blaðið - 17.12.2005, Side 22
blaðið___________________________________
Útgáfufélag: Ár og dagur ehf.
Stjórnarformaður: Sigurður G. Guðjónsson.
Ritstjóri: Karl Garðarsson.
NÝTT FJÖLMIÐLALANDSLAG
Nýtt fjölmiðlalandslag er óðum að taka á sig mynd. f gær var gengið
frá kaupum Morgunblaðsins á helmingshlut í Blaðinu. Með þessu gerist
tvennt. Morgunblaðið styrkir stöðu sína á fjölmiðlamarkaði til muna
og Blaðið fær öflugan bakhjarl í harðri samkeppni á fríblaðamarkaði.
Til samans mynda blöðin sterka heild, þar sem Morgunblaðið býr að
mikilli og góðri hefð sem áskriftarblað og Blaðið er nýjasta viðbótin á
fríblaðamarkaði.
Blaðið hefur verið gefið út í rúma sjö mánuði. Margir höfðu efasemdir
í upphafi að unnt væri að gefa út annað fríblað hér á landi við hlið
Fréttablaðsins sem náð hafði afar sterkri stöðu á markaðnum. Þær
efasemdaraddir hafa að mestu hljóðnað, enda hefur rekstur Blaðsins
gengið vel og samkvæmt þeim áætlunum sem gerðar voru. Tekjur
Blaðsins hafa vaxið með hverjum mánuði frá stofnun þess sem segir
okkur að bæði lesendur og auglýsendur hafa tekið þessari viðbót
fagnandi. Samstarfið við Morgunblaðið tryggir öflugra Blað sem hefur
alla burði til að standa sig vel í harðri samkeppni.
Mikið hefur verið talað um blokkamyndun á fjölmiðlamarkaði. Því
miður virðist nokkuð vera til í þeirri umræðu, en Blaðið hefur ætíð verið
andsnúið fjölmiðlablokkum, enda er frelsi fjölmiðla og frjáls umræða
mikilvæg í lýðræðisþjóðfélagi. Blokkamyndunin hefur hins vegar fyrst
og fremst átt sér stað undir hatti 365 miðla þar sem menn hafa kosið
að safna safna saman sjónvarps og útvarpsstöðvum, auk dagblaða
og tímarita, undir einn hatt. Samkvæmt úttekt Viðskiptablaðsins
fyrir skömmu eru þessir miðlar 365 komnir með yfirburðastöðu á
auglýsingamarkaði og geta þar með stýrt og stjórnað þeim markaði að
vild. Þetta er hættuleg þróun - það er ætíð hætta á ferðum þegar einn
aðili verður svo stór í einni grein að hann getur stjórnað markaðnum
að vild. Við þessu hefur verið brugðist þannig að almenningur á ekki
að þurfa að óttast að þjóðfélagasumræðan sé öll í sama farvegi, lituð af
hagsmunum einstakra aðila í þjóðfélaginu.
Miklar hræringar eiga eflaust eftir að verða á íslenskum
fjölmiðlamarkaði á næstu árum. Á þessari stundu veit enginn hvað gerist
eða hverjir stjórna þjóðfélagsumræðunni næstu árin eða áratugina.
Mikilvægast er að tryggja fjölbreytni auk þess sem blaðamenn þurfa að
fá frið til að sinna störfum sínum. Það verður aðeins gert með sterkum
fjölmiðlum sem sinna lýðræðislegum skyldum sínum í heiðarlegri
samkeppni. Blaðið mun taka þátt í þeirri samkeppni af fullum þunga.
Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson. Ritstjórn &auglýsingar. Bæjarlind 14-16,201 Kópavogur.
Aöalsími: 5103700. Símbréf á fréttadeild: 510.3701. Símbréfá auglýsingadeild: 510.3711.
Netföng: vbl@vbl.is, frettir@vbl.is, auglysingar@vbl.is.
Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins. Dreifing: íslandspóstur.
22 I
LAUGARDAGUR 17. DESEMBER 2005 blaöiö
SW0BB
06 COÐ LtST
"EfGfi
SmiEW
SNobí cr'
WfRiOtOTR
SW&ocgg
mwiGV j
tfVZÐ 'BiBUlVl
tw W Wtbs
S-NOBBÍ
l|lÐvJDt>JGAR I SmmuMFT 7
m> sfmi\ m SNomii
Gegn gleðinni
Harðlínu fenmínistar standa vakt-
ina eins og dyggustu stalínistar
gerðu á sínum tíma. Um leið og ein-
hver fer út af sporinu og hegðar sér
ekki í fullu samræmi við kenning-
una er honum send áminning. Þetta
mátti forsætisráðherra landsins
þola á dögunum þegar honum varð
það á að senda nýbakaðri alheims-
fegurðardrottningu hamingjuóskir
í nafni landsmanna. Forsetinn gerð-
ist sekur um sama athæfi en slapp
við ávítur, sennilega fengu harðlínu-
femínistarnir ekki fréttir af skeyta-
sendingu hans nógu tímanlega til
að geta brugðist við.
Hættulegur kynþokki
Telja má nokkuð víst að meirihluti
landsmanna sé bara þokkalega
ánægður með alheimsdrottninguna,
enda er hún ekki bara undurfalleg
heldur einnig einkar geðug stúlka.
Það er enginn glæpur að vera fal-
legur og nýta sér glæsilegt útlit, í
bland við aðra hæfileika til, að koma
sér í framfæri í þjóðfélaginu. Og jafn-
vel þótt einstaklingur hafi enga aðra
hæfileika til að bera aðra