blaðið - 18.11.2005, Síða 38

blaðið - 18.11.2005, Síða 38
38 I ÍÞRÓTTIR FÖSTUDAGUR 18. NÓVEMBER 2005 i blaöiö Knattspyrna: Situr inni fyrir svindl Dómarinn dæmdur, Hoyzer leit út fyrir að vita upp á sig sökina þegar hann gekk úr dómsalnum. Þýski knattspyrnudómarinn Ro- bert Hoyzer hefur verið dæmdur í tveggja ára og fimm mánaða fang- elsi fyrir mesta hneyksli sem upp hefur komið í þýskri knattspyrnu. Fyrir dómi í gær viðurkenndi hinn 26 ára fyrrum dómari að hafa haft áhrif eða reynt að hafa áhrif á úrslit níu leikja sem hann dæmdi. Dómarinn í málinu, Gerti Kramer, sagði við dómsuppsöguna að brotið væri ekki eitthvað prakkarastrik heldur alvarlegur glæpur. „Hann brást skyldum sínum sem hlutlaus maður á velli“, sagði dómarinn Kramer um dómarann Hoyzer. Miður sín í tilraun til að milda dóminn yfir sér á þriðjudag sagði Hoyzer að honum þætti málið allt mjög leitt. „Ég er mjög miður mín og biðst afsökunar á því sem ég gerði. Ég hef skaðað þýska knattspyrnu gífurlega með athæfi mínu.“ Dómurinn var harð- ari en Hoyzer hafði búist við. Hann gekk hljóður út úr dómsalnum og sagði ekki orð við blaðamenn sem biðu fyrir utan. „Þetta eru mikil von- brigði fyrir okkur“ sagði verjandi Hoyzer. „Meira að segja sækjendur höfðu farið fram á skilorðsbundinn dóm.“ Annar dómari sem flæktur var í hneykslið fékk skilorðsbund- inn dóm í 18 mánuði en Ante Sapina, Króatinn sem skipulagði glæpina, fékk þyngsta dóminn. Hann mun sitja inni í tvö ár og ellefu mánuði auk þess sem menn honum tengdir fengu skilorðsbundna dóma fyrir hylmingu. Víti til varnaðar Grunur féll á Hoyzer þegar smáliðið Paderborn sigraði Evrópumeistar- ana í SV Hamborg 4-2 á síðasta ári. 1 leiknum dæmdi Hoyzer Paderborn tvær umdeildar vítaspyrnur og vék leikmanni Hamborgar af velli fyrir að því er virtist ekkert brot. Sam- kvæmt dómnum græddi Ante Sap- ina meira en 50 milljónir króna á úrslitunum og Hoyzer sjálfur um 5 milljónir og nýtt sjónvarp. Forseti þýska knattspyrnusam- bandsins, Theo Zwanziger, kvaðst ánægður með dóminn og hversu greiðlega gekk að dæma í málinu en aðeins tíu mánuðir eru síðan upp komst um málið. „Möguleikinn á tveimur og hálfu ári í fangelsi mun svo sannarlega fá einhverja til að hugsa sig um tvisvar áður en þeir reyna að hafa áhrif á úrslit leikja.“ Fimleikar: Kínverjar berja börn áfram Frægur breskur fimleikamaður, Sir Matthew Pinsent, er sleginn yfir meðferð á ungu fimleikafólki í Pek- ing en þar æfir landslið Kína fyrir Ólympíuleikana 2008. Pinsent sem hefur fjórum sinnum unnið gull- verðlaun á Ólympíuleikum var ný- lega að kanna undirbúning fimleika- liðs Kínverja fyrir leikana fyrir hönd breska útvarpsins BBC 5. Hann segir að börnin þjáist á æfingum. „Það var mjög truflandi að sjá þetta. Ég var mjög sleginn af því að sjá sumt það sem fyrir augu bar.“ Eitt af því sem kom Pinsent úr jafnvægi var að sjá þjálfara leggja hendur á ungan iðk- anda. „Ég veit að þetta eru fimleikar og í þeim byrja iðkendur mjög ungir, en þetta var of mikið fyrir mig.“ Ósk foreldra Áður en Pinsent sem er fyrrver- andi meðlimur í Alþjóða ólympíu- nefndinni og núverandi meðlimur breska ólympíusambandsins fór til Kína hafði hann spáð hvort þjálf- unaraðferðir væru mismunandi milli vestrænna og austrænna þjóða. „Ég bjóst við að þetta yrði öðruvísi að einhverju leyti en ég er á því að verið sé að níðast á þessum börnum." Þessum fyrrum meistara þótti sem börnunum væri þröngvað lengra en góðu hófi gegnir í leit að frambærilegum íþróttamönnum og þótti leitt að sjá að það þóttu eðlileg vinnubrögð. „1 viðræðum við þjálf- ara sögðu þeir að ólöglegt væri að leggja hendur á börnin, en svo væru foreldrar sem færu fram á slíkt. Þeir sögðu að þetta væri nauðsynlegt til að herða börnin.“ Rannsókn áformuð Valið á Peking sem gestgjafa næstu Ólympiuleika hefur verið umdeilt vegna slælegs ástands á mannrétt- indamálum í Kína. Alþjóðlega fim- leikasambandið hefur heitið því að athuga málið. Brettareið á Hawaii Royden Bryson frá Suður Afríku er á meðal bestu brimbrettakappa heims sem taka nú þátt í OP atvinnumannamótinu á Haleiwa í Hawaii. Þrátt fyrir að fá einkunnina 9,47 (af 10 mögulegum) náði hann ekki efsta sætinu í fyrstu umferð mótsins heldur þurfti hann að láta annað sætið duga. í annarri umferð féll hann svo úr umferð en mótið stendur til 24. nóvember. Opnunarhátíð haliar Knattspyrnugoðsögnunum Pelé og Maradona var boðið til stórhátíðar í tilefni opnunar stærstu innanhússíþróttahallar í heimi sem staðsett er í borginni Doha í Katar. i höllinni er knattspyrnuvöllur í fuliri stærð auk annars minni æfingavallar, frjálsíþróttavöllur, sundlaug i ólympíustærð, dýfingalaug, fimleikasalur, íþróttasalur, borðtennissalur, bar- dagafþróttasalur, skylmingasalur, veggboitasalur og glænýr lyftingasalur auk aðstöðu til sjúkraþjálfunar og rannsókna. Fyrir utan höliina eru svo sjö knattspyrnuvellir ætlaðir til æfinga. Af tilefninu tók Maradona skóna sína enn einu sinni af hillunni og sýndi gamla takta. Stjörnufans á stórieik Kobe Bryant átti stórleik með Los Angeles Lakers þegar hann skoraði 42 stig fyrir liðið i stórleik Lakers og New York Knicks. Eins og oft á svo stórum viðureignum í NBA deild- inni var þéttsetið af fallega og fræga fólkinu á áhorfendabekkjunum og mátti meðal annars sjá Lakers-áhangandann Jack Nicholson, söngkonuna Aliciu Keys og grínarann Chris Rock. Lakers vann leikinn naumlega með fimm stiga mun, 97 - 92. 15% afsláttur af öllum fótboltaskóm hjá okkur í nóvember Láttu sjá þjg og geröu góö kaup

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.