu út plötuna sína Hús-
mæðragarðurinn. Ég var einn með þeim í
útsendingu og þetta var ekki minn besti
dagur. Ég mismælti mig nokkrum sinnum
og það var meira en Björn Jörundur
Friðbjörnsson þoldi þannig að þeir skildu
mig eftir í lausu lofti. Ég átti von á því að
þeir myndu spila eitt lag í viðbót en þeir
sögðu bara nei takk fyrir við ætlum ekki
að spila meira. Ég kallaði plötuna Húsdýra-
garðinn og eitthvað meira, þetta var allt
mjög vel meint hjá mér en ég mismælti
mig þrisvar sinnum og þeir urðu pirraðir.
Ég var í stúdíói niðri í kjallara og það var
enginn til að taka við útsendingunni. Nú
er Björn Jörundur byrjaður að vinna hér
hjá okkur á Rás tvö og við erum góðir fé-
lagar í dag.Við höfum reyndaralltafverið
það en það kemur svona einn og einn
dagur sem maður er óheppinn.
Hvað er uppáhalds sjónvarpsefnið
þitt?
Uppáhalds sjónvarpsefnið mitt eru
tóniistaþættir ýmis konar og heimildar-
þættir um tónlist. Ég var til dæmis að
horfa á Saint Barrett Story í gær. Það var
alveg frábært, þetta er skemmtilegasta
sjónvarpsefni sem ég horfi á. Uppáhalds
sjónvarpsþátturinn minn er líklega Later
with Jools Holland á BBC. Það er tónlista-
þáttur sem Björk og Sigurrós hafa meðal
annars komið fram í. Þetta eru mjög góðir
þættir þar sem það koma alltaf þrjár eða
fjórar hljómsveitir (hverjum þætti.
Hvað hlustar þú á í útvarpi?
Ég hlusta auðvitað daglega á Rás 2 og
Rás 1 þegar ég er að slappa af. Þá hlusta
ég á Útvarp Kántríbær þegar ég fer upp (
sumarbústað.
Charlotte
Church biður
um afslátt
Milljónamæringurinn Charlotte Church keypti sér tvo
sófa um daginn og þrátt fyrir að hún eigi milljón-
ir í banka þá bað hún um að fá vextina fellda niður.
Charlotte keypti sófana á 5.500 pund fyrir nýja 500.000 pundahúsið sitt.
Hún fékk tilboð á sófunum þar sem hún þarf ekki að byrja að borga fyrir
þá næstu tólf mánuðina. María, móðir Charlotte, hefur sagt að það sem
hún fái í stefgjöld af tónlist sinni munihún nota til að borga upp afborgan-
irnar. „ Af hverju ekki að notfæra sér góð tilboð? Ég held að búðarkonan
hafihaldið að égværi að grínastþegar égbað umvaxtalaust tilboð," sagði
Charlotte. Hún staðgreiddi nýja húsið og vonast til að geta flutt inn
fyrir jól.
I nívember
og 3 milljónir
" ■ ■■■ " _ rv
I skottinu á %>
tvöfaldan miða
Einfaldur miði kostar
aðeins 900 kr. á mánuði
Dregið fimmtudaginn 3. nóv. nk.
Síminn er 5017757
HAPPDRÆTTI
www.das.is