blaðið - 15.12.2005, Blaðsíða 32

blaðið - 15.12.2005, Blaðsíða 32
32 IFÖNDUR FIMMTUDAGUR 15. DESEMBER 2005 I blaðiö _L Gaman að eiga og gefa hluti eftir sjálfan sig Jólaföndrið búið að vera vinsœlt Jólaföndrið hefur verið mjög vinsælt fyrir jólin en það er að draga úr því núna allra síðustu daga, kannski vegna þess að fólk er upptekið við annað“, segir Þór- hildur Guðmundsdóttir sölukona í Skólavörðubúðinni. „Fyrr í mánuðinum var fólk mikið að koma og kaupa efni í jólakort en við erum með allt til kortagerðar, þ.á.m. karton, límmiða og skreyt- ingar í gylltu og silfruðu ásamt glansmyndum." í Skólavörðubúðinni er hægt að fá tilbúið jólaföndur í pakka sem aðeins þarf að setja saman, mála og skreyta. „Jólaföndrið er búið að vera mjög vinsælt en þetta eru jólafígúrur, englar úr frauðkeilum og jólaköttur. Þá hafa filtsokkar verið vinsælir og fólk er mikið að sauma þá handa börnum og barnabörnum. Dúkar undir jólatré hafa líka verið vinsælir en þeir eru seldir í tilbúnum pakkn- ingum. Jólaföndurvertíðin byrjaði um miðjan nóvember og fólk virðist taka sér tíma í þetta þrátt fyrir hraða þjóðfélagsins“, segir Þórhildur. Föndur þarf ekki að vera bundið jólunum og í Skólavörðubúðinni er hægt að fá nýja gerð af skrautgarni sem hefur verið vinsælt í slæður og hárbönd. Garninu fylgja leiðbein- ingar sem auðvelt er að fara eftir. Þórhildur segir kosti föndurs fram yfir keypta hluti þá að það sé gaman að eiga og gefa eitthvað eftir sjálfan sig. hugrun@vbl.is v\® .aV \<? Sendu eina fyrirsögn úr Blaðinu í dag á holar@vbl.is og þú gætir eignast eintak af bókinni Karlar ljúga, konur gráta. Blaðið Bæjarlind 14-16 201 Kópavogur blaóió D BÓKAÚTGÁFAN HÓLAR Gerum fallega hluti úr vönduðu hráefni Eftir því sem þjóðfélagið verður þróaðra verður eftirsóknarverð- ara að koma vinum á óvart með hlutum sem eru heimagerðir. Föndur snýst ekki bara um lím og pappír. Föndurstofan býður m.a. upp á námskeið í skartgripa- gerð þar sem allt hráefni er fyrsta flokks. „Við erum með efni í perlusaum, kortagerð og tækifæriskort“, segir Brynjar Guðmundsson sem rekur Föndurstofuna ásamt Geirþrúði Þorbjörnsdóttur konu sinni. „Við höfum verið með námskeið þar sem kennt er að perla utan um jólakúlur, fera þrívíddarlampa og skartgripi. skartgripagerð erum við aðallega með japanskar perlur. 1 perlusaum- inn erum við með Swarovski steina frá Austurríki sem eru notaðar í kúlurnar. Þrívíðu lamparnir hafa verið mjög vinsælir en allt efni sem þarf í lamp- ana kemur í einum pakka, og við erum líka með námskeið í að setja lampana saman. Þrívíddarlampar eru til í mörgum gerðum. Þá erum við með námskeið í skartgripagerð og grænlenskum perlusaumi.“ Brynjarsegirnámskeiðinspanna eina kvöldstund og byrja næstu námskeið í janúar. „Svokall- aðar þrívíddarmyndir eru mjög vinsælar um þessar mundir en við eigum 500 gerðir af þrívíddarörkum til að gera þvívíddar- myndir. Það nýjasta í kortagerð er að líma efni á hart plast sem síðan er klippt út og skreytt með glimmer- lími. Það má gera allar ?' gerðir tækifæriskorta með þessari aðferð.“ Eitt af því fyrsta sem á Föndurstofunni gerðu og urðu þekkt fyrir var að bora mynstur út í geisladiska. „Hér notum við föndur- bor til að gera götin og saumum síðan í með glimmerþræði. Diskana er bæði hægt að setja í ramma og nota sem myndir eða setja á kort.“ Þríviddarlampar eru nýjung á Islandi. Myndin er i 6 lögum úr pappa plasti svo hægt er aö þurrka af lampanum. Armband gert eftir aðferð sem kallast rússneskur spírall. Hægt er að gera þessi arm- böndílOOIitum. Brynjar segir að eftir því sem þjóðfélagið verði þróaðra verði eftir- sóknarverðara að fá hluti sem fólk geri sjálft. Hann segir föndur vera afslappandi og það hvetji fólk til að einbeita sér aðeins að því sem það er að gera þá stundina og því gleymist annað stress. Brynjar segir fólk á öllum aldri sækja námskeiðin. Föndurstofan er til húsa að Síðu- múli 15 og hægt er að panta vörur og námskeið á netinu. Brynjar segir allan aldur koma á föndurnámskeið hjá sér. hugrun@vbl.is Skrautið á kúlunni er gert úr Swarovski steinum • JÓLASVEINARNIR ÞRETTÁN • • DE TRETTEN JULESVENDE • • THE THIRTEEN ICELANDIC CHRISTMAS LADS • Vísur á íslensku, dönsku og ensku um íslensku jólasveinana, Grýlu, Leppalúða og jólaköttinn, með útsaumuðum myndum eftir höfundinn. V & •Tilvalin jólakveðja til ættingja og vina innanlands og utan. * 88 bls„ staerð 10,5x10,5 cm. Höfundur og útgefandi: Elsa E. Guðjónsson, Vogatungu 47, 200 Kópavogi Dreifing: Háskólaútgáfan

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.