blaðið - 02.12.2005, Blaðsíða 12

blaðið - 02.12.2005, Blaðsíða 12
12 I VEIÐI FÖSTUDAGUR 2. DESEMBER 2005 blaöiö VEIÐI GUNNAR BENDER HEITUR OG ÞURR í tcrmo SPORTVÖRUGERÐIN Skipholt 5, 562 8383 Aðalfundur Stangaveiðifélagsins: Fámennt en góðmennt Stjórn Stangaveiðifélags Reykjavíkur, Loftur Atii Eiríksson, Eiríkur St. Eiríksson, Marinó Gylfi Gautur Pétursson nælir heiðursmerki í Halldór Þóðarson sem hefur unnið ýmis Marinósson, Bjarni Júlíusson, Þorstein Ólafs, Gylfi Gautur Pétursson og Guðmundur störf fyrir Stangaveiðifélag Reykjavíkur. Stefán Maríasson. Eftir frábæran fund í Stanga- veiðifélagi Reykjavíkur fyrir ári síðan mættu mjög fáir á aðalfundinn sem var á laugardag- inn og gengu fundarstörf vel fyrir sig. Engin kosning var í stjórn og engin bauð sig fram gegn Bjarna Júlí- ussyni formanni. Rétt um 70 félags- menn mættu á svæðið. Það er greinilegt að það þarf helst kosningu til að félagsmenn mæti á fundinn. Mikil umræða hefur farið fram um uppkaup á netum á vatnasvæði Hvitar-Ólfusár og var eftirfrandi tillaga samþykkt á fundinum. „Aðalfundur Stangaveiðifélags Reykjavíkur, haldinn á Grand Hótel Reykjavík, 26. nóvember 2005, lýsir yfir sérstakri ánægju með það framtak stjórnar SVFR að beita sér fyrir uppkaupum á netaveiðirétti á vatnasvæði Hvítár-Ölfusár. Aðal- fundurinn skorar á netabændur á umræddu vatnasvæði að ganga nú þegar til samninga við SVFR og þá, sem vilja starfa með félaginu að upp- kaupum netaveiðiréttarins, með það að markmiði að engar netaveiðar verði stundaðar í Hvítá-Ölfusá frá og með sumrinu 2006.“ Netamálið er á einhverri hreyfingu þessa dag- ana, ekki veitir af, laxinn er ekki endalaus, það vita allir. En fundurinn var fámennur en góðmennur, staða félagsins er góð og félaginu hefur tekist að halda verði á veiðileyfum í lágmarki. Það er það sem veiðimenn vilja. Veiöiþjónustan Strengir - Sínú/fax: 567-5204 - GSM: 660-6890 - www.stren; gir.is - ellidason@strengir.is Sala hafin fyrir árið 2006 Lax- og silungsveiðileyfi t'CÁtÚi Yfir 70 þúsund rjúpur veiddust „Að mínu mati var þetta rjúpnaveiði- tímabil alltof langt. Veiðin hefði átt að byrja seinna og enda fyrr, þrjár vikur hefðu verið nóg. Ég féíck nokkrar rjúpur, fór nokkrum sinnum og fékk mér góðan labbitúr," sagði skotveiðimaður norðan heiða sem Blaðið ræddi við. Veiðitím- anum lauk í fyrradag og margir veiði- menn notuðu tímann fram á síðasta dag. Við fréttum af veiðimönnum á Langanesi síðasta veiðidaginn sem fengu 15 fugla, aðrir voru rétt hjá þeim og fengu 5 fugla. Flestir hafa allavega fengið í soðið og til þess var leikurinn gerður, verslanir flytja inn miklu minna af rjúpum núna, en á síðasta ári. Veiði umfram væntingar Erfitt er að henda reiður á fjölda rjúpna sem hafa verið skotnar en gera má ráð fyrir að á milli 70 og 80 þúsund fuglar hafi verið skotnir. Það er líklega eitthvað meira en um- hverfisráðherra vonaðist til. Miklar sögusagnir hafa verið í gangi um veiðina enda vitað að „nokkrir“ skot- veiðimenn hafa farið yfir strikið og veitt alltof mikið. Undir lok rjúpnaveiðitímabilsins þótti Skotveiðifélagi íslands ástæða til að senda félagsmönnum sinum eftirfarandi yfirlýsingu. „Sem kunnugt er höfum við, Skotvís og ýmsir aðrir t.d. Umhverfisráðherra og Umhverfisstofnun, skorað á veiði- menn að gæta hófs við veiðarnar í ár. Umhverfisráðherra hefur lýst því yfir að hún treysti veiðimönnum í þessum efnum. Þess vegna varð veiðitíminn lengri en búist var við s.l. sumar. Ekki er hægt að segja annað en að almenn ánægja hafi verið með þetta fyrirkomulagmeðalskotveiðimanna. Sögusagnir hafa verið í gangi um mikla veiði sumra veiðimanna. Fæstar hafa þó fengist staðfestar. Einnig hefur verið talsvert um fréttirafafardræmriveiði.Tilþessað fá sem nákvæmastar upplýsingar um rjúpnaveiðinúíármunSkotveiðifélag Islandsefnatilskoðanakönnunarum veiðina nú í haust“. Fyrsta skemmti- kvöld vetrarins hjá Stangó Þá er komið að því að dagskrá vetrarins hjá skemmtinefnd SVFR fari af stað og í kvöld verður fyrsta skemmtikvöldið í sal Stangaveiðifélags Reykja- vikur. Dagskrá kvöldsins er að vanda skemmtileg blanda af fróðleik og skemmtun. Séra Pálmi Matthíasson flytur stutta jólahugvekju veiðimanna og veiðistaðalýsing verður á Svalbarðsá í Þistilfirði. Bjarni Júlíusson formaður SVFR kynnir söluskrána og ný veiðisvæði og Hilmar Hansson ræðir um „hitch“. Ennfremur verður myndagetraun og ekki má gleyma Happahylnum sem hefur að geyma mikið af glæsilegum vinningum.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.