blaðið - 18.11.2005, Blaðsíða 15

blaðið - 18.11.2005, Blaðsíða 15
blaöiö FÖSTUDAGUR 18. NÓVEMBER 2005 ÁLIT I 15 Af pólitísku framhjáhaldi Össur Skarp- héðinsson Á mínum aldri kemur I það fyrir að menn láta freistast af háska- legum og spennandi konum. Eg hélt að það myndi henda alla aðra en mig. En ég er fall- inn engill. Dýrfírsku genin í ................ ætt minni sofa lítið. Við vökum á nóttunni. Ég les, sigli á Netinu, pæli út hin efstu rök og bægi frá mér tilvistarangistinni með því að leita huggunar í ísskápnum. Við þann háska hafa freistingar mínar staðnæmst hingað til og gert mig að glaðlega vöxnum manni. Eina nóttina eftir að hafa lesið bresku blöðin og Spiegel og pólit- ísku vefina datt ég inn á tælingarvef. Glæsilegar konur með stólpakjaft og hættulegar skoðanir liðu um skjáinn. Auðvitað hefði ég átt að slökkva strax. En ég lét fallerast einsog hendir kalla einsog og mig sem eru komnir á breytingaskeiðið. Þetta voru Tíkurnar. Tíkurnar eru vaskar ihaldsstelpur sem halda úti kjaftforri síðu og eru með lenínískt plan um að leggja undir sig Sjálf- stæðisflokkinn. Þær eru á býsna góðri leið með það. Þær eru hægri sinnaðir femínistar og vilja ekki að konur komist til áhrifa í krafti kyns heldur eigin verðleika. Ég gleypti við þeim einsog Þingvallaurriðinn feitri beitu snemma vors. Hugsan- lega af því ég er áhættusækinn og sá strax að þetta voru háskalegar og spennandi konur. Meira að segja nafnið - Tíkin.is - er valið til að ögra hefðinni. Engin slæðukona úr Hveti þorir að vera Tík. Sumar þeirra - einsog Hanna Birna - skrifa gestapistla til að láta í veðri vaka að þær séu einsog ungu trippin líka nútímakonur. Það er sagt að þeir sem stundi framhjáhald fyllist að lokum óbæri- Iegri sektarkennd sem brjótist fram í ósjálfráðum játningum. Áður en ég vissi af var ég búinn að kjafta frá þessu framhjáhaldi á síðunni minni. Ég missti meira að segja út úr mér að ég væri líklega hægri sinnaður femínisti - og þarafleiðandi Tík. Þetta gat ekki endað nema á einn veg. Úr fjarlægð tók aganefndin mig á teppið með því að góðhjörtuð sál í flokksa sagði mér að mönnum litist ekkert á þetta vefdaður við slæðu- kellingar framtíðarinnar. Smekk- lausast af öllu var þó sú synd að hafa í bríaríi lýst yfir stuðningi við Jórunni Frímannsdóttur í prófkjöri erkióvinarins. Hún er víst argasta frjálshyggjukelling. Sumir, sagði hin góða sál, litu á þetta sem enn eina tilraun til að veikja Valdísi borgar- stjóra því Jórunn og kellingapakkið kringum hana er alltaf að reyna að fella Valdísi. Ég varðist með því að segja að það þyrfti ekki íhaldskonur til. Stefán Jón Hafstein gerði ekki annað þessa dagana en reyna að fella Valdísi úr borgarstjórastólnum. Því var mætt með stingandi augnar- ráði og ísilagðri þögn. I hjarta mínu fannéglíkaaðégerdrullusekur. Ég veit ekki hvað ég get gert til að redda mér úr þessum vandræðum. Ætti ég að lýsa yfir stuðningi við Valdísi? En þá móðga ég Stefán Jón. Ætti ég kanski að gera einsog Árni Magg og stela mér kvenfélagi til að verja mig? Það myndi gleðja Mörð. Eða stofna nýtt í kringum Dr. Árnýju einsog Palli bróðir Árna gerði kringum Heiðu? Nei, þá yrði Solla reið við mig. En syndin er jafn sæt og hún er læ- vís. Kanski er þetta einsog að lenda í vampýrum. Ef maður er bitinn af Tík þá er maður Tík. En nú er nótt og tími myrkraverka. Best að kikja á Tíkin.is undir svefninn... Össur Skarphéðinsson, alþingismaður Samsæriskenningar Einar Skúlason Að undanförnu hafa stöðugar fréttir bor- ist af óeirðum sem hafa staðið í rúmar tvær vikur í Frakk- landi. Þarna er um að ræða mótmæli ungra Frakka, sem margir hverjir eru af Norður-Afrískum og Afrískum uppruna. Þeir eru að mótmæla lakri félagslegri stöðu sinni, rasisma og útilokun úr frönsku samfélagi. Þetta eru ungir menn sem hafa upp- runa síns vegna nánast verið útilok- aðir frá tækifærum til að sanna sig í frönsku samfélagi. Þeir horfast í augu við atvinnuleysi í sínum hóp talið í tugum prósenta og sjá ekki fyrir