blaðið - 18.11.2005, Blaðsíða 22
22 I TÍSKA
FÖSTUDAGUR 18. NÓVEMBER 2005 bla6iö
Gull og glamúr i Austurstrœti
Gyllti kötturinnfer vel afstað
Á dögunum opnaði ný og glæsileg
fataverslun í Austurstrætinu sem er
sérstaklega skemmtilegt í ljósi þess
að lítið hefur verið um rekstur slíkra
verslana á þessi svæði til margra ára.
Verslunin, sem ber nafnið Gyllti kött-
urinn, hóf göngu sína 4. nóvember
síðastliðinn og að sögn aðstandenda
leggst hún afar vel í landann. Gyllti
kötturinn er tveggja hæða verslun
á besta stað í bænum sem býður
upp á svokölluð „second hand“
föt fyrir karla og konur á öllum
aldursskeiðum.
Blaðið kíkti í þessa skemmtilegu
búð og tók tali þær Ásu Ottesen,
annan af tveimur innkaupastjórum
verslunarinnar, og Hafdísi Þorleifs-
dóttur, eiganda. Þær segja hugmynd-
ina hafa lifnað skyndilega við og
innan þriggja vikna hafi verið búið
að tjalda til öllu sem þurfti. „Mig
langaði að opna búð og fá til liðs við
mig móðurdætur mínar, þær Ásu
og Jónu Ottesen. Eftir að ég hafði
tekið ákvörðun með manninum
mínum og meðeiganda, Hauki Inga
Jónssyni, byrjuðum við á fullu og þá
var ekki aftur snúið. Svo bara talaði
ég við stelpurnar og þær slógu ekki
hendinni á móti þessu,“ segir Hafdís,
en þau hjónin, ásamt frænkunum,
höfðu í nógu að snúast rétt fyrir
opnun með það fyrir augum að gera
búðina sem glæsilegasta.
Það sem vekur hvað
mesta undrun blaða-
manns er að búðin er
opin á sunnudögum, „
en það er annað jI
en segja má um
aðrar verslanir í
miðbæ Reykjavík-
urborgar. Ása og
Hafdís segja það
mælast afar vel
og að nauðsyn-
legt sé að hafa
eitthvað opið
þessa daga.
„Það er svo leið-
inlegt þegar allt
er lokað og bær-
inn verður dauður vegna
þess að fólk streymir í Kringluna
eða Smáralind. Okkur fannst mik-
ilvægt að hafa opið á sunnudögum
og reyna vekja aðeins upp smá líf
hérna. Það virðist líka vera vinsælt
enda mikill straumur fólks
á sunnudögum til okkar.’
Notuð föt höfða til
breiðari hóps enáður
Ása, annar inn
kaupastjóranna, seg-
ist mjög ánægð með
móttökur og að allir
séu jákvæðir í garð
verslunarinnar. J
„Þetta hefur eigin- ;
lega gengið vonum 2
framarogfariðrosa Z
vel af stað. Það er Z
mjög skemmtilegt Z
að taka þátt í upp-
hvað
byggingu búðarinnar
og ekki skemmir fyrir
að það má í raun segja
að þetta sé fjölskyldu-
fyrirtæki - frænkur
og frændar búnir að
vera hérna í undir-
búningsvinnu og allt
voðalega per-
sónulegt,"
segir hún
og bætir
við að lagt
hafi verið
upp með
persónulega og hlý-
lega búð með sál þar sem
allir gætu fundið eitthvað
við sitt hæfi.
„Enn sem komið er erum
við bara með second hand
f ö t , . auk þess sem
hér eru
h i n a r
ý m s u
týpur afskarti,
beltum og
öðrum auka-
hlutum. Það
stendur hins
vegar til að
fá inn ný
föt og við
erum núna
að skoða
merki sem
koma til greina
- við viljum helst
Ása og Hafdís (sófa verslunarinnar,
sem er sérstaklega hafður fyrir þá sem
eiga erfitt með að bíða meðan konan
mátar...
vera með mikið nýtt. Svo ætlum við
líka að vera með gamaldags klukkur
og síma til sölu og eiginlega bara alls-
kyns dót ogþað má segja að við séum
opnar fyrir öllu. Það eru nóg af
verslunum hérna sem ein-
blína bara á second hand
föt og því viljum við hafa
meiri fjölbreytni og bjóða
upp á margt annað með.”
Aðspurð segir Ása
notuð föt hafa rutt sér
til rúms á siðastliðnum
árum hér heima og að æ
fleiri bætist í hóp þeirra
sem klæðist slíkum fötum.
„Það er kannski aðallega
að hópurinn hefur breikkað
- nú nær hópurinn alveg frá
yngra fólki upp í það eldra.
Áður var hópurinn lokaður
og aðallega sérstakar týpur
sem notuðu svona föt, en það
hefur mikið breyst. Svo er
líka mikið um að fólk blandi
saman nýju og gömlu. Þó þú
sért þessi GK týpa er ekkert
því til fyrirstöðu að nota
einnig gamlan pels eða eitt-
hvað annað samhliða hinu.“
halldora@vbl.is
ý komið
Luxur.fai
99..................................
Þó þú sért þessi GK týpa þá er ekkert því
til fyrirstöðu að nota einnig gamlan peis
eða eitthvað annað samhliða hinu..
Grímsbæ við Bústaðarveg • Ármúla 15 • Hafnarstræti 106|
600 Akureyrl • Sfmi 588 8050, 588 8488, 462 4010
email: smartgina@simnet.is
Hárspangir líta dagsins
ljós á ný
-nýjasta tískan
í hárvörum
Miðað við stórborgir heimsins í
dag má sjá að hárspangirnar eru að
ryðja sér til rúms á ný eftir langt hlé.
Mörgum þykja spangir í hárið ein-
göngu hæfa ungum stúlkum en sú
er nú raunin að spangir eru að verða
vinsælli með hverjum deginum.
Falleg spöng, hvort heldur sem er
svört eða í öðrum litum, gerir mikið
fyrir heildarútlitið og er skemmtileg
brey ting frá þessu hversdagslega. Þar
fyrir utan er afar þægilegt að nota
spöng í hárið enda dregur hún lokk-
ana frá augunum. Það er því ekki
úr vegi fyrir konur, ungar sem
aldnar, að fjárfesta í einni slíkri og
eiga til taks í baðherbergisskápnum
þegar þær vilja breyta til. Það er al-
gjört
lágmark
að eiga eina spöng en helst auðvitað
fjölbreytilegt úrval lita og stærða.
Hægt er að fá spangir í mörgum
tískuvöruverslunum, matvöruversl-
unum og næsta apóteki á góðu
verði.