blaðið

Ulloq

blaðið - 05.11.2005, Qupperneq 2

blaðið - 05.11.2005, Qupperneq 2
2 I INNLEWDAR FRÉTTIR . LAUGARDAGUR 5. NÓVEMBER 2005 blaðið SUSHI T R H I n OPNAR1. DESEMBER [LÆKJARGATA] Prófkjör sjálfstæðismanna í Reykjavfk fyrir komandi borgar- stjórnarkosningar hófst í hádeg- inu í gær og stendur til klukkan 18:00 í kvöld. í gær var öllum þeim sem höfðu kosningarétt frjálst að kjósa í Valhöll og í dag opnuðu síðan sjö aðrir kjörstaðir í átta kjörhverfum. Allir félags- bundnir stuðningsmenn Sjálf- stæðisflokksins sem náð hafa 16 ára aldri geta kosið í prófkjörinu. Mikil endurnýjun framundan Um fimmleytið f gær höfðu 1.600 manns komið í Valhöll til að kjósa auk þeirra 1.200 sem þá þegar höfðu greitt atkvæði sín utan kjörfundar. Tólf manns eru í borgarstjórnar- flokki Sjálfstæðismanna og sækjast sex þeirra, þrír borgarfulltrúar og þrír varaborgarfulltrúar, ekki eftir endurkjöri að þessu sinni og því er ljóst að töluverð endurnýjun verður í forystusveit flokksins. Alls eru tutt- ugu og fjórir frambjóðendur í kjöri, Prófkjör Sjálfstœðismanna t Reykjavík Meiri þátttaka en í síðustu prófkjörum Gísli Marteinn Baldursson greiðir atkvæði í Valhöll í gær Blaðið/frikki nítján karlar og fimm konur og geta Margir litlir slagir kjósendur merkt við níu þeirra á at- Mikill spenna er fyrir prófkjörinu kvæðaseðli sínum. enda er hart barist um efstu sæti á listanum. Ötröð skapaðist fyrir utan Valhöll í gær þar sem margir vildu komast að til að styðja sína menn. Fjölmargir hafa gengið í Sjálfstæðis- flokkinn í Reykjavík að undanförnu og eru flokksfélagar nú orðnir um 19.000 að sögn Ágústs Ragnarsson- ar á skrifstofu Sjálfstæðisflokks- ins. Það er aukning um tæplega 2000 manns frá því að landsfundi flokksins lauk þann 16. október síð- astliðinn. 1 síðustu sveitarstjórnar- kosningum voru um 17.500 manns á kjörskrá. Ágúst segir að þetta sé aukning í hærri kantinum og meiri en hann muni eftir í þó nokkurn tíma. Hann segist halda að ástæð- urnar að baki þessum mikla áhuga séu þær að meiri barátta sé um efstu sæti á listum flokksins en ver- ið hefur í undanförum prófkjörum hjá flokknum. „Þarna eru margir litlir innanfélags slagir. Stóra kapp- hlaupið er svo Reykjavíkurmótið í vor,“ segir Ágúst og skírskotar þar til borgarstjórnarkosninganna í maí næstkomandi. ■ Utandagskrárumrœða umfjölgun öryrkja Bensínstyrk- ur verður ekki afnuminn Ólafur Ólafsson, formaður Lands- ið.“ Jón Kristjánsson, heilbrigðisráð- sambands eldri borgara segist fagna herra lýsti því yfir á Alþingi í gær að því mjög að bensínstyrkur verði svokallaður bensínstyrkur verður ekki afnuminn hjá ellilífeyrisþeg- ekki afnuminn. Þetta kom fram í um og öryrkjum. „Það eru gleði- utandagskrárumræðu um fjölgun fregnir og skiptir marga miklu máli. öryrkja hér á landi. Helgi Hjörvar, Þetta er nú með því ánægjulegra þingmaður Samfylkingarinnar, hóf sem maður hefur heyrt varðandi þessa umræðu og hann fagnaði þess- þessi mál og vonandi sjáum við ljós- ari yfirlýsingu Jóns sérstaklega. ■ Árskógssandur: Framleiðsla á ey firskum bjór fyr- irhuguð Til stendur að reisa bruggverksmiðju á Ársskógssandi. Fjármögnun er að mestu lokið og fyrirhugað að selja afurðina í verslunum ATVR. Ekki er ætlunin að keppa beint við stóru framleiðendurna hér á landi, heldur er miðað við að selja