blaðið - 05.11.2005, Síða 10

blaðið - 05.11.2005, Síða 10
10 I ERLENDAR FRÉTTIR LAUGARDAGUR 5. NÓVEMBER 2005 blaöiö Libby segist saklaus Lewis Libby kveðst vera saklaus aföllum ákceruliðum en hann gœti áttyfir höfði sér allt að 30 ára fangelsi. Réttarhöld munu reynast ríkisstjórn George Bush erfið og háttsettir menn innan hennar verða hugsanlega kallaðir til vitnis. I. Lewis Libby, fyrrverandi starfs- mannastjóri Dick Cheneys, varafor- seta Bandaríkjanna, lýsti í gær yfir sakleysi sínu fyrir framan dómara vegna CIA-lekamálsins svokallaða. Libby var ákærður fyrir að hafa hindrað framgang réttvísinnar, meinsæri og að hafa sagt ósatt við yfirheyrslur. Libby kvaðst vera sak- laus af öllum ákæruliðum en hann gæti átt yfir höfði sér allt að 30 ára fangelsisdóm verði hann sekur fund- inn. Libby sagði af sér í síðustu viku í kjölfar ákærunnar og sagði Ted Wells, lögfræðingur hans, að hon- um væri í mun að hreinsa nafn sitt. Titringur innan ríkisstjórnarinnar Ákærurnar á hendur Libby hafa valdið titringi innan ríkisstjórnar George Bush ekki síst þar sem rann- sókn stendur enn yfir á þætti Karl Rove, eins helsta ráðgjafa forsetans. Ennfremur hefur málið beint kast- ljósinu á ný að röksemdafærslu ríkis- stjórnarinnar fyrir innrásinni í írak. Talið er að réttarhöld muni reynast stjórninni erfið og að háttsettir menn innan hennar, þar á meðal Dick Cheney, verði kallaðir til vitnis. Rove ekki sloppinn Dagblaðið Washington Post sagði á fimmtudag að Patrick Fitzgerald, sérskipaður saksóknari í málinu, væri að íhuga að leggja fram ákærur á Rove fyrir að hafa sagt ósatt við yfirheyrslur. í greininni sagði enn- fremur að innan Hvíta hússins væru menn að velta fyrir sér framtíð Ro- ves og jafnvel hefði komið til tals að Bush losaði sig við hinn nána banda- mann sinn til að koma í veg fyrir frekara tjón vegna CIA-lekamálsins. Scott McClellan neitaði að tjá sig um „vangaveltur" um framtíð Roves. Til að bæta gráu ofan á svart birt- ist ný skoðanakönnun CBS-sjón- varpsstöðvarinnar sama dag sem meðal annars sýndi að aðeins 35% almennings bæri traust til forsetans og hefur hann aldrei verið óvinsælli síðan hann tók við embættinu árið 2001. ■ I. Lewis Libby hlustar á Ted Wells, lögfræðing sinn, tala viö fjölmiðlafólk fyrir utan dóms- húsiö í Washington í fyrradag. Kínverjar senda Evrópusambandinu skýr skilaboð: Vilja að vopnasölubanni verði aflétt Kínverjar segja að vopnasölubann Evrópusambandsins á landið sem staðið hefur í 16 ár hafi neikvæð áhrif á viðskipti og að því ætti að af- létta. Búast má við að málið beri á góma í viðræðum Hu Jintao, forseta Kína, við leiðtoga ríkja Evrópusam- bandsins í næstu viku. Li Zhaoxing, utanríkisráðherra Kína, ítrekaði andstöðu stjórnvalda við bannið á fundi með fjölmiðlum. ,Allir leiðtogar Evrópusambandsins sem ég hef hitt telja að bannið sé arf- leið Kalda stríðsins, sé byggt á slæm- um grundvelli, komi engum að gagni og valdi aðeins skaða,“ sagði Li og bætti við að því hefði