blaðið - 15.12.2005, Qupperneq 30
30 I ÝMISLEGT
FIMMTUDAGUR 15. DESEMBER 2005 blaðið
Ljósmyndanám nýtist bœði
lœrðum og leikmönnum
Ljósmyndaskólinn kennirfólki að taka betri myndir
,Einn þriðji af því fólki sem kemur
á námskeið til mín vill læra að taka
betri myndir og tekur myndir í
tómstundum sínum“, segir Sigríður
Ólafsdóttir (Sissa) annar eigandi
Ljósmyndaskólans. Hún segir að
Ljósmyndaskólinn hafi þróast úr því
að vera þriggja mánaða námskeið
í að verða nám sem tekur heilan
vetur. „Þetta er mikil vinna og ég
mæli ekki með því að fólk sé í fullri
vinnu með náminu. Það er kennt
tvö -þrjú kvöld í viku og stundum
um helgar og einnig fer mikill tími
í heimavinnu. Margir sem koma í
Ljósmyndaskólann halda áfram og
sækja um nám erlendis. Þetta virð-
ist vera góður grunnur fyrir frekara
nám því þeir sem hafa sótt um nám
erlendis hafa undantekningarlaust
komist inn,“ segir Sissa.
í Ljósmyndaskólanum er kennt
að framkalla og stækka myndir og
fólki er kennt að vinna með filmur.
Sissa segir farið í tæknilegan grunn
ljósmyndunar og síðan er stiklað á
ýmsum sviðum ljósmyndunar, s.s.
fyrir dagblöð, tímarit og listaljós-
myndun. „Ef fólk kann á filmuvél er
létt að skipta yfir í digital og með því
að læra á filmu er auðveldara fyrir
fólk að skilja ljósmyndunina," segir
Sissa. Hún segir aldurshóp þeirra
sem eru í ljósmyndaskólanum vera
frá 20-50 ára en að meðalaldurinn
sé 30-35 ára. „Það er gaman að fylgj-
ast með því hvað fólk vinnur misjafn-
lega eftir aldri. Þeir sem eru yngri
eru djarfari en þeir eldri pæla meira
í hlutunum, eru að þessu til að læra
og eru samviskusamari. Þeir sem
Mynd/Cúndi
eru eldri vita líka að maður uppsker
eins og maður sáir en mér finnst ald-
fyrirallt
áhugafólk
um knatt-
T~~-
spyrnu
EÍdri bœkur
á úlboöi í^' .
\ ^
V
índur
urshóparnir vinna mjög vel saman,"
segir Sissa.
Sissa segir ljósmyndun meira
krefjandi en margir geri sér grein
fyrir en sjálf lærði hún erlendis.
,Eg stofnaði þennan skóla því mér
fannst vanta góða grundvallarþekk-
ingu í Ijósmyndun hérna heima,“
segir Sissa. Hún segir suma vera
með myrkraherbergi heima hjá sér
og vinni við ljósmyndun en komi í
Ljósmyndaskólann til að bæta við
þekkingu sína. Þá er ekki óalgengt
að fólk sem hefur verið í listnámi
komi í skólann.
Leifur Rögnvaldsson maður Sissu
og hinn eigandi Ljósmyndaskólans
segir suma sem byrja í ljósmyndun
af áhuga fái brennandi áhuga á fag-
inu og endi á því að leggja hana fyrir
sig.
hugrun@vbl.is
Sjáið myndirnar á
www.bilamarkadurinn.is
^BciamanÁrtciufictuí
• SttUSLiutmmi 46 £ • ‘XitnvmU
S. 567 1800
Hvað vilt þú
fá í jólagjöf?
Og hvað er það besta sem þú hefurfengið?
Steingrímur Gauti Ingólfs-
son, menntaskólanemi
„Veistu, það er bara enginn búinn
að spyrja mig að þessu. Ætli ég verði
ekki að segja áskrift að einhverju
skemmtilegu timariti, góðu slúð-
urblaði. Fyrir því eru svosum fáar
ástæður, mér leiðist ótrúlega mikið
þessa dagana og þegar manni leið-
ist er fínt að geta gert eitthvað sem
skiptir engu máli. Eins og að lesa
slúðurblöð. Annars hlakka ég mikið
til jólanna, ég hef verið erlendis
síðustu tvö jól og bíð því óþreyju-
fullur eftir því að fá að upplifa ekta
íslensk jól, með hangikjöti og fjöl-
skylduhangsi. Það er alltaf voðalega
notalegt.
Það besta sem ég hef fengið í jóla-
gjöf er líklega Kawai-skemmtari
sem ég fékk þegar ég var 12 ára gam-
all. Þá eða Legokastali einhverntíma
í fyrndinni. Eg hef alltaf verið mjög
hrifinn af vörunum frá Lego - þær
hjálpa mér að einbeita mér, nú eða
slappa af þegar svo ber undir.“
haukur@vbl.is
Faröi gegn
hrukkum
Dior hefur sent frá sér farða sem
er engum líkur. Auk þess að vera
farði þá vinnur Dior Sculpt Line-
Smoothing Lifting Make up gegn
hrukkum og ýtir undir ferskleika
andlitsins. Farðinn sléttir úr línum
í andlitinu og í raun má segja að
hann sé minniháttar andlitslyfting,
á meðan á notkun stendur. Andlitið
er alltaf ferskt og heilbrigt útlits með
Dior Sculpt farða. Dior Sculpt fæst í
sex húðlitum og ættu þvi flestir að
finna eitthvað við sitt hæfi.
022
“'IOKSKIN
l’CULPT
' ON’D DFlDNT
4 L'SSANT
• ' 'A'nV'
• >4. UXKVip . ■£.
I)i,
Soin Corjjjj
áuto-Bronzont
fcnning
0d)' Uuio
m
‘r
*•«* Ooldrn «1 tm
m
Húðkrem
með sjálfs-
brúnku
Það er alltaf hægt að treysta á að
Clarins geri enn betur og nú er
komið ansi merkilegt body lotion á
markaðinn. Clarins Radiance-Plus
self tanning body lotion er húðkrem
með sjálfsbrúnku. Kremið blæs
nýju lífi og ljóma í húðina enda er
það uppfullt af vítamínum og raka.
Húðin öðlast ljóma Hkt og eftir sól-
bað og skín af hreysti.
Glimmer
yfir hátíð-
arnar
Þar sem glimmer
og glans er aðal-
málið um hátíð-
arnar væri ekki
verra að fjárfesta
í þessum sniðuga
brúsa sem inni-
heldur glimmer
í milljónavís.
Bourjois glimmer
brúsinn gefur
silfraða og fallega
áferð og má nota
á líkama og hár.
Glimmer dreifist
jafnt og vel um
húðina og er ein-
mitthæfilegtenda
bara spreyað á.