sér neina breytingu í þeim efnum. Stjórnmálaskýrendur vestrænna fjölmiðla hafa verið iðnir við kolann við að útskýra bakgrunn óeirðanna og komist að margvíslegum niður- stöðum. Þeir sem hafa gengið lengst hafa reynt að útmála óeirðirnar sem átök tveggja menningarheima, hins vestræna og íslam. Sumir hafa gengið svo langt að kalla þetta upp- reisn múslima í Frakklandi gegn franska ríkinu. Á miðvikudag ákvað leiðarahöf- undur Blaðsins að ganga í lið með þeim stjórnmálaskýrendum í Evr- ópu sem hafa gengið hvað lengst í samsæriskenningum. Hann kemst að þeirri niðurstöðu að múslimar hafi staðið fyrir óeirðunum og virðist standa í þeirri trú að óeirð- irnar séu vegna þess að múslimar hafi óbeit á lausung, kvenfrelsi og guðleysi lýðræðisríkja Evrópu og að tveir menningarheimar séu að kljást, annars vegar vestrænn og hins vegar íslamskur og óeirðirnar verða af þessum sökum. Leiðara- höfundur ber í bætifláka með því að nefna það að ekki hafi allir mús- limar tekið þátt í þessum óeirðum, en hins vegar hafi nær allir óeirð- arseggirnir verið þeirrar trúar. í lokin fjallar hann um nýtt hugtak, tvimenningu og telur að hörð átök muni standa á milli vestrænna gilda og íslamskra næstu áratugi og spáir að Islam muni jafnvel vinna átökin að lokum, gangi mannfjöldaspár eftir Það er skelfilega langt á milli raunverulegra ástæðna óeirðanna í Frakklandi og þeirrar ógnar og skelfingar sem leiðarahöfundur er að boða. Skilaboð leiðarans eru líka skelfilega langt frá þeirri umræðu sem við þurfum að standa fyrir. Um- ræðan á að snúast um það hvernig hægt sé að tryggja fólki, óháð upp- runa, jöfn tækifæri á sviði mennt- unar, atvinnu, heilbrigðis og ham- ingju í samfélaginu. I Frakklandi hefur þetta mistekist, í landi jafn- rétti, frelsis og bræðralags eru stórir hópar nánast útilokaðir frá því að verða metnir að verðleikum vegna uppruna síns. Þess vegna blossuðu óeirðirnar upp og þess vegna hefur verið erfitt að kveða þær niður. Á Islandi eigum við að stefna að samfélagi þar sem framlag hvers einstaklings er metið að verðleikum, ekki skilyrt við trú, nafn eða upp- runa. Þar sem allir fá tækifæri til að sanna sig. Umræða eins og sú sem birtist i umræddum leiðara er ekki til þess fallin að byggja upp slíkt samfélag, hún er þvert á móti hræðsluáróður sem getur sundrað hópum, ekki sameinað þá. Af hverju keyrði ég ekki bara Sæbrautina heim? Við sumum spurningum fást bara engin svör. Óhöpp henda okkur og við því er ekkert að gera. En þú getur brugðist við strax með því að tryggja hjá tryggingarfélagi sem gefur þér skýr svör og leggur áherslu á hraðvirkan frágang tjónamála. Staðreyndin er því miður sú að maður er hvergi 100% öruggur í umferðinni. Það er nógu erfitt að vera valdur að tjóni þó að ekki komi til mikill kostnaður að auki. Þess vegna er skynsamlegt að vera við öllu búinn og tryggja bílinn rétt. Kaskótrygging TM er ekki flókinn hlutur og það tekur enga stund að ganga frá henni. Dæmi um hvað Kaskótrygging bætin // Tjón á bilnum þínum vegna áreksturs við aðra bifreið eða kyrrstæðan hlut, veltu, útafaksturs, bruna, grjóthruns, snjóflóðs, skriðufalls og aur- og vatnsflóðs færðu bætt. // Tjón vegna þjófnaðar, innbrots, skemmdarverka eða skemmdra rúðnafærðu bætt. // Hún greiðir bílaleigubíl í allt að 5 daga verði billinn þinn óökufær eftir tjón. Dæmi um hvað Kaskótrygging bætir ekki: // Ef um vítavert gáleysi eða ásetning er að ræða bætir kaskótrygging ekki tjónið. // Þegar ökumaður telst vera óhæfur til aksturs vegna ölvunar eða lyfjanotkunar fæst tjón ekki bætt. // Ef hjólabúnaður eða undirgrind skaðast í akstri bætir kaskótrygging ekki tjónið. // Kaskótryggingin bætir ekki tjón vegna þjófnaðar eða skemmda á aukabúnaði, t.d. hjólkoppum og Ijósabúnaði. Það er góð regla að lesa vel tryggingaskilmálana, þeir eru sá grundvöllur sem samskipti þín og TM byggjast á. Hringdu í slma 515 2000 eða farðu á www.tryggingamidstodin.is og fáðu skýr svör.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.