blaðið - 18.11.2005, Blaðsíða 32
32 I TRÚMÁL OG HEIMSPEKI
FÖSTUDAGUR 18. NÓVEMBER 2005 blaðÍA
Heimspeki Hómers...
Simpson, það er að segja
•Tengingin milli teiknimyndahetj-
unnar Hómers Simpson og forn-
gríska heimspekingsins Aristóte-
lesar er óljós í hugum flestra, enda
venjan að bendla þann fyrrnefnda
frekar við bjórdrykkju, ofát og
kjánalæti og þann síðarnefnda við
markhyggju og að leggja grunn
dyggðasiðfræðinnar, svo fátt eitt sé
nefnt. Engu að síður höndlar inn-
gangsgrein hinnar stór
skemmtilegu The
Simpsons and Philo-
sophy - The D’oh!
'of Homer um þessa
tvo menn; þar freistar
heimspekiprófessorinn Raja
Halwani þess að meta Hómer
eftir dyggðaboðum Aristóte-
lesar. Tekur Rawani margvísleg
dæmi úr þáttunum af hegðun Hóm-
ers við hinar og þessar aðstæður
og kemst að lokum að þeirri nið-
urstöðu að þó heimilisfaðir Simp-
son-fjölskyldunnar geti ekki undir
neinum kringumstæðum talist
dyggðugur maður, þá hafi hann
til að bera ýmsa eiginleika sem Ar-
istóteles hefði vel fellt sig við, ekki
síst ríka og djúpa ást á lífinu sjálfu.
Bókina um Simpson-fjölskylduna
og heimspeki mætti vissulega telja
nokkuð akademískt vafasama, enda
kannski ekki venjan að byggja
lærðar ritgerðir á skrípó. Sá
sem drægi þá ályktun
væri hins vegar að
vanmeta hina
mikilsvirku
handrits-
höf-
unda
þ á 11 a n n a
sem og slag-
kraft teiknimynda-
fjölskyldunnar í vest-
rænni menningu. Flestir
sem horft hafa geta vottað að
Simpson fjölskyldan fer oft langt
frá því að vera venjulegt skrípó og er
þess í stað vel skrifuð ádeila á nútíma-
þjóðfélag, krydduð margvíslegum
menningarlegum vísunum (og um
þetta fjallar einmitt ein greinin í
bókinni góðu). Heimspekin er svo
nær
öll
þeim
kostum
p r ý d d
að geta
höndlað um
viðfangsefni í ...
heiminum - þegar hún hefur úr
eins öflugu efni og sjálfum Hómer
Simpson að moða verður útkoman
oft stór-glæsileg.
Prakkararnir Nietzsche og Bart
Bókin, sem tileinkuð er þeim Troy
McClure og Lionel Hutz, skiptist í
fjóra hluta eftir viðfangsefnum. 1
þeim fyrsta eru meðlimir fjölskyld-
unnar teknir fyrir, einn í einu,
Hómer er teflt móti Aristótelesi, dótt-
irin Lísa er tekin sem dæmi í
umfjöllun um um banda-
ríska and-vitsmuna-
hyggju og Bart borinn
saman við annan
frægan prakkara, F.W.
Nietzsche. Þær Maggie og
Marge eru og til umfjöllunar.
Annar hlutinn er helgaður
hinum ýmsu stefjum sem greina
mátt hefur í sagnaheimi Simpson
fjölskyldunnar, er þar einna bita-
stæðust (fyrir aðdáendur fjölskyld-
unnar, í það minnsta) grein Irwin
og Lombardo um vísanir þær sem
auðga þættina svo ríkulega. í þriðja
hlutanum, sem ber hið skemmtilega
nafn I didn’t do it: Ethics and the
Simpsons, er svo siðaboðskapur
þáttanna skoðaður. Fjórði og síð-
asti hlutinn gengur svo út á
samanburð á þáttunum
sjálfum við hina
ýmsu heim-
spekinga
- þar er
meðalann-
ars bærinn
Springfield
lesinn Marx-
ískum lestri.
Allt í allt er The
Simpsons and philo-
sophy einkar áhugaverð
bók sem ætti að falla jafnt
áhugafólki um heimspeki
sem gallhörðum Simpsons-að-
dáendum í geð, enda kappkosta
ritstjórarnir að hún sé bæði læsi- og
auðskiljanleg. Áhugamönnum um
popp-heimspeki skal í lokin bent
á önnur rit sem fáanleg eru í sömu
seríu, þar er m.a. að finna bæði Sein-
feld- og Matrix-heimspeki.
haukur@vbl.is
sjálfum
ým
ar
Sp
Verðlaunabók vikunnar i
boði Bókmenntaíélagsins
Framfaragoðsögn von Wrights: öflug ádeila á samtímann
Verðlaunabókin er ekki af verri
endanum í þetta skiptið; af sínum
rómaða myndugleik hefur Hið ís-
lenska bókmenntafélag fallist á að
láta rökspeking vikunnar í té eintak
af hinni stórmögnuðu Framfara-
goðsögn Finnans Georg Henrik
von Wright. Von Wright var einn
af fremstu heimspekingum Norður-
landa á 20. öld. Var hann lærisveinn
goðsagnarinnar Ludwig Wittgen-
stein og fékkst lengi vel framan af
einkum við rökfræðileg efni - til-
heyrði þeim skóla heimspekilegrar
hugsunar sem taldi að fræðimaður-
inn ætti sem minnst að skipta sér af
málefnum umheimsins. A níunda
áratugnum hóf hann hinsvegar að
skoða hugmyndaheim síns vest-
ræna samtíma gagnrýnum augum
og komst í kjölfarið að ýmsum nið-
urstöðum sem ættu að eiga erindi
við alla þá sem trúa því að fram-
farir felist einkum í tæknilegum
nýjungum á borð við mp3-spilara
eða kröftugum hárþurrkum. Von
Wright reynir bæði að grafast fyrir
um þau öfl í sögulegri fortíð okkar
sem hafa stýrt þróuninni fram til
okkar tíma, en gagnrýnir einnig trú
manna á framfarir í krafti aukinnar
þekkingar og tæknikunnáttu og hug-
takarugling þar á milli.
