blaðið - 18.11.2005, Síða 45
blaðið FÖSTUDAGUR 18. NÓVEMBER 2005
DAGSKRÁI 45
Jennifer viðurkennir
að Gwyneth hafi
haft rétt fyrir sér
Jennifer Aniston hefur viðurkennt að hafa verið óvarkár í garð Gwyneth
þegar hún og Brad Pitt opinberuðu samband sitt. Þá hefur hún sagt
að í framtíðinni muni hún verða miklu varkárari í tali um ástarlíf sitt.
Gwyneth Paltrow gagnrýndi þau eftir að hún hætti með Pitt fyrir að tala
svo opinberlega um brúðkaup þeirra. Stuttu eftir að Gwyneth hætti með
Pitt sagði hún: „Það væri miklu auðveldara að komast í gegnum málin
ef Brad og Jennifer hefðu ekki talað við fjölmiðlana svo fljótt“. Jennifer
hefur nú sagt að Gwyneth hafi haft rétt fyrir sér og að nú hafi hún lært
af reynslunni.
EITTHVAÐ FYRIR...
. œvintýragjarna
Sjónvarpið, Rocky og Bullwinkle
í ævintýrum, kl. 20.40
Bandarísk ævintýra-
mynd frá 2000 þar
E-' sem teiknimyndahetj-
urnar Rocky og Bull-
winkle bregða sér yfir
í raunheiminn og eiga
í höggi við hættulegt fólk. Leikstjóri
er Des McAnuff og meðal leikenda
eru Rene Russo, Jason Alexander,
Piper Perabo, Randy Quaid og Ro-
bert De Niro.
.gamansama
Sirkus, Good Bye Lenin!, kl. 21.15
Gamanmynd sem fjallar um upp-
reisnargjarnan dreng í Austur-
Þýskalandi árið 1989, rétt fyrir fall
Berlínarmúrsins. Aðalhlutverk:
Daniel Brúhl, Kathrin Sass og Chulp-
an Khamatova Leikstjóri: Wolfgang
Becker.2003.
.stjörnur
Stöð 2, Stjörnuleit 3, kl. 20:30
Nú taka leikar að æsast í Idol-
Stjörnuleitinni. Áheyrnaprófum
er lokið og 111 hafa verið valdir úr
þeim 1600 sem reyndu fyrir sér. Nú
liggur leiðin í Salinn í Kópavogi þar
sem dómnefnd fær það vandasama
verk að skera niður hóp keppenda í
35 sem komast áfram.
Dennis Quaid
teygir sig eftir
stjörnunum
Leikarinn Dennis Quaid er
nú opinberlega orðinn einn af
Hollywood stjörnunum en hann
hefur nú fengið nafn sitt í eina af
stjörnum í kvikmyndaborginni
frægu. Leikarinn lék meðal annars í
myndinni The Day After Tomorrow
og í myndinni Mine and Ours.
Stutt spjall: Bjarni Arason
Bjarni Ara er þáttastjórnandi á Bylgjunni
Hvernig hefurðu það í dag?
„Ég eralveg massa góður".
Hvenær byrjaðirðu fyrst að vinna í
fjölmiðlum?
,Fyrir góðum áratug, fjórtán árum held ég,
ég byrjaði sem kvöldmaður á Aðalstöð-
inni um skeið. Þá fór ég á aðal tlmann á
milli eitt og fjögur sem er sá tími sem ég
er búinn að vera á allargötursíðan."
Hvernig finnst þér að vinna í útvarpi?
„Mér líkar mjög vel, þetta er hluti af minni
ástríðu sem er tónlist og útvarp er hluti af
minni ástríðu líka".
Langaði þig að verða útvarpsmaður
þegar þú varst lítill?
„Nei, ég ætlaði að verða leikari en það
hefur ekki orðið úr því ennþá. Ég sýndi
reyndar snemma merki í tónlistaráttina".
Er vinnan í útvarpi öðruvfsi en þú hefð-
irbúistvið?
„Nei reyndar ekki en þetta er búin að vera
mikil þróun frá því að ég byrjaði fyrst,
þetta er orðið allt öðruvísi, (upphafi
var það þannig að útvarþsmenn
spiluðu það sem þeim fannst
skemmtilegast þó að það hafi verið
einhver grind sem tónlistin féll inn
í. Útvarpsmenn mættu með sína
geisladiska á vaktina og spiluðu
það sem þeir voru í skapi til að
spila en það skilaði ekki eins
góðum árangri og heilstæðri
stefnu. Núna spila ég tónlist
Bylgjunnar. Ég spila ekki beint
mína tónlist og hún kemur
í raun og veru ekki mínum
tónlistarsmekk við nema að
því leyti að ég tek ákvarðanir
ásamtfleirum um það hvaða
tónlist er í spilun".
Hvernig er dæmigerður
dagur hjá Bjarna Ara?
„Ég mæti á skrifstofuna á
morgnana, tek púlsinn, það
ermikið um fundarhöld
framan af, ég fer í loftið eftir
hádegið og svo tekur við að
vinna við eigin tónlist, æfingar og
Spurning dagsins
Ætlarðu að fá þér NFS fréttastöðina?
auðvitað er ég að syngja allar helgar og í
brúðkaupum á sumrin og slíkt.
Hvert er uppáhalds sjónvarpsefnið
þitt?
„Eg er fréttafíkill og þátturinn 60 mínútur
hefur verið lengi í uppáhaldi hjá mér".
Hver myndirðu vilja að væri síðasta
spurningin í þessu viðtali?
„Ertu ekki rosa ánægður með nýju plöt-
una?"
„Jú rosalega ánægður með nýju plötuna,
hún kemur sterk inn og ég vona að sem
flestum líki hún"
BjarniTryggvason
Nei
Sigurþór Friðjónsson
Nei
Karl Einarsson
Nei
Guðmundur Bjarna-
son
Ég er ekki búinn að
ákveða það
Lárus Einarsson
Égveit ekki einusinni
hvað það er
Bjarni Axelsson
Nei
TIL
HAMINGJU,
GUNNELLA!
STÓRVIÐBURÐUR í
BÓKMENNTA- OG LISTA-
HEIMINUM:
A listayfir 10 best
myndskreyttu barnabækur
í Bandaríkjunum 2005.
Gunnella er fyrsti íslenski
listamaðurinn sem hlýtur
þennan eftirsótta heiður.
Stórglæsileg og bráðfýndin bók
um ráðkænsku íslenskra kvenna!
Höfundur sögunnar er Bruce McMillan,
margverðlaunaður höfundur, sem einnig
skrifaði hina skemmtilegu bók 77/ Fiskiveiða fóru.
Sigurður A. Magnússon þýddi báðar bækurnar
sem eru líka fáanlegar á ensku.
rm
Salka
Ármúla 20 • sími 552 1122 • www.salkaforlag.is
W