blaðið

Ulloq

blaðið - 10.12.2005, Qupperneq 54

blaðið - 10.12.2005, Qupperneq 54
541 ÍPRÓTTIR LAUGARDAGUR 10. DESEMBER 2005 blaöið ,Þú spilar bara í þeim takkaskóm sem þér finnst best að vera í" - segir Páll Einarsson fyrrum fyrirliði Þróttar í knattspyrnu. Það er ekki ofsögum sagt að allt sé nú komið upp í háaloft í herbúðum Þróttara í Reykjavík. Við greindum hér fyrr í vikunni frá ágreiningi á milli þjálfara meistaraflokks karla, Atla Eðvaldssonar, og fyrirliða liðs- ins, Páls Einarssonar, sem er reyndar nú í dag fyrrum fyrirliði Þróttar þar sem hann er hættur. 1 gær birti Fréttablaðið tilkynn- ingu frá Atla Eðvaldssyni þar sem hann fer ekki fögrum orðum um Pál Einarsson hvort sem er um fyrir- liðann Pál Einarsson eða persónuna Pál Einarsson. Páll Einarsson var í viðtah síðast- liðinn mánudag í útvarpsþættinum Mín skoðun á XFM þar sem hann vildi ekkert tjá sig um brotthvarf sitt frá Þrótti en skoraði hins vegar á Atla að koma fram og tjá sig. Atli varð við því en undirritaður hringdi í Atla síðastliðinn þriðjudag og vildi fá viðtal við hann en hann bað þá um að fá nokkra daga til að gefa út tilkynningu um málið. Allt í lagi með það. Það kom þvi undirrit- uðum verulega á óvart þegar hann sá þetta í Fréttablaðinu i gær. Atli sendi fréttatilkynninguna á 365 eins og aðrir fjölmiðlar væru ekki til. Þegar undirritaður hringdi í Atla í gærmorgun vegna þessa þá spurði hann: „Af hverju hringdirðu ekki?“. Þessi spurning minnir óneitanlega á Fótboltasögu Guðna Bergs þegar Atli spurði Guðna af hverju Guðni hafi ekki hringt i hann til að boða komu sína á ný í landsliðið. Átti fréttamaðurinn Valtýr Björn í þessu tilviki að finna það á sér hvenær fréttatilkynningin yrði gefin út? Held ekki. Atli sendi ekki einu sinni á Morgunblaðið. Þess ber að geta hér að Atli Eðvaldsson skrifar undir þessa tilkynningu með nafni og sem þjálfari meistaraflokks Þróttar. Spurt er. Sitja ekki allir fjölmiðlar við sama borð hjá Þrótti? En að greininni. Að mati margra knattspyrnuunnenda sem hafa lesið greinina í Fréttablaðinu, fer þjálfari Þróttar langt yfir strikið þar sem hann vegur illa og ómaklega að per- sónu Páls. Ágreiningur þeirra á sér nokkrar ástæður. Atli vildi að Páll spilaði í skrúfutökkum á blautu grasi en ekki á malartökkum. Atli var óánægður með framferði Páls i þýðingarmiklum leik gegn ÍBV í sumar þar sem Atli segir hann hafa komið óundirbúinn til leiks, fengið sér samloku fyrir leik og fleira. Saman fléttast þetta, grastakkarnir og ÍBV-leikurinn, þegar Atli segir í tilkyninngunni að „hann hafi ítrekað reynt að tala um fyrir Páli en hann láti ekki til segjast. Enda hafi ófáar rassadettur hans ekki bara kostað okkur mörk, heldur líka stig og fall um deild.“ Undir fyrirsögninni: „Með bumb- una hangandi yfir buxnastrenginn" vegur Atli mjög að persónu Páls Ein- arssonar. Talar þar um aldur, hæð og þyngd og segir: „Páll er á 34. ald- ursári sem er hár aldur fyrir knatt- spyrnumann. Hann er leikjahæsti maður Þróttar frá upphafi. Hann hefur leikið 362 leiki. Þótt Páll sé leikjahæsti leikmaður Þróttar kemst hann ekki inn á lista yfir fimm leikja- hæstu leikmenn Þróttar i efstu deild. Hann kemst ekki inn á topp fimm yfir markahæstu leikmenn Þróttar í efstu deild. Hann er ekki í líkamlega góðu ástandi og hefur langa meiðsla- sögu að baki. Hann er alltof þungur. Páll er rúmir 180 senimetrar á hæð og vigtaðist þann 15. nóvember 92 kíló sem er alltof þungt fyrir miðju- mann sem gefur sig út fyrir að vilja spila í efstu deild. Þetta er vandamál sem Páll hefur víst aldrei sýnt neinn vilja til að taka á. Fótboltamenn eiga ekki að vera með bumbuna hang- andi yfir buxnastrenginn. Páll hefur alið sinn leikferil í 1. deild. Þau þrjú tímabil sem hann hefur spilað í efstu deild hefur hann sem fyrirliði leitt lið sitt til falls,“ segir Atli Eð- valdsson meðal annars í grein sinni. Þetta eru vissulega stór orð. Þá hafa Atli og Páll deilt um æfingar en upp úr sauð eftir æfingu föstudaginn 25. nóvember síðastlið- inn þegar Þróttarar voru í World Class æfingastöðinni. Þar fór Páll í fyrra fallinu vegna jólahlaðborðs en Atli segir að hann hafi svikist undan æfingum. Páll sagði í útvarpsþætt- inum Mín skoðun á XFM í gær að þetta væri ekki rétt hjá Atla. Hann hafi mætt fyrr og gert sínar æfingar og farið síðan. Ennfremur segir Atli í greininni að hann og Páll hafi átt einhverja tvo fundi um málið sem Páll segir hafa verið