Auk greinanna 7 er í bókinni stutt
heimspekileg ævisaga höfundarins
þar sem hann segir frá heimspeki-
legum rótum sínum í hinu finnska
menntasamfélagi, af kynnum
sínum af Wittgenstein og fleiri
heimspekinum, auk persónulegri
afstöðu sinni til heimspekinnar
sjálfrar. Texti von Wrights ber vitni
um aga og skarpskyggni en er jafn-
framt aðgengilegur hverjum sem
er, enda flestar greinarnar ætlaðar
til birtingar í finnskum fjölmiðlum.
Formála að bókinni skrifar Sigríður
Þorgeirsdóttir, heimspekingur, en
þar gerir hún tilraun til að setja
skrif von Wrigths í samhengi við
evrópska heimspekihefð.
haukur@vbl.is
Hugvísindaþing
haldið í dag
Karlmennska t kreppu & siðareglur blaða-
manna til umrœðu
I dag stendur yfir í aðalbyggingu
Háskóla Islands Hugvísindaþing,
sem er árviss viðburður á vegum
„Hugvísindadeildar" (áður Heim-
spekideild), Hugvísindastofnunar,
Guðfræðideildar og Guðfræðistofn-
unar. Þingið var fyrst haldið árið
1996, en yfirlýstur tilgangur þess
er að bera fram fyrir almenning og
fræðasamfélagið það helsta í fræð-
unum hverju sinni. Mun þetta gert
með stuttum fyrirlestrum og mál-
stofum. Samanstendur dagskráin af
um 80 erindum sem flutt verða í 22
málstofum.
Hefst þingið kl. 08:30 og stendur
yfir fram til kl. 17:30. Glögglega
má sjá á titlum erindanna hversu
vítt svið hugvísindin spanna en
meðal þess sem fjallað verður um
má nefna stöðu þjóðkirkjunnar
fyrr og nú, máltöku, orðatiltæki í
ýmsum málum, hjónaband og orð-
ræðu á 19-öld, Hollywoodsöngleiki,
menningu og miðlun, andóf og bók-
menntir í Frakklandi, karlmennsku
í kreppu, og fleira. Þykir undirrit-
uðum sérstök ástæða til þess að vekja
athygli á málstofunum „Fjölmiðlar
og fagmennska", þar sem þörfin
fyrir siðareglur blaðamanna verður
rædd í þaula, „Jean-Paul Sartre 1905-
2005“, hvar sá merkismaður verður
til umræðu, auk „Konur, trú og
túlkun“ þar sem m.a. siðbót Lúthers
og Vídalínspostilla eru settar í fem-
ínískt samhengi.
haukur@vbl.is
Rökhornið!
Umsjón: Hrafn Ásgeirsson, BA í heimspeki.
Lausn síðustu gátu byggðist á því að gera grein fyrir sambandi setning-
anna tveggja innan rammans. Gátan sýnir vel dæmi um vanda sem
getur hlotist af því þegar setningar segja til um eigið sanngildi eða ann-
arra. Skýrara dæmi er vandinn sem hlýst af eftirfarandi setningapari:
„Setningin fyrir neðan er sönn.“
„Setningin fyrir ofan er ósönn.“
Fyrsta þverstæða þessarar tegundar (slíkar þverstæður eru gjarnan kall-
aðar ,,Lygaraþverstæður“) var líklega sett fram af Forn-Grikkjanum
Epimenídesi á sjöttu öld fyrir Krist, en á fjórðu öld fyrir Krist setti
samlandi hans, Evbúlídes, fram þverstæðu sem orðið hefur sígild:
„Þessi setning er ósönn.“
Stuttar og skýrar lýsingar á ýmsum þverstæður er að finna á vefsíðu
MathWorld undir slóðinni http://mathworld.wolfram.com/Paradox.
html.
Besta svar við gátu síðustu viku átti Sigurjón Hákonarson og er
hann því orðinn stoltur eigandi Frelsis Johns Stuart Mill í útgáfu Bók-
menntafélagsins. Svar Sigurjóns er svohljóðandi:
„Ef báðar setningar innan rammans eru ósannar og setningin sjálf
sem segir svo til um er það líka, eru þær annað hvort báðar sannar eða
önnur hvor sönn. Þar sem setningin sem segir svo til um að þær séu
báðar ósannar og þær eru ekki, er ljóst að hún er ósönn, þar með er sú
fyrri sönn, og Guð er til.“
Gáta vikunnar:
Maður nokkur var að skoða málaða andlitsmynd. Kona kemur aðvíf-
andi og spyr manninn: „Af hverjum er myndin sem þú ert að skoða?“
Hann svarar:
„Hópur systkina er enginn, telur núll karla og konur, en faðir þessa
manns er föður míns sonur".
Af hverjum var myndin sem maðurinn var að skoða?
Svör sendist á haukur@vbl.is