blaðið - 18.11.2005, Side 34
34 I HELGIW
FÖSTUDAGUR 18. NÓVEMBER 2005 MaöÍA
Upplestur
í Iðuá
laugardaginn
Tangó að argentískum hœtti
Dans á milli hjartanna
í versluninni Iðu í Lækjargötu
verður upplestur um helgina
og ýmislegt að gerast. Þar er
meðal annars upplestur fyrir
börn þar sem lestið er upp
úr barnabókum sem eru að
koma út fyrir jólin. Þá verða
upplestrar fyrir eldra fólkið
og má þar nefna að danski
rithöfundurinn Irma Lauridsen
mun lesa úr verkum sínum.
Dagskrá fyrir börnin:
• Kl. 1400 lesið upp úr
“Hænur eru hermikrákur”
sem er myndskreytt
listaverkum eftir
9 Gunnellu en hún er á lista
yfir 10 best myndskreyttu
barnabækur í
Bandaríkjunum.
• Kl. 14.15 les Sigrún
Á. Eiríksdóttir upp úr
“Hundurinn sem átti að
vera stór”.
• Danski rithöfundurinn
& Irma Lauridsen verður í
Iðu frá kl. 14:00 til 16:00
í tilefni útkomu bókar
sinnar Hið Óþekkta,
furðulega fyrirbrigði
- óskýranlegir atburðir.
Bókin fjallar um fólk
sem kveðst hafa reynt
einkennileg atvik, orðið
vitni að kraftaverkum
eða beitir í starfi sínu
aðferðum sem líkjast
töfrum. Irma kemur til
með að svara spurningum
« viðskiptavina með aðstoð
túlks.
• Kl. 1430 les Svava
Jónsdóttir úr bókinn “Hið
óþekkta”. Irma Lauridsen
svarar spurningum
viðskiptavina.
• kl. 1500 mun Þóhallur
Heimisson kynna
metsölubók sína
“Hin mörgu andlit
trúarbragðanna”. Hann
verður i IÐU frá 1500 til
1700, áritar og svarar
spurningum.
*r' • Kl. 16.00 munuSalkaoglða
fagna í sameiningu útgáfu
myndasögubókarinnar
“Krassandi samvera” eftir
Bjarna Hinriksson og
Dönu Jónsson. Persónur
bókarinnar, Mímí og
Máni, eru íslendingum
að góðu kunn, enda
hafa þau verið daglegir
gestir á myndasögusíðu
Morgunblaðsins síðustu
ár.
SAW PALMETTO EXTRACT
FYRIR BLÖÐRUHÁLSKIRTIL
GÓÐ HEILSA-GULLI BETRI
Á laugardagskvöldið 19. nóvember
stendur Tangófélag Reykjavíkur
fyrir ástriðufullu tangóballi að
argentískum hætti i LeikhúskjaU-
aranum. Ballið byrjar klukkan
níu að kvöldi og stendur til tvö
um nóttina. Aðgangseyrir er 500
krónur og samkvæmt Tómasi
Albertssyni frá Tangófélagi
Reykjavíkur eru allir velkomnir,
byrjendur og lengra komnir.
Tómas segir að tangóballið á laug-
ardag verði ólíkt venjulegum dans-
kvöldum. „Á laugardaginn verður
svokallað Milonga sem þýðir dans-
kvöld. Við höfum verið með dans-
kvöld einu sinni í mánuði í Iðnó
með lifandi tónlist en þetta verður
með argentísku sniði í fyrsta sinn.
Bryndís Halldórsdóttir tangókenn-
ari verður plötusnúður og hún mun
fara eftir argentísku módeli eins og
vaninn er í Buenos Aires. Þar eru
vissar hefðir sem tíðkast og eftir
hverja þriggja til fjögurra laga syrpu
þá er meiningin að fólk fari af gólf-
inu og skipti um dansfélaga. Þá er
fólk ekkert að einoka einn eða neinn
allt kvöldið. I Buenos Aires er þetta
mjög strangt og ef þú fylgir ekki
hefðinni þá ertu virkilega að synda
á móti straumnum,“ segir Tómas og
hlær. „En við ætlum nú ekki að hafa
þetta eins strangt hér. Þetta verður
svona rammi til að hafa kvöldið
skemmtilegt fyrir alla. Við viljum
sérstaklega hvetja byrjendur og gesti
þeirra til að koma og fá tækifæri til
þess að dansa við vanari dansara."
Tækifæri til að tjá sínar tilfinningar
Kathrin Maria Schmucker verður
með opna kennslustund í grunn-
atriðum tangósins frá klukkan níu
um kvöldið en hún er mjög fær tang-
ódansari samkvæmt Tómasi. „Það er
ekki nauðsynlegt að kunna tangó til
að mega vera með. Þú þarft ekki að
kunna neitt annað en að geta gengið
og flestir kunna það. Grunnstefið í
tangó heitir Caminada á spænsku
og þýðir bara að ganga.“ Tómas seg-
ist búast við að margir láti sjá sig
enda skemmtilegt kvöld framundan.
„Tangó kemur frá úthverfum Buenos
Aires og fólk var að sækjast eftir ást.
