blaðið - 05.11.2005, Blaðsíða 22
22 I BÆKUR
LAUGARDAGUR 5. NÓVEMBER 2006 blaöiö
Danadrottning
og tengdadóttirin
„Já, nú stendur allt í blóma." segir Danadrottning i brúðkaupsveislu Friðriks og Mary
Bókin Margrét, persónuleg
frásögn Danadrottningar af
óvenjulegri ævi eftir Annelise
Bistrup, er komin út hjá forlag-
inu Tara. Bókin er 280 síður og
prýdd fjölda ljósmynda. í þessum
kafla segir Margrét Þórhildur
opinskátt frá því þegar hún hitti
tengdadóttur sína, Mary Donald-
son, í fyrsta sinn.
„Ég hef alltaf álitið að það yrði að
koma af sjálfu sér hverja Friðrik og
Jóakim hittu - og fyndu, en ég ýjaði
líka að því þegar þeir voru yngri,
að það væri ekki óviturlegt, ef þeir
kvæntust stúlkum frá öðrum lönd-
um. Fyrir því er löng hefð í ættinni
- og fyrir því er góð og gild ástæða.
Vissulega neyðist viðkomandi til
að læra málið og það er ekki alltaf
jafn auðvelt að gera Dönum til hæfis
- svona málfarslega séð, en stúlkan
er þá heldur ekki með það sem Eng-
lendingar kalla „strings attached”.
Vitanlega eiga allir einhverja fortíð
en hún gengur þá ekki meðal okkar
á götunni. Að öðru leyti á ekki að
vera að skipta sér af þessu. Drengirn-
ir hafa vitað hvers krafist var stjórn-
skipulega séð og þeir vissu að ég
þurfti að veita samþykki mitt í ríkis-
ráðinu. Sem betur fer gerðu þeir mér
það auðvelt. Við höfðum frá upphafi
miklar mætur á Alexöndru prins-
essu og Mary krónprinsessu.
Ég hitti Mary Donaldson í fyrsta
skipti sumarið 2003. Friðrik hringdi
í mig síðdegis. „Mamma, lítur þú
við hjá mér í tebolla?“ „Er það vegna
þess að þig langar til að ég hitti
Mary?“ „Já, einmitt.“ „Mig langar
mjög mikið til þess.“
Ég var glöð og mjög spennt, en
ekkert sérstaklega óróleg. Það sem
ég hafði séð til ótrúlegrar háttvísi og
hæglátrar framkomu Mary - þrátt
fyrir mjög svo uppáþrengjandi for-
vitni fjölmiðlanna - sýndi mér að
það hlaut að vera eitthvað alveg sér-
stakt við þessa stúlku.
Þótt valið sé með hjartanu, þarf
fólk ekki að taka heilann úr sam-
bandi. Það er það góða við þetta.
Krónprinsinn var að verða 36 ára
þegar hann gekk í hjónaband. Það
kom mér ekkert á óvart að það
tók Friðrik nokkur ár að ná þessu
þroskastigi. Móðir mín, sem var
vitur kona, sagði alltaf: „Friðrik á
eftir að finna þá réttu. Hafið engar
áhyggjur af því.“
Með þessu teboði var Friðrik að
segja mér frá því á óyggjandi hátt,
að hann hefði hitt stúlku sem hann
langaði í raun og veru að eiga. Hin-
rik prins hafði hitt Mary við annað
tækifæri, en nú var ljóst að þetta var
rammasta alvara.
Síðar, yfir jólin á Marselísborg,
fengum við tækifæri til að kynnast
Mary nánar, í tvo heila daga í faðmi
fjölskyldunnar, þar sem við vorum
öll og hegðuðum okkur jafn vel eða
kjánalega og við nú gerum. Við átt-
um ekki bara að vega hana og meta.
Hún átti líka að sjá í hvers konar
fjölskyldu hún væri komin og gera
upp við sig hvort hún þyrði að binda
trúss sitt við slíkt fólk.
Ég geng út frá því að þeim þyki
vænt um hvort annað. Það er gefið
mál nú til dags. Það var það líka
þegar foreldrar mínir giftu sig (Ingi-
ríður drottning var af Bernadotte-
ættinni, dóttir Gústafs Adólfs V Svía-
konungs), en mömmu verkefni var
líka að veita pabba þann stuðning
sem hann þarfnaðist. Það fellur ým-
islegt til, þótt engin sé starfslýsingin,
því þetta er 24 tíma vinna á dag, all-
an ársins hring. Þetta var það sem
Mary átti að bindast.
