blaðið

Ulloq

blaðið - 02.12.2005, Qupperneq 8

blaðið - 02.12.2005, Qupperneq 8
8 I ERLENDAR FRÉTTIR FÖSTUDAGUR 2. DESEMBER 2005 blaöiö Alþjóðlegi alnœmisdagurinn: Aldrei jafn- margir smitaöir Sameinuðu þjóðirnar hvöttu til þess að baráttan gegn alnæmi yrði hert á alþjóðlega alnæmisdeginum sem haldinn var í gær. Samtökin segja að þrátt fyrir að nýsmitum hafi fækkað í sumum löndum í kjöl- far aukinnar smokkanotkunar og breyttrar kynlífshegðunar fjölgaði HlV-smituðum í heiminum. Fjöldi þeirra sem eru smitaðir af HlV-veir- unni, sem veldur alnæmi, náði há- marki á þessu ári en áætlað er að um 40,3 milljónir manna séu smitaðir af veirunni. Meira en þrjár milljónir manna hafa látist úr alnæmi það sem af er árinu og er faraldurinn hvergi jafnskæður og í Afríku. Víða um heim notuðu menn tæki- færið til að minna á alnæmisfar- aldurinn, héldu útifundi, dreifðu smokkum og fræðsluefni auk þess að minnast þeirra sem látist hafa úr sjúkdómnum. I Buenos Aires, höfuðborg Argentínu var broddsúla sveipuð risasmokki í tilefni dagsins og i Frakklandi lagði Jacques Chirac til að smokkasjálfsölum yrði komið fyrir í skólum. I Svasílandi var öllum uppákomum í tilefni dagsins aftur á móti aflýst með konunglegri tilskipun vegna þess að önnur há- tíð hófst sama dag sem virðist hafa verið mikilvægari. Tæplega 40% landsmanna í Svasílandi eru smituð afHIV-veirunni. ■ Pedro Zerolo (t.v.), baráttumaður fyrir réttindum samkynhneigðra og borgarfull- trúi í Madrid, og Cayetana Guillen Cuervo (t.h.), leikkona, leggja kerti undir risastór- an rauðan borða við minningarathöfn um þá sem hafa látist úr alnæmi. ...skoöaöu jólakortin á www.myndval.is og veldu kort, sendu okkur myndina og textann sem þú villt hafa og við sjáum um aö klára jólakortin fyrir þig ..einnig getur þú komiö meö mynd og texta til okkar í Mjóddina iMtiULi Álfabakka 14 - 557 4070 myndval@myndval.is -39 kort. 145kr./stk. 40 kort+ 135kr./stk. umslag fylgir, lágmarkspöntun lOstk. Magn hœttulegra efna langtyfir viðmiðunarmörkum: Fiskinnflutningur frá Noregi hugs- anlega bannaður Rússar munu hugsanlega leggja bann við innflutningi á fiski og fisk- afurðum frá Noregi þar sem þær kunna að reynast hættulegar neyt- endum að sögn Sergei Dankvert for- stjóra eftirlitsstofnunar með dýra- ogplöntusjúkdómum. „Gæði norsks eldislax skýtur okkur verulega skelk í bringu þar sem rannsóknir hafa leitt í ljós of mikið magn hættulegra efna í honum,“ sagði Dankvert í við- tali við Interfax-fréttastofuna. Sérfræðingarstofnunarinnarkom- ust að því að í sýnum úr ferskum fiski frá Noregi var að finna 10-18 sinnum meira magn af blýi en er leyfilegt og magn kadmíums var nærri fjórum sinnum hærra. Dank- vert sagði að stofnunin hefði sent eft- irlitsstöðvum í Noregi viðvörun og aukið eftirlit með fiskafurðum sem fluttar væru inn frá landinu. „Við munum hugsanlega leggja hömlur á innflutning á eldislaxi en við getum ekki útilokað að í kjölfar frekari rannsókna munum við þurfa að leggja bann við öllum innflutningi á fiski,“ sagði hann. Noregur er helsti fiskinnflytjandi í Rússlandi. ■ jí PÉTUR POPPARI i» -3 B I lllf.il . Sendu eina fyrirsögn úr Blaðinu í dag og þú gætir eignast eintak af bókinni Pétur Poppari sem fjallar um nokkra spretti úr lífshlaupi Péturs Kristjáns Blaðið Bæjarlind 14-16 201 Kópavogur 1«1 BÓKAÚTGÁFAN HÓLAR JÖFNUNARSTYRKUR TIL NÁMS Umsóknarfrestur á vorönn 2006 er til 15. febrúar nk. Nemendur framhaldsskóla geta átt rátt á: • Dvalarstyrk (verða að dvelja fjarri lögheimili og fjölskyldu sinni vegna náms). • Styrk vegna skólaaksturs (sækja nám frá lögheimili og fjölskyldu fjarri skóla). Upplýsingar og skráning umsókna vegna vorannar/sumarannar 2006 er á www.lin.is. Lánasjóður íslenskra námsmanna Námsstyrkjanefnd Berrassaður byssumaður Nakinn maður var handtekinn eftir að hann hafði hleypt af skotum úti á götu í úthverfi Memphis í Tennessee. Maður- inn sem er á fimmtugsaldri var ákærður fyrir að leggja fólk í hættu, ósiðlegt athæfi, að hleypa af skotum innan borgar- marka og vera undir áhrifum á almannafæri. „Ég trúði þessu ekki,“ sagði Eddie Cox, sem var á leið heim til sín þegar hann kom auga á byssumanninn berrassaða úti á miðri götu í bænum Germantown. Cox sagði að þegar hann hefði reynt að aka framhjá manninum hefði hann gripið í hurðarhún bílsins sem hann var á. Síðan sá hann manninn rétta út arminn og hleypa af skoti. „Ég sá reykinn og heyrði hvellinn þannig að hann var augljóslega með byssu,“ sagði Cox. Hann hringdi á lögregluna sem hand- tók manninn á staðnum og fann byssuna í nálægum garði. Hæstiréttur í Suður Afríku: Úrskurðar samkyn- hneigðum íhag Hæstiréttur í Suður Afríku hefur komist að því að það brjóti í bága við stjórnarskrá landsins að neita fólki af sama kyni réttinum til að ganga í hjónaband. Hann beindi einnig þeim tilmælum til þingsins að breyta hjúskaparlöggjöfinni þannig að gert verði ráð fyrir slíkum hjónaböndum i henni innan árs. Með úrskurðinum stefnir í að Suður Afríka verði fyrsta landið í Afríku þar sem fólk af sama kyni getur gengið í hjónaband en samkynhneigð er enn nánast bannorð í landinu. Samkoma til stuönings Nguyen Toung Van I Sydney. Ástrali tek- inn aflífi I morgun var gert ráð fyrir að Nguyen Tuong Van, ástralskur ríkisborgari, sem dæmdur var til dauða í Singapúr fyrir eiturlyfjasmygl yrði tekin af lifi. Fjölskylda hans fékk að heimsækja hann í gær fáeinum klukkustundum fyrir aftök- una og þegar Ijóst var að Lee Hsien Loong, forsætisráðherra landsins, hefði hafnað náðunar- beiðni. Fjöldi fólks kom saman við þinghúsið í Canberra og víðar í Astralíu til að sýna stuðning sinn við Nguyen.

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.