blaðið - 18.11.2005, Page 18
18 I HEILSA
FÖSTUDAGUR 18. NÓVEMBER 2005 blaðíö
Aöstandandi áfengis
sjúklings segir sögu sína
Afmaelisfundur Al-Anon verður hald-
inn i Háteigskirkju kl 20:30 í kvöld
og eru allir velkomnir. Al-Anon er
félagsskapur ættingja og vina alka-
hólista en þar er sjúkdómurinn skil-
greindur sem fjölskyldusjúkdómur.
Ásta er félagi í Al-Anon sem eru
samtök aðstandenda áfengissjúk-
linga. Félagar í samtökunum mega
ekki koma fram undir nafni og
mynd og því fylgir ekki mynd af
Ástu.
„Ég er búin að vera félagi í samtök-
unum í þrjú ár en maðurinn minn er
alkóhólisti," segir Ásta. Hún kynnt-
ist manninum sínum á meðan hann
drakk en hann er nú búinn að vera
edrú í 2 'A ár og stundar AA fundi.
,,Það var félagi í AA samtökunum
sem benti mér á Al-Anon samtökin
því ég var farin að hafa áhyggjur af
drykkju eiginmannsins,“ segir Ásta
en hún byrjaði i samtökunum áður
en maðurinn hætti að drekka.
Ásta segir að það breyti öllu um
líðan hennar að vera í samtökunum.
,Ég er hætt að vera hrædd og reið og
það þakka ég samtökunum og þeim
félagsskap sem ég hef fengið þar,“
segir Ásta. Hún vill taka fram að
hún sé ekki talsmaður samtakanna
heldur venjulegur félagi. I Al-Anon
er stuðst við reynslusporin 12, þau
sömu og AA félagar nota. Ásta seg-
ist fara á fundi 1-2 í viku og var svo
heppin að finna sig strax á þeim stað
sem hún fór á. „Það er engin fundur
eins og nýliðum er ráðlagt að flakka
á milli staða til að finna sinn hóp,“
segir Ásta. Hún segir það ríkt í Ál-
Anon að finna fólki hlutverk á fund-
unum, t.d. að taka á móti fólki, hella
upp á kaffi, lesa upp o.fl.
Ásta segir að það sé erfiðast fyrir
hana ef maðurinn hennar hættir
að stunda AA fundi því þá komi
allir brestir hans í ljós. „Við þessar
aðstæður verður erfitt fyrir mig að
aftengjast og stunda mitt prógram
en þó ekki óyfirstíganlegt,“ segir
Ásta. Hún segir að fyrst eftir að mað-
urinn hennar hætti að drekka hafi
hún verið upptekin af því að hann
myndi falla en sá ótti er ekki til
staðar lengur. „Nú er fókusinn á mér
en ekki stöðugt á manninum eins og
áður og þó hann falli þá er það ekki
eins og himinn og jörð sé að farast,"
segir Ásta. Hún segist vera sterkari
og sjálfstæðari en áður og hafi öðl-
ast aukna sjálfsvirðingu.
Ásta segir að þegar maður hennar
hætti að drekka og fór að stunda
AA fundi fannst henni hún vera út-
undan og gramdist það að maður
hennar eyddi ekki meiri tíma með
sér. Þátttaka í Al-Anon samtök-
unum varð til þess að hún fékk líka
hlutverk „Ég á trúnaðarkonu innan
samtakanna sem er alltaf til staðar
ef ég þarf á henni að halda,“ segir
Ásta og bætir við að hún sé með sí-
mann fullan af númerum annarra
Al-Anon félaga.
Var föst í ákvefinu mynstri
Ásta á tvær dætur með manni sínum
2 'h árs og 7 mánaða. Þegar hún varð
ófrísk af eldri dóttur sinni hafi með-
virknin verið í toppi hjá henni en
hún hefur minnkað eftir að hún fór
að stunda Al-Anon fundina. Ásta
segist koma úr fjölsyldu þar sem
meðvirkni var mikil þrátt fyrir að
engin úr hennar nánustu fjölskyldu
hafi verið alkóhólisti. „Meðvirkni er
það að þora ekki að setja fólki mörk
og segja nei. Maður óttast að missa
vinkonur ef maður segir nei og er
hræddur um álit annarra á sér,“ segir
Ásta og bætir við að hún hafi iðulega
sett sig í síðasta sæti. Ásta segir það
einnig ríkan þátt í meðvirkninni að
vilja stjórna öðrum og gefa góð ráð.
