blaðið - 10.12.2005, Page 12
121 ERLENDAR FRÉTTIR
LAUGARDAGUR 10. DESEMBER 2005 blaöiö
Vill færa ísrael til Evrópu
Mahmoud Ahmadinejad, forseti
írans, lét hafa eftir sér síðastliðinn
fimmtudag að hann efaðist stórlega
um að helförin hefði átt sér stað
og lagði til að Israel yrði flutt frá
Miðausturlöndum yfir til Evrópu.
Ummælin lét hann falla á frétta-
mannafundi í Mekka i Saudí Arabíu
og þau koma í kjölfar þess að hann
kallaði eftir því í október að fsrael
yði „þurrkað út af kortinu.“
Ahmadinejad sagði að Evrópulönd
staðhæfðu að Hitler hefði drepið
milljónir saklausra gyðinga og ef að
einhverjir kæmu með sannanir gegn
þeirri staðhæfingu væri sá hinn
sami fordæmdur og kastað í fangelsi.
Hann vakti einnig spurn á því hvort
það stæðist sem rökstuðningur við
áframhaldandi stuðning margra
Evrópulanda við ísrael og landtökur
þeirra í Jerúsalem að vitna í að Hitler
hefði drepið saklausa gyðinga, enda
Hitler evrópskur. „Ef Evrópumenn
eru heiðarlegir, þá ættu þeir að gefa
sum af héruðum sínum, eins og í
Þýskalandi, Austurriki og öðrum
löndum, til Síonista, og þeir geta þá
stofnsett ríki sitt í Evrópu.“
Eykur kjarnorkuáhyggjur
Talsmaður Ariel Sharon, forsæt-
isráðherra ísraels, sagði að orð
Ahmadinejad væru gott dæmi um
samhljóma álit sem þrifist innan
hluta arabaheimsins þess efnis að
gyðingar hefðu engan rétt til þess
að koma á fót lýðræðislegu gyðinga-
ríki í heimalandi forfeðra sinna.
Scott McClellan, talsmaður Banda-
ríkjastjórnar, sagði þessi ummæli
ekki gera neitt annað en að auka
áhyggjur stjórnarinnar þar í landi af
þessari nýju ríkisstjórn frans. Hann
sagði einnig að svona atburðir væru
einungis til þess að styrkja Banda-
ríkjastjórn í þeirri trú sinni að það
væri afar mikilvægt að koma í veg
fyrir að fran öðlist getu til þess að
framleiða kjarnorkuvopn.
Mahmoud Ahmadinejad, forseti (rans, seg-
ist hafa efasemdir um tilvist helfararinnar
og leggur til að fsrael verði fært til Evrópu.
Farsímabæklingur handa foreldrum
Banaslys á
Chicago
flugvelli
Sex ára gamall drengur lést í gær
þegar Boeing 737-700 flugvél frá
Southwest flugfélaginu rann út af
flugbrautinni á Midway-flugvelli í
Chicago, inn á nærliggjandi gatna-
mót og yfir tvo bíla sem voru á ferð
þar um. Drengurinn var í bflnum
ásamt foreldrum sínum og tveimur
yngri bræðrum þegar bíllinn
kramdist undir nefi og bol flugvél-
arinnar. Faðir drengsins og bróðir
hans, sem er einungis kornabarn,
liggja alvarlega slasaðir eftir slysið
og fjórir aðrir í næsta bíl á eftir
íjölskyldunni hlutu einnig alvarleg
meiðsli þó að ástand þeirra sé stöð-
ugt. Rannsókn á tildrögum slyssins
er hafin en engar vísbendingar
hafa komið fram um vélabilanir og
flugvélin hafði fengið leyfi til þess
að lenda þrátt fyrir mikinn snjó og
þó nokkurn vind. Slysið átti sér stað
á sama degi, þann 9. desember, og
banvænt flugslys varð á Midway-
flugvelli fyrir 33 árum þegar flugvél
í lendingu rakst utan í fjöldamörg
hús áður en hún endaði ofan á
einu þeirra. 45 manns létust þá, 43
farþegar flugvélarinnar og tveir
íbúar í húsunum sem hún keyrði á.
