blaðið - 18.11.2005, Blaðsíða 13

blaðið - 18.11.2005, Blaðsíða 13
blaöiö FÖSTUDAGUR 18. NÓVEMBER 2005 ERLENDAR FRÉTTXR I 13 Sekt fyrir slæma hár- greiðslu Eigendur hárgreiðslustofu í Tókýó hafa verið dæmdir til greiðslu hárrar fjársektar í miskabætur fyrir að hafa klippt hár konu einnar of stutt og litað það í þokkabót í öðrum ht en hún hafði beðið um. Dómstóllinn tók undir rök konunnar sem er 27 ára og vinnur við að taka á móti gestum skemmtiklúbbs um að hin óaðlaðandi hárgreiðsla hefði mikil áhrif á getu hennar til að sinna starfi sínu sem skyldi. „Hárgreiðla hefur mikil áhrif á útlit,“ sagði Yuki Miz- uno, dómari, í úrskurði sínum. Konan kvartaði undan því að á tímabili hefði dregið verulega úr sjálfstrausti hennar þegar hún þjónaði viðskipta- vinum og hafði hárgreiðslan mikil áhrif þar á. Hún fór fram á 6 mhljónir jena (um 3 milljónir íslenskra króna) í miskabætur en rétturinn féllst á sekt upp á 240.000 jen (um 120.000 íslenskra króna). Ung Parísardama mótmælir slæleg- um viðbrögðum ríkisstjórnarinnar við óeirðunum í landinu. .JP " ,j Ástandið að komast í eðli- legt horf Ástandið í Frakklandi virðist vera að komast í samt horf eftir óeirðir sem hafa geisað í landinu í nærri þrjár vikur. Kveikt hefur verið í um 9000 ökutækjum í óeirðunum og nærri 3000 manns verið hand- teknir. Aðfaranótt fimmtudags var á fjórða tug manna hand- tekinn og kveikt var í tæpum hundrað bílum á nokkrum stöðum í landinu sem að vísu var mun minna en fyrri nætur. Þrátt fyrir að ofbeldið sé í rénun er enn sem fyrr mikill viðbúnaður í landinu og þúsundir lögreglumanna í viðbragðsstöðu á hverju kvöldi. 1 fyrradag samþykkti ffanska þingið að neyðarlög yrðu í gildi í landinu í þrjá mán- uði til viðbótar. Samkvæmt nýrri skoðanakönnun er stór hluti þjóðarinnar sáttur við framgöngu Nicolas Sarkozy, innanríkisráðherra landsins, f málinu. Aðrir hafa látið í ljósi mikla óánægju með hversu seint og illa ráðamenn þjóðar- innar brugðust við ástandinu í landinu og á miðvikudags- kvöld kom mannfjöldi saman á Saint-Michel torgi í París til að láta óánægju sína í ljósi. Myndbandfrá Jemaah Islamiah-samtökunum finnst á Indónseíu: Hryðjuverkum hótað í Ástraliu Maður sem talinn er vera einn af alræmdustu hryðjuverkamönnum í Asíu hótaði árásum á vesturlönd í myndbandi sem sýnt var í sjónvarpi á Indónesíu í gær. Talið er að maður- inn sé Malasíumaðurinn Noordin M. Top, háttsettur foringi í Jemaah Islamiah, hryðjuverkasamtökum í Suðaustur Asíu sem hafa tengsl við A1 Kaída-samtökin. Myndbandið fannst við áhlaup lögreglu á eyj- unni Jövu í síðustu viku sem leiddi til dauða Azahari bin Husin, helsta sprengjusérfræðings Jemaah Islam- iah-samtakanna. Bæði Husin og Top hafa verið eftirlýstir af lögreglu síðan 202 fórust í sprengitilræði á Bali, þar á meðal 88 Ástralir. Láta ekki kúga sig til undirgefni Á myndbandinu sem lögregla fann í síðustu viku segir grímuklæddur maður að Bandaríkin, Bretland og Ítalía séu öll í hópi óvina en sérstak- lega beinir hann þó orðum sínum að Áströlum og segir að yfirvöld þar kalli yfir sig hryðjuverkaaðgerðir. Alexander Downer, utanríkisráð- herra Ástralíu, sagði að stjórnvöld í landinu tækju myndbandið alvar- lega en myndu ekki láta kúga sig til undirgefni. „Ekkert lýðræðisríki á borð við Ástralíu ætti að láta öfga- menn á borð við Noordin Top hræða sig,“ sagði Downer. ■ Maður sem talinn er vera einn helsti leið- togi Jemaah Islamiah-samtakanna hótaði hryðjuverkaárásum i Ástralíu í nýlegu myndbandi sem fannst á Indónesíu. Hjörtur Nielsen Höfum opnað á nýjum stað í Smáralind Matarstell • Diskar • Glös • Könnur • Skálar • Hnífapör • Föt • Blómavasar • Karöflur • Gjafavara [ \ u L y Verslunin er full af nýjum og fallegum vörum fyrir þig og þína! Þeir sem eru á netfangalistanum okkar hnm@simnet.is eöa skrá sig á hann núna í nóvember fá jólagjöf frá Hirti Nielsen. Smáralind • sími 553 6622 • www.hjortur.is

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.