„Ég var mikið að gefa manninum
mínum góð ráð og til þess notaði
ég augnaráð eða óljós merki,“ segir
Ásta. Hún var líka í þvi hlutverki að
hringja hann veikan í vinnunni og
afsaka hann ef svo bar undir. Ásta
segir líðan sína á þessum tíma hafi
verið slæma en hún passaði sig á
því að líta alltaf vel út og setja upp
grímu svo aðrir sæju ekki raunveru-
lega líðan hennar.
Ásta segist drekka þótt svo maður
hennar sé óvirkur alkóhólisti og
segir það ekki á sína ábyrgð þótt
maður hennar detti í það.
Ásta segist sjá ákveðið mynstur
hjá sér þegar hún lítur til baka en
nokkrir af hennar fyrri kærurstum
áttu við áfengis- eða fíkniefnavanda-.
mál að stríða. „Ég lærði síðar að
ég var föst í ákveðnu mynstri þar
sem mitt hlutverk var að bjarga og
stjórna," segir Ásta.
Mikilvægt er að stunda Al-Anon
fundina og án þeirra sé hætta á að
hún fari aftur að finna fyrir gremju
og reiði. Hún er bjartsýn á lífið og
henni líður vel. Hún segist leita til
æðri máttar og segist vera í stöðugri
framför.
hugrun.sigurjonsdottir@vbl.is
NR.1 í AMERÍKU
GLUCOSAMINE & CHONDROITIN
EXTRA STERK LIÐAMÓT
GÓÐ HEILSA-GULLI BETRI
Reynslusporin 12
1. Við viðurkenndum vanmátt okkar gegn áfengi og að okkur var orðið um megn að
stjórna eigin lífi.
2. Við fórum að trúa að máttur, okkur æðri, gæti gert okkur andlega heil að nýju.
3. Við tókum þá ákvörðun aö láta vilja okkar og líf lúta handleiðslu guðs, samkvæmt
skilningi okkar á honum.
4. Við gerðum óttalaust nákvæman siðferðislegan lista yfir skapgerðareinkenni okkar.
5. Við viðurkenndum afdráttarlaust fyrir guði, sjálfum okkur og öðrum einstaklingi
yfirsjónir okkar.
6. Við vorum þess albúin að láta guð fjarlægja alla okkar skapgerðarbresti.
7. Við báðum guð í auðmýkt að fjarlægja brestina.
8. Við gerðum lista yfir alla þá sem við höfðum skaðað og urðum fús til að bæta fyrir
brot okkar.
9. Við bættum fyrir brot okkar milliliðalaust, þar sem því var við komið, svo fremi það
særði engan.
10. Við iðkuðum stöðuga sjálfsrannsókn og þegar okkur skjátlaðist, viðurkenndum við
það undanbragðalaust.
11. Við leituðumst við, með bæn og hugleiðslu, að styrkja vitundarsamband okkar við
guð, samkvæmt skilningi okkar á honum, og báðum aðeins um þekkingu á því
sem hann ætlar okkur og styrk til að framkvæma það.
12. Við fundum að sá árangur sem náðist, með hjálp reynslusporanna, var andleg vakn-
ing og þess vegna reyndum við að flytja öðrum þennan boðskap og fylgja þessum
meginreglum I lifi okkar og starfi.
Kvef hvimleitt
en meinlaust
Hvað er kvef?
Kvef er veirusjúkdómur sem heldur
sig aðallega i nefslímhúð. Til eru
yfir 200 veirustofnar sem geta valdið
kvefi. Allir þekkjabyrjunareinkenni
kvefs, sjúkdómurinn byrjar með
særindum og kláða í hálsi, hnerrum
og nefrennsli. Kveferhvimleiðuren
tiltölulega meinlaus sjúkdómur, og
er algengast á veturna og stendur að
meðaltali yfir í 7-10 daga.
Hvernig smitast kvef?
Fyrst og fremst er um úðasmit að
ræða, en veirurnar geta einnig bor-
ist milli manna með snertismiti.
• Því er afar mikilvægt að skýla önd-
unarfærum vel þegar hóstað er
eða hnerrað.
• Handþvottur er jafnframt afar
mikilvægur ef snerting við sýktan
einstakling á sér stað.
Smithætta er frá því daginn áður en
einkenni koma fram og í 1-3 daga í
viðbót.
Hverjir fá helst kvef?