1 Frakklandi hafa verið gefnar út
sérstakar leiðbeiningar fyrir for-
eldra vegna farsímanotkunar barna
þeirra. Ibæklingnum er meðal ann-
ars fjallað um hvaða hættur kunna
að stafa að heilsu fólks vegna síma-
notkunar og tæknilegar og lagalegar
hliðar farsímanotkunar. Þá skýrir
hann sérstaklega hvernig er hægt að
stjórna notkun á margmiðlunarþjón-
ustu símanna og hvernig er hægt að
koma í veg fyrir að börn noti þá til
að nálgast ólöglegt efni. Einnig er
þar að finna ráð um hvernig megi
koma í veg fyrir að síminn sé not-
aður í slæmum tilgangi svo sem til
að leggja fólk í einelti og hvernig
skuli brugðist við ef barnið verður
fórnarlamb símaáreitis af einhverju
tagi.
Farsímar verða sífellt flóknari og
með þeim nýjustu er jafnvel hægt
að vafra á Internetinu, skoða blogg-
síður og taka þátt í spjallþráðum.
Ennfremur verða farsímanotendur
sífellt yngri og því var talin brýn
þörf á að gefa út slíkan bækling í
Frakklandi.
f Frakklandi hefur verið gefinn út sérstak-
ur leiðbeiningabæklingur fyrir foreldra
vegna farsímanotkunar barna þeirra.
Myndlistarhátíð
í Galleríi Fold
tilefni af því aö viö tökum í notkun þrjá nýja sýningarsali á
Rauöarárstíg bjóöum við til myndlistarhátíöar um helgina.
Hundruð verka til sýnis.
Við kynnum vaxtalausu listmunalánin
Allir sem kaupa listaverk um helgina á vaxtalausu
láni fá grafíkverk eftir Kristján Davíðsson i kaupbæti
Öll böm fá jólanammi
Opið á laugardag 10-22, sunnudag 10-17
Rau&arárstíg 14, sími 5510400 • Kringlunni, sími 568 0400
www.myndlist.is
Velkomin í Gallerí Fold
Tilkynnt um
gasleiðslu frá
Rússlandi til
Þýskalands
Vinna er hafin við byggingu
gasleiðslukerfis frá Rússlandi til
Þýskalands um Eystrasalt. Leiðslan
mun verða um 1.200 kílómetra löng
og er afar umdeild. Þar sem hún
mun liggja um Eystrasalt þá mun
hún ekki fara í gegnum Pólland né
Úkrafnu. Bæði ríkin eru hrædd um
að skrúfað verði fyrir gasflæði frá
Rússlandi til þeirra þegar leiðslan
verður tilbúin, en stefnt er að því að
hún verði komin í gagnið árið 2010.
Framkvæmdin kostar um 5 millj-
arða dala og var samningur um gerð
hennar undirritaður í september
siðastliðnum. Það er hins vegar ekki
fyrr en núná sem að lega hennar og
umfang er tilkynnt. Leiðslan er Þjóð-
verjum gífurlega mikilvæg enda tak-
markaðar náttúruauðlindir til staðar
þar í landi. Rússland er á hinn bóg-
inn einn af stærstu birgðarsölum
á gasi og olíu til Vestur-Evrópu.
Bannað að nota
upplýsingar sem
fengnar eru með
pyntingum
Hæstiréttur Bretlands kvað upp
úrskurð þess efnis á fimmtudaginn
að allar þær upplýsingar sem fengnar
væru með því að beita pyntingum
mætti hvergi nota við réttarhöld f
Bretlandi. Hæstiréttur snéri með
þessu við niðurstöðu áfiýjunardóm-
stóls frá því 1 ágúst í fýrra. Dómurinn
skyldar stjórnvöld í Bretlandi nú til
þess að sýna fram á að sönnunar-
gögn sem hafa verið notuð í tugum
réttarhalda yfir útlendingum sem átt
hefúr að vísa úr landi eða fangelsa
vegna grunsemda um hryðjuverk
hafi ekki verið fengin með pynt-
ingum. Talið er að þetta muni eiga
við í málum að minnsta kosti 30
manna og er búist við að upplýs-
ingar sem hafa verið fengnar með
pyntingum verði kjarninn í meðferð
22 áfrýjunarmála manna sem hafa
áfrýjað dómum um að þeim verði
vfsað úr landi. Sömu sögu er að segja
í málum fimm annarra sem hafa
verið handteknir undir hatti hryðju-
verkalöggjafarinnar í Bretlandi.