blaðið

Ulloq

blaðið - 02.12.2005, Qupperneq 40

blaðið - 02.12.2005, Qupperneq 40
40 I AFPREYING FÖSTUDAGUR 2. DESEMBER 2005 blaöiö DVD bjalla Það er úrelt að eiga VW bjöllu, nú er málið DVD bjalla. Þessi sæti DVD spilarisem , . er í laginu eins og VW bjalla er töluvert meira stofustáss en meðalspilarinn úr raftækja- verslun. Einnig er hægt að fá Mini DVD spilara, þ.e. Aston Mini DVD, fyrir 26.040 jen í Japan, um 14 þúsund krón- ur. Útvarp er innifalið undir húddinu og fjarstýring fylgir. Tíma- skekkja Nýjasta gestaþrautin sem hægt er að fá telur tímann í öfuga átt. Því miður lætur öfugúrið engan yngjast heldur gengur einfaldlega í öfuga átt við það sem venjulegt þykir. Svindlarar geta auðvitað notað spegil til að sjá hvernig tímanum líður. Bjórbumban Flestir kannast við að hafa séð sportidjóta með þar til gerðan poka fylltan vatni á bakinu til að halda vatnsbúskap líkamans í jafnvægi öllum stundum. Bjór- bumban er svar lata mannsins við þessu. Nú festist pokinn framan á magann og myndar hina fínustu bjórbumbu. www.thebeer- belly.com. Mörda - Scrabble Ml Nördar heimsins UVW. sameinist í nörda- skrabbli. Búið er að BP1 framleiða svokallaða L33T (leet) útgáfu Wj/ af hinu sívinsæla Scrabble spili. Þá Sttfife er hægt að mynda setningar eins og M „1 4t3 joor noodi35“ sem þýðir á ensku „I ate your noodles". Símjúkt smjör Húsmæður og verkamenn allra landa geta sammælst um það að smjör er yfirleitt annað hvort of hart (nýkomið úr ísskápnum) eða of mjúkt (búið að standa of lengi). Nú munu íbúar Wales eldd sætta sig við þetta lengur heldur hafa þeir framleitt Smjörsnill- inginn, hitastilltan smjördisk sem heldur smjörinu símjúku. *• 109 SU DOKU talnaþrautir Leiðbeiningar Su Doku þrautin snýst um aö raða tölunum frá 1 -9 lárétt og lóðrétt í reitina, þannig aö hver tala komi ekki nema einu sinni fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu má aukin heldur aöeins nota einu sinni innan hvers níu reita fylkis. Unnt er að leysa þrautina út frá þeim tölum, sem upp eru gefnar. 6 3 4 2 9 7 5 8 4 7 1 4 6 1 8 9 1 8 7 1 4 5 7 1 3 9 5 2 8 7 7 1 5 4 Lausn á siðustu þraut 9 5 3 4 7 2 6 1 8 4 2 8 3 1 6 5 7 9 6 7 1 8 9 5 4 2 3 1 9 2 5 4 3 8 6 7 8 4 7 2 6 9 1 3 5 3 6 5 1 8 7 9 4 2 2 1 9 6 3 8 7 5 4 5 8 4 7 2 1 3 9 6 7 3 6 9 5 4 2 8 1 Go!Sudoku Eitt mesta æðið í dag eru Sudoku þrautirnar sem flestir kannast við. Nú er kominn Sudoku leikur á PSP leikjavél- ina sem heitir Go! Sudoku. Leikurinn inniheldur meira en 1000 þrautir, en þar að auki geta leikmenn hlaðið niður fleiri þrautum af netinu. Xbox 360 á íshtndi Xbox 360 leikjavélin er komin til íslands. Áhugasömum til mikillar gremju tók hún einungis fáa bræður og systur með sér yfir Atlantshafið svo íslendingar þurfa flestir að hinkra ör- lítið lengur áður en þeir geta leikið sér að glænýrri leikjatölvu af nýrri kynslóð. í kjölfar útgáfu vélarinnar í Bandaríkjunum þar sem hún seldist upp á nokkrum klukkustundum fór að heyrast orðróm- ur um að einungis takmarkað magn af Xbox 360 kæmi til Evr- ópu fyrir jólin. Þetta virðist hafa gengið eftir og má sem dæmi nefna að einn stærsti seljandinn í Bretlandi, www.amazon. co.uk, fékk víst ekki nema 300 vélar í fyrstu sendingu. Hingað til lands bárust víst ekki nema 10% af því magni sem pantað var í fyrstu sendingu. Samkvæmt upplýsingum frá Tölvudreifingu, dreifingaraðilanum, er von á einhverjum tölvum í viðbót fyrir jól en almennilegt flæði verður ekki kom- ið á fyrr en í janúar. Þrátt fyrir þetta geta vongóðir leikjaunn- endur hringt í smásöluaðila i dag og vonað að fá eintak af vélinni eftirsóttu. Fyrstur kemur, fyrstu fær! Hélt hún framhjá? Hefur konan þín verið að vinna lengi frameftir undanfarið? Er karl- mannslykt af henni þegar hún loks- ins lætur sjá sig? Grunar þig hana um græsku? örvæntu eigi því með CheckMate heimaprófinu fyrir væn- issjúka karlmenn getur þú kannað hvort hún sé með óhreint mjöl í pokahorninu, eða réttara sagt óhreinar nærbuxur. Með prófinu, sem virkar svipað og þungunarpróf, getur þú kannað á nokkrum sekúndum hvort sæði hafi komist í nærbuxur maka þíns. Hver pakki af CheckMate inniheld- ur tvö sett af prófum sem samanlagt er hægt að nota til að kanna sæðis- bletti á tuttugu flíkum. Styttri stundir í Strœtó Það kannast flestir við eirðarleysi þegar beðið er. Hvort það er eftir næsta Strætó eða á biðstofu hjá tannlækninum þar sem ekkert les- efni er í boði. Á slíkum stundum grípa margir til GSM símans. Oft- ar en ekki sendir fólk SMS til vina og kunningja í tilraun til að hafa eitthvað fyrir stafni. Eftir að snake hætti að vera aðalleikurinn í Nokia símum hefur vantað góða leiki í sím- ana en Vodafone Live!, ný þjónusta Og Vodafone, kippir því í liðinn. Not- andi getur séð hvaða leikir eru fáan- legir fyrir sinn síma, séð skjámyndir af þeim og lesið lýsingu á íslensku. Þá er hægt að sækja sér leiki á ein- ungis nokkrum sekúndum. Guðný Lára Arnadóttir skoðar leik í GSM sfma.

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.