Það var kannski mikil eymd, ein-
manaleiki og leit eftir ást þar. Tangó
er dans á milli hjartanna og tækifæri
til að tjá sínar tilfinningar og vera
ástríðufullur. Ef par dansar saman
þá gefur það sig alla þær þrjár mín-
útur sem það dansar saman. Þetta
er tækifæri til að tjá sínar dýpstu til-
finningar þannig að tangó er mjög
ástríðufullur dans,“ segir Tómas að
lokum.
svanhvit@vbl.is
Hönnunardagar 2005
Menning og tíska á Hótel Borg
Á sunnudaginn 20. nóvember verður
hönnunarsýning á Hótel Borg. Á
sýningunni munu þrír hönnuðir
þær Ásta Guðmundsdóttir, Ragna
Fróða og skartgripahönnuðurinn
Guðbjörg Kr Ingvarsdóttir standa
fyrir metnaðarfullri og óvenjulegri
tískusýningu. Þær Ásta, Ragna og
Guðbjörg hafa allar hlotið menntun
og mikla reynslu á sínu sviði:
Ásta Guðmundsdóttir er mennt-
aður fatahönnuður frá Pforzheim í
Þýskalandi. Fyrirtæki hennar Ásta
créative clothes er staðsett á Lauga-
vegi 25. Hönnun hennar er á boð-
stólnum viða, í Ameríku, Japan og
Scandinavíu og víða í Evrópu. Hún
var tilnefnd árið 2004 til Den store
Nordiske designpris í Skandinavíu.
Ragna Fróða er menntaður fata-
hönnuður frá LISSA í París og textíl-
deild MHÍ. Fyrirtæki hennar Path
of Love ehf og verslun er staðsett á
Laugavegi 28. Hún hefur tekið þátt í
fjölda sýninga bæði hér heima og er-
lendis og var meðal annars tilnefnd
til menningarverðlauna DV fyrir
hönnun sína 2005.
Guðbjörg Kr Ingvadóttir skart-
gripahönnuður er menntaður gull-
smiður og skartgripahönnuður í
Kaupmannahöfn. Fyrirtæki hennar
Aurum er staðsett á Bankastræti.
Hún fékk 1. verðlaun fyrir skart-
gripahönnun í St Pétursborg árið
2000 og hlaut menningarverðlaun
DV fyrir listhönnun árið 2001.
Auk tískusýningarinnar sem hefst
klukkan 15:00 verður boðið upp á
mjög sérstæða lifandi klassíska tón-
list af íslenskum kvenn-blásarakvin-
tett og sérhannaðri blandaðri tónlist
frá listamanninum Barða. Listdans
og kampavín er einnig í boði og
kynnir verður leikkonan Brynhildur
Guðjónsdóttir.
Þjóðminjasafnið:
Lítiö könnuð
tímabil 1 listasögu
íslands
Á morgun mun Þóra Kristjánsdóttir
list- og sagnfræðingur á
Þjóðminjasafni íslands kynna lítið
könnuð tímabil í listasögu fslands í
fyrirlestri og leiðsögn um sýninguna
Mynd á þili.
Þóra hefur unnið að viðamikilli
rannsókn á myndlist fyrri alda
undanfarin ár og er sýningin
afrakstur hennar. Fyrr á árinu kom
út bókin Mynd á þili í samstarfi
Þjóðminjasafnsins og JPV útgáfu.
Þessi helgi er jafnframt
síðasta sýningarhelgi þessarar
yfirgripsmiklu sýningar en
hún er opin a opnunartímum
Þjóðminjasafnsins kl. 11-17.
Fyrirlestur Þóru hefst kl. 14:00 með leiðsögn um sýninguna. Fólker
á laugardaginn í fyrirlestrasal hvatt til þess að mæta tímanlega því
Þjóðminjasafnsins og honum lýkur mikill áhugi er á fyrirlestrinum.
Hafnarhúsið
Erró með leiðsögn
Á sunnudaginn klukkan 15:00 verður
Þorbjörg Br. Gunnarsdóttir með leið-
sögn í Hafnarhúsinu um sýninguna
Listamaður verður til.
Á sýningunni má sjá verk Erró
frá barnsaldri þar til hann hélt sína
fyrstu einkasýningu á íslandi í Lista-
mannaskálanum árið 1957. Sýndar
eru myndir sem hann gerði á upp-
vaxtarárum sínum á Kirkjubæjar-
klaustri, á námskeiði sem unglingur
í Handíðaskólanum í Reykjavík og
síðar sem fullgildur nemandi við
þann skóla, ásamt myndum frá
námsárum hans við akademíurnar
í Osló, Flórens og Ravenna.
Öll verkin á sýningunni eru úr
Errósafni Listasafns Reykjavíkur og
gefa áhugaverða mynd af hæfileika-
ríkum og vinnusömum, ungum
manni sem frá barnæsku einsetti
sér að verða listamaður. Sýningar-
Erró: Djöfullinn frá Pompei,1956
stjóri er Þorbjörg Br. Gunnarsdóttir,
deildarstjóri safnadeildar Listasafns
Reykjavíkur. Sýningin stendur til 23.
apríl 2006.