sérstæðan bjór á flöskum. Agnes Sigurðardóttir er ein aðstandenda verkefnisins. „Hug- myndin fæddist í sumar. Bjór er orð- inn gríðarlega vinsæll og vatnið er gott svo okkur fannst þetta sniðug hugmynd. Nú er þetta komið svona langt á veg og við miðum við að næsta sumar geti fólk komið hingað og dreypt af miðinum okkar. Brugg- húsið verður reist hér og við munum opna hér sveitakrá, en verksmiðjan mun bera heitið Bruggsmiðjan. Bruggmeistara fáum við frá Evrópu en það mál er í skoðun. Verksmiðjan verður sýnileg, ferðamenn geta geng- ið í gegn og fengið að smakka, og svo sest inn á pöbbinnAgnes segir að útlit og þessháttar sé í vinnslu og komið á bjórinn. „Þetta verður hefðbundinn lagerbjór í kringum 5%. Við höfum kynnt okkur þessi mál í Danmörku en erum á leið til Tékklands þar sem við munum hitta mann sem hyggst gera tilboð í byggingu brugghússins. Ef það gengur eftir munu koma hing- að til lands sérfræðingar á þessu sviði til að reisa húsið.“ Agnes seg- ir vonir standa til að framkvæmdir geti hafist strax í janúar, ef veður leyfir. ■ Óska eftir stuðning í sms skilaboðum Margvíslegar leiðir hafa verið notaðar til að hvetja kjósendur Sjálfstæðisflokksins til að mæta á kjörstað. Reykvíkingar hafa eflaust fundið fyrir því að mik- ið er um símtöl síðla kvölds en aukþess hafa frambjóðendur leitað nýrra leiða. Bæði Bolli Thoroddsen og Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson hafa sent sms- skilaboð í farsíma þeirra sem eru á kosningaskrá Sjálfstæð- isflokksins og hvatt þá til að sýna stuðning á kosningadag. Misvísandi skoðana- kannanir Samkvæmt könnun sem 365 nýmiðlun gerði fyrir stuðningsmenn Gísla Mar- teins Baldurssonar síðast- liðinn fimmtudag þá vildu 52,6% þeirra sem svöruðu frekar sjá Gísla Martein sem borgarstjóra en Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson. Þá sögðust 47,4% frekar vilja Vilhjálm en Gísla Martein. Úrtakið voru Reykvíkingar á aldrinum 16-75 ára. Þessi niðurstaða er í mikilli mótsögn við nið- urstöðu skoðanakönnunar sem IMG Gallup gerði fyrir stuðningsmenn Vilhjálms dagana 26-31 október. Þar var Vilhjálmur Þ. sagður njóta meiri stuðnings til að leiða lista Sjálfstæðismanna í Reykjavík. Þá nefndu 60,7% aðspurðra Vilhjálm sem vænlegri kost en einung- is 39,3% Gísla Martein. Jarðskjálfta- hrina við Grímsey Snörp jarðskjálftarhrina átti sér stað um 15-20 kflómetra austur af Grímsey um klukkan 14:40 í gær. Fjórir skjálftar gengu yfir á um 20 mínútum og mældust af stærðinni 3-3,5 á richter auk þess sem allmargir smærri skjálftar fylgdu í kjölfarið. Eftir klukkan 15 dró þó verulega úr virkninni og búist var við því að smám saman myndi hægjast um þegar liði á daginn. Opið virka daga: 10-18, lau: 11-15 Reykjavík: Mörkin 4, s: 533 3500 -V. Gæða sængur og heilsukoddar. O HeiSskírt 0LWWÍW ® SkýiaS • fllskyjað /' Rigning, Iftllsháttar /// Rigning ? ? Súld * 'í' Snjókoma Ú7 Slydda r~, ' v v Snjóél 1 Skúr isterdam rcelona nkfurt nborg ipmannahöfn rYork khólmur 13 20 14 12 13 13 09 13 13 12 22 03 11 17 10 13 11 06 11 18 09 11 ?1 // 4° / // 3° Veðurhorfur í dag kl: 18.00 Veðursíminn Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu íslands -1 -2e 9 Qe Breytileg '// / // ' s / / /• " 1o ■'/ 1 / / Á morgun %- (* -2°

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.