Friðrik er betur undir lífið búinn
en pabbi var, vegna þess að Friðrik
hefur lifað miklu fjölbreyttara og
frjálsara lífi en pabbi fékk tækifæri
til. Ég held að Friðrik eigi eftir að
verða Mary mjög góð stoð. Und-
anfarin ár hefur hann öðlast það
innra öryggi sem er nauðsynlegt til
þroska. Svo hittir hann Mary á hár-
réttum tíma - og býr yfir hugrekki
til að gefa því tækifæri, en samt ekki
kasta sér út í neitt, fyrr en þau væru
bæði viss.“
Eltingaleikur slúðurblaðanna
Þetta síðdegi í Amalíenborgarhöll er
það þroskuð ungkona, sem ersátt
við sjálfa sig, ígóðu jafnvœgi ogafar
ástfangin afFriðriki, sem drottning-
in drekkur te með.
„Það má vel vera að Mary hafi þótt
þetta svolítil prófraun, en ég reyndi
að gera allt til þess að henni liði
ekki eins og hún hefði verið spurð
útúr. Maður spyr ekki spurninga á
þann hátt. Það gera menn ekki! Ég
er að minnsta kosti ekki þannig. Ég
er heldur ekki þannig gerð að vilja
troða góðum ráðum upp á fólk. Við
ræddum vítt og breitt og ég vonaðist
eftir þvi að ég gæti sagt eitthvað sem
skipti máli og hún gæti nýtt sér. Til
að byrja með skipti það mestu máli
að Mary fyndi, að hún væri hjart-
anlega velkomin. Maður á ekki að
vera nærgöngull, en Mary er búin
að missa móður sína og ég hugsaði
með mér, að ef ég gæti á einhvern
hátt komið í hennar stað, þá langaði
mig mikið til þess. Ég vildi að Mary
vissi að ég væri til staðar ef hún
þarfnaðist mín.“
Hvað Mary krónprinsessu varðaði,
varþað risaskref, að stíga út úr lítt
áberandi áströlsku lífi sínu og inn í
óvcegið kastljós fjölmiðlanna.
„Það er ljóst að það hefur verið yfir-
þyrmandi fyrir báðar tengdadætur
okkar að upplifa eltingaleik slúður-
blaðanna. Hann getur á stundum
orðið verulega Ijótur, en að mínu
mati hafa þær staðið sig með prýði.
Þetta eru greindar ungar konur, báð-
ar tvær.
Þegar við Hinrik giftum okkur var
okkur sem betur fer hlíft við verstu
hliðum afar ágengra fjölmiðla. í
dag hafa mörkin fyrir því hve ná-
lægt fjölmiðlarnir koma, færst enn
nær. Hvað er til ráða? Sjálf sé ég
ekki aðra úrkosti en að sleppa því
að spila með. Á hinn bóginn tel ég
líka, að í Danmörku eigum við okk-
ur mennskara líf en sumir aðrir þjóð-
höfðingjar, vegna þess að hér koma
fjölmiðlar þrátt fyrir allt fram við
okkur á mannsæmandi hátt. Ég hef
sem betur fer aldrei reynt fjölmiðla
að illkvittni.“
Nú stendur allt í blóma
Þann 14. maí 2004 gengu Mary
Elizabeth Donaldson og Friðrik
krónprins af Danmörku í hjónaband
í Frúarkirkju í Kaupmannahafnar-
biskupsdæmi. Brúðhjónin viknuðu
og sömuleiðis milljónir danskra og
evrópskra áhorfenda sem fylgdust
með atburðinum. Tvær manneskjur
sem elska hvor aðra láta engan
ósnortinn.
1 ræðu sinni í brúðkaupsveislunni
í Fredensborgahöll kom drottningin
með örlitla viðvörun, ekki einung-
is til brúðhjónanna, heldur líka til
hinnar brúðkaupsölvuðu dönsku
þjóðar:
„Já, nú stendur allt í blóma. Allir
umhverfis ykkur eru glaðir og fagn-
andi, en hér er ekki eilíft sumar, það
getur komið bæði rigning og slag-
veður. Og þrátt fyrir ferskan and-
vara getur stundum verið þröngt í
danska skrúðgarðinum, hvað svo
sem hann er snotur að sjá.“
Fyrsta barn krónprinshjónanna, 15
marka drengur, fæddist þann 15. okt-
óber 2005.
Hjónin stíga dans í veislunni