átt að henda í ruslið fýrir löngu síðan. Heimsókn Hus til Bretlands, Þýskalands og Spánar hefst á þriðju- dag en þaðan mun hann halda til Suður Kóreu þar sem hann mun sækja leiðtogafund Efnahagssam- vinnustofnunnar Asíuríkja. Þjóðir ESB ekki sammála Vopnasölubannið hefur verið eitt af meginumfjöllunarefnum á fund- um leiðtoga Evrópusambandsins og Kína á síðustu árum. Frakkar og Þjóðverjar hafa hvatt til þess að bann- inu verði aflétt en Bretar og aðrar þjóðir Evrópusambandsins eru því ósammála. Þær bera við áhyggjum Bandaríkjamanna af öryggi á Kyrra- Li Zhaoxing, utanríkisráðherra Kfna, ítrekaði andstööu Kínverja viö vopnasölubann Evrópusambandsins og hvatti til þess að því yrði aflétt á fundi t gær. hafssvæðinu, ekki síst vegna Taívan. Kínversk stjórnvöld segjast ekki hafa áhuga á að kaupa vopn frá ríkj- um Evrópusambandsins heldur séu þau á móti banninu af grundvallar- ástæðum. Vopnasölubanninu var komið á eftir að kínversk stjórnvöld bældu af hörku mótmæli stúdenta á Torgi hins himneska friðar í Peking árið 1989. ■ Ráðist á lögreglumenn Að minnsta kosti sex lögreglu- menn féllu og ío særðust í árás á eftirlitsstöð í bænum Buhriz fyrir norðan Bagdad í gær. Upp- reisnarmenn, vopnaðir vélbyss- um og sprengjum, sátu fyrir lögreglumönnunum og réðust á þá úr öllum áttum snemma morguns. „Við vissum ekki hvaðan skothríðin kom,“ sagði lögregluforingi sem lifði af skot- árásina sem stóð í 15 mínútur. „Við skutum á móti en vissum ekki að hverju eða hverjum." Skar af sér fingur og ók á tré Hollenskur tannlæknir sem skar af sér fingur og sviðsetti bílslys í því skyni að reyna að svíkja fé út úr tryggingafélagi hefur verið dæmdur í skilorðs- bundið fangelsi og til greiðslu sektar fyrir uppátækið. Mað- urinn sem er fimmtugur ók á tré eftir að hafa skorið af sér fingurinn í þeirri von að geta sannfært rannsóknarmenn tryggingafélagsins um að stýri bílsins hefði valdið skaðanum. Nákvæm rannsókn á áverkum mannsins og vettvangi slyssins sýndi hins vegar svo að ekki varð um villst að hann hefði ekki getað misst fingurinn í slysinu. „Þetta var ekki slys heldur aflimun sem hann framkvæmdi sjálfur eða fékk einhvern til að gera fyrir sig,“ sagði talskona dómstólsins. Maðurinn hafði vonast til að fá 1,8 milljón evra út úr trygg- ingafélaginu fyrir uppátækið en þarf þess í stað að greiða 25.000 evra sekt auk þess sem hann hlaut sex mánaða skilorðsbundinn fangelsisdóm. Frabær verð hagkvæmustu jólainnkaupin Erum að taka upp nýjar vörur í verslun Eldhúsáhöld^Fatnaður Gjafavara/Klukkur Leikföng/Ljós Skartgripir,Snyrtigræjur úr, útvörp ofl.ofl ARGOS listinn FRÍR * MEÐAN BIRGÐIR ENDAST Verslun B. Magnússon Austurhrauni 3/ KAYS s:555-2866 www.bmagnusson.is bm@bmagnusson.is Opið virka daga 10-18 laugardaga 11-14 demetra Skólavörðustíg 21a Sími 551 1520 fjlœsilegur kristall, handunniS íslenskt gler og aSrar gjajavörur V______________J V "á J jfrábœrt verS, mikiS úrual

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.