einn. Þegar Páll var spurður út í grein Atla Eðvalds- sonar voru hans fyrstu viðbrögð að honum hafi verið brugðið. En hvert er málið eiginlega að mati Páls? „Ég held að aðalmálið hafi verið gert út af þessari föstudagsæfingu. Fyrir mér er eitthvað samlokuát eða takkaskór ekkert mál. Þú spilar bara í þeim takkaskóm sem þú ert í og þér finnst best að vera í. Eg var ekkert sá eini sem var í malartökkum. Að koma með einhverja svona ástæðu fyrir brottrekstri finnst mér vera dálítið langsótt," sagði Páll Einars- son í gær. Um seinni hluta greinar Atla eða fréttatilkynningu, sagði Páll: „Þessi seinni hluti greinarinnar er nokkuð sem ég átta mig ekki alveg á af hverju hann er að koma með. Þetta er nokkuð sem kemur þessum ástæðum ekkert við. í heild er þetta, þegar maður les þetta, bara persónulegt.“ En kom þeim Atla eitthvað illa saman? „Nei alls ekki. Á engan hátt og við höfum aldrei talað hátt hvor við annan eða neitt þess háttar. Ekkert svoleiðis,“ sagði Páll Einarsson í sam- tali í útvarpsþættinum Mín skoðun á XFM í gær. Aðspurður um hvort möguleiki væri á að Páll spilaði með Þrótti á ný ef Atli hætti sem þjálfari sagði Páll: HM-boltinn kynntur í gærkvöldi í gærkvöldi var dregið í riðla í heimsmeistaramótinu í knatt- spyrnu sem fer fram í Þýskalandi næsta sumar. Þá var einnig kynntur til leiks fótboltinn sem verður notaður í keppninni en kynningin fór fram í Leipzig. Boltinn heitir +Teamgeist og það er að venju Adidas sem framleiðir þennan fótbolta. Hann býr víst yfir alveg nýrri tækni. Ysta lag boltans er sett saman af 14 einingum í stað 32 í hefðbundnum fótbolta. Við þetta fækkar svokölluðum þriggja hliða samskeytum sem er minnkun upp á 60% og eins fækkar öðrum samskeytum um 15% frá fyrri keppnisboltum. „Nei, það geri ég ekki. Það er alveg kristaltært að það verður ekki,“ sagði Páll. Hann sagði einnig að hann væri að velta öðrum liðum fyrir sér en það mátti augljóslega heyra á viðtalinu í gær við Pál Einarsson að honum var mjög brugðið yfir grein/fréttatil- kynningu Atla Eðvaldssonar. Þetta mál virðist ekki vera leyst þó svo að Atli og stjórn Þróttar telji að svo sé. Það eru jú til stuðningsmenn sem eru ekki á eitt sáttir í málinu. Meirihluti þeirra, sem undirritaður hafði samband við í gær og eða létu í sér heyra, var á því að Atli Eðvalds- son, þjálfari, hafi með þessari grein eða fréttatilkynningu farið langt yfir strikið og eru margir efins um að stjórn félagsins hafi fengið að lesa yfir títt nefnda grein/fréttatilkynn- ingu. Ef svo er ekki, hvað verður þá gert? Hvernig verður andrúmsloftið fyrir Atla á næstu misserum innan Þróttar. Fær hann þann stuðning sem þjálfari þarf til að geta einbeitt sér og náð árangri? Þetta eru margar spurningar og þær eru eflaust miklu fleiri. Eitt er nokkuð víst að þessu máli er hvergi nærri lokið þó svo að Alti Eðvaldsson segi í greininni/ fréttatilkynningunni að þetta séu hans síðustu orð í þessu máli. Þetta þýðir að boltinn hefur betra kúlulaga yfirborð en aðrir fótboltar og er hann sá nákvæm- asti sem ffamleiddur hefur verið. Samkvæmt prófunum er þessi bolti þrisvar sinnum nákvæmari ern aðrir keppnisboltar í dag. +Teamgeist-boltinn er hvítur og svartur eða í sömu litum og litir þýska knattspyrnulandsliðs- ins og hefur hann einnig gylltar línur sem endurspegla litinn í heimsmeistarabikarnum sjálfum. Nafnið, Teamgeist, er byggt á því allra mikilvægasta í boltanum eða liðsandanum. 20% afsláttur 8. -15. desember I m Auglýst er eftir framboðum til prófkjörs í Reykjavík Ákveðið hefur verið að efna til prófkjörs til að velja sex efstu frambjóðendur Framsóknarflokksins í Reykjavík við borgarstjórnar- kosningarnar 27. maí 2006. Prófkjörið fer fram laugardaginn 28. janúar 2006. Hér með er auglýst eftir framboðum Frambjóðendur geta þeir einir orðið sem hafa kjörgengi til borgarstjórnar Reykjavíkur og eru félagsmenn í Framsóknar- flokknum. Framboðum skal skila skriflega til skrifstofu Framsóknar- flokksins, Hverfisgötu 33 (2. hæð), 101 Reykjavík. Yfirlýsingu um framboð skal fylgja mynd og stutt æviágrip. Framboðs- frestur er til kl. 16.00 fimmtudaginn 29. desember 2005. Nánari upplýsingar eru veittará skrifstofu Framsóknarflokksins í síma 540 4300. Stjórnir kjördæmasambanda framsóknarmanna í Reykjavík. fyrirframgreidd símakort fyrir alla síma Mjög ódýr símtöl til útlanda - allt að 1630 mínútur c *
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.