blaðið - 05.11.2005, Side 4
4 I INNLENDAR FRÉTTIR
LAUGARDAGUR 5. NÓVEMBER 2005 blaðiö
Forsœtisráðherra:
Engar heimildir í gildi um
yfirflug eða lendingar
Össur Skarhéðinsson segir að íslensk stjórnvöld hafi veitt formlegt leyfi til aðfljúga með meinta hemdarverka-
menn um ísland. Halldór Ásgrímsson segir það út í hött.
Össur vísar í yfirlýsingu Davíðs Odd-
sonar sem birt er á vefsíðu Hvíta húss-
ins í mars 2003. Þar er gefin heimild
fyrir flugi um íslenska lofthelgi og til
millilendinga. Össur krefst þess að
þessi heimild verði afturkölluð. For-
sætisráðherra segir fráleitt að tengja
yfirlýsinguna við fangaflugvélar á
vegum CIA. „Það er algjörlega út í
hött. Yfirlýsingin kemur þessu máli
ekkert við,“ segir Halldór. „Við höf-
um samþykkt hér yfirflug, það átti
við um Afganistan, Bosníu, Kosovo
og aðgerðirnar í Irak. En það er frá-
leitt að tengja þessar yfirlýsingar
saman við óskylt mál. 1 öllum þeim
tilvikum sem ég nefndi áðan átti það
við um tilteknar aðgerðir, sem lauk
einhverjum vikum síðar, og þar af
leiðandi eru þær fallnar úr gildi.“
Ólöglegt fangaflug
stenst enga skoðun
„Vefsíða Hvíta hússins skiptir engu
máli í þessu sambandi. Þessi yfirlýs-
ing á ekkert við um þetta stríð gegn
hryðjuverkum. Það liggur hinsveg-
ar fyrir að langflestar þjóðir heims
hafa myndað bandalag í baráttunni
gegn hryðjuverkum og það bandalag
stendur af okkar hálfu. Það er verið
að framselja fanga á milli landa með
eðlilegum og löglegum hætti og það
á við um okkur eins og aðra. En það
að flytja fanga til annarra staða til
þess að komast undan einhverjum
reglum stenst enga skoðun. Við Is-
lendingar erum bundnir af mann-
réttindasáttmála Evrópu og sátt-
mála Sameinuðu þjóðanna í þessum
efnum. Það er engri þjóð sem aðild
BlaÖið/SteinarHugi
á að þessum sáttmálum heimilt að
gera slíka hluti og við skulum vona
að það hafi ekki gerst.“ Halldór segir
íslensk stjórnvöld fylgjast með fanga-
flugsmálinu og þeim fréttum sem
borist hafa um leynileg fangelsi. „Ég
tel mjög mikilvægt að menn gangi í
málið og ef kemur í ljós að eitthvað
slíkt hafi átt sér stað þoli það enga
skoðun. Við íslendingar, frekar en
aðrar þjóðir viljum enga aðild eiga
að því.“
Veit ekkert um lendingar
fangavéla hér á landi
Halldór segir ekkert liggja fyrir
um meintar lendingar fangaflug-
véla á vegum CIA hér á landi. „Ég
veit ekkert meira um það. Það ligg-
ur fyrir að hér fer um borgaralegt
SJOVA
Sjóvá bætir öryggi barna
Nokkrir hressir piltar af Leikskóladeildinni í Sjálandsskóia í Garðabæ í endurskinsvest-
um frá Sjóvá en félagið hefur á síðastliðnum þremur árum dreift endurskinsvestum í
leikskóla. Gjöfin er liður í víðtæku forvarnarstarfi Sjóvá en með henni vill félagið leggja
sitt af mörkum til að bæta öryggi barna í umferðinni.
flug, og við eigum enga möguleika
á að vita nákvæmlega hverjir eru far-
þegar í því flugi. En miðað við það
sem komið er fram þá verða menn
að sjálfsögðu á varðbergi í þeim efn-
um, en það er ekkert meira um það
að segja, á þessu stigi málsins. Við
teljum að slík mál þoli enga skoð-
un og við viljum enga aðild eiga að
slíku. Ég held að það sé ekkert hægt
að segja það skýrar. Við erum aðilar
að alþjóðlegum sáttmálum sem við
að sjálfsögðu virðum og höfum ver-
ið í farabroddi um að setja. Okkar
afstaða er því alveg ljós.“ ■
Ríkissjóður:
Skatttekjur
aukast
Greiðsluafkoma ríkissjóðs var
jákvæð um ríflega 20,5 milljóna
króna á fyrstu 9 mánuðum árs-
ins. Skatttekjur frá ársbyrjun til
septemberloka námu rúmlega
228 milljónum króna, sem jafn-
gildir 22% aukningu milli ára.
Aukning skatttekna á sér rætur
í nær öllum helstu skattstofn-
um, t.d. hækkaði innheimtur
tekjuskattur um nánast 10% frá
fýrra ári. Fjármagnstekjuskattur
tvöfaldaðist milli ára en taka
ber þeim tölum með fyrirvara
vegna óreglulegrar innheimtu
sl&ra skatta. Gjöldin jukust
hins vegar um 4,7% á sama
tímabili, ef undan er skilinn
einskiptiskostnaður vegna
sölu Símans og innlausnar
spariskírteina. Hröð aukning
hefur orðið milli ára í tekjum
ríkissjóðs vegna þess upp-
gangs sem nú er í hagkerfinu.
í mömmuleit <
Ætli fílamamma sé best - eða
kaimski kr ókó dílamamma ? *
Hlý og falleg saga fyrir yngstu
bömin um mömmur af öllu tagl,
Spennandi kvöld
Skemmtileg saga um Hræðslupúkann, Öskurapann,
Óþekktarormana og fleiri skrýtnar skepnur.
Frumleg og glæsileg bók eftir verðlaunahöfund.
ÁiUug iónidóttlr
Mál og mennlng
edda.is
SEKSY kvenmannsúr meö svartri eða bleikri skífu.
Armbandsólin er úr svörtu/ Ijósu leðri settri Swarovski
kristöflum sem einfalt er að minnka eða staekka að vid.
Útsölustaðir:
Jens Kringlunni • Gilbert úrsmiður Laugavegi 62 ■ Helgi Sigurósson úrsmiður
Skólavörðustíg 3 ■ Georg Hannah úrsmiður Keflavik ■ Guðmundur B. Hannah
úrsmiður Akranesi ■ Úra- og skartgripaverslun Karls R. Guðmundssonar Selfossi