Kvef er algengast í börnum og er
talið að hvert barn fái kvef 6-10
sinnum á ári. Sjúkdómurinn er
einnig algengur meðal fullorðinna,
misjafnt er hversu oft fullorðnir fá
kvef, en 4 sinnum á ári er nálægt
meðaltali. Margir vinnudagar tap-
ast á ári vegna veikinda af völdum
kvefs.
Þrátt fyrir að kuldi valdi ekki kvefi
er það samt þannig að tíðni kvefs er
langmest frá september og fram í
apríl. Lægra rakastig í loftinu og
meiri samvera yfir vetrarmánuðina
er talin helsta orsök þess. Fólk eyðir
meiri tíma innan dyra ( nálægð við
hvort annað og smit berst þvi auð-
veldlega. Með kulda lækkar rakastig
en það veldur því að slímhúðin í nef-
inu þornar og veirurnar eiga þvi auð-
veldara með að sýkja auk þess sem
þessar veirur lifa betur í þurru lofti.
Líkamleg þreyta og andlegt álag
gera einstaklinga viðkvæmari fyrir
því að sýkjast af kvefi.
Fyrirbyggjandi aðgerðir
• Almennt gott heilbrigði. Hollurog
góður matur, hreyfing og útivera.
• Handþvottur er einfaldur og mjög
áhrifarík leið til að forðast smit.
• Forðist úða frá sýktum einstak-
lingi. Úðinn frá hnerra berst allt
að tvo metra.
• Þeir sem eru sýktir eiga alltaf að
hósta, hnerra og snýta sér í ein-
nota pappírsþurrkur og henda
þeim strax til að koma í veg fyrir
smit.
• Sýktir einstaklingar þurfa einnig
að passa vel upp á handþvott eftir
að hafa hnerrað eða snýtt sér.
Meðhöndlun einkenna
• Hvíld er mikilvæg og einnig er
nauðsynlegt að drekka nægilega
mikið afvökva.
• Skolið nefgöng með saltvatni.
Einnig er hægt að nota lyf sem
minnka nefstíflur og fást án lyf-
seðils í öllum lyfjaverslunum.
• Hóstasaft og hálstöflur geta linað
særindi í hálsi og dregið úr hósta.
• Andið að ykkur gufu.
• Notið verkjastillandi lyf til að lina
höfuðverk og lækka hita.
• Antihistamín eru einnig notuð
til að minnka rennsli úr nefi og
augum í sérstökum tilvikum.
• Veirulyf geta hjálpað og stytt
tímann
Sýklalyf hafa engin áhrif á veirur og
það hefur'því engan tilgang að nota
þau nema þegar um síðkomnar bakt-
eríusýkingar er að ræða.
Hverjir eru helstu fy Igi kvíllar?
Helstu fylgikvillar eru síðkomnar
bakteríusýkingar s.s. berkjubólga,
augnsýking, ígerð í ennisholum,
bólgur í innra eyra, hálsbólga og
lungnabólga. Þá fylgir gjarnan hiti
og bólgnir eitlar, ef sýking dregst á
langinn er mikilvægt að leita læknis
til að fá viðeigandi meðferð. ■
Paratabs í stað
parkódíns
Þann 1. október síðastliðinn var
hætt að selja parkódín 1 lausasölu,
en brögð voru að því að lyfið væri
misnotað af fíklum.
Sveinrún Bjarnadóttir, starfs-
maður i Lyfju í Lágmúla ,segir mikið
hafi borið á því að fólk hafi kvartað
þegar parkódín var gert lyfseðils-
skylt. „Við bjuggumst við óánægju-
röddum en þær urðu ekki eins
háværar og við héldum,“ segir Svein-
rún og bætir við að þegar sé farið að
draga úr óánægjuröddum fólks og
það virðist hafa laðað sig af breyt-
ingunum. Sveinrún segir starfsfólk
Lyfju mæla með paratabs í stað park-
ódíns og í verstu tilfellunum er bent
á treo sem eru uppleysanlegar verkja-
töflur. „Paratabs er mikið notað við
höfuðverk, tannverk og tíðaverk en
ef fólk finnur fyrir meiri verkjum en
töflurnar slá á ráðleggjum við fólki
að leita læknis.“ Hún segir margt
fólk svekkt yfir því að þeir sem mis-
notuðu parkódín hafi orðið til þess
að lyfið var tekið af markaði. Svein-
rún segir ekki mikið um að fólk
fari til læknis til að fá uppáskrifað
parkódín en noti frekar önnur lyf.
.Annars er flensutímabilið í gangi
núna og við seljum mikið af nefúða
og strepsils hálstöflum, sem nú eru
sykurlausar," segir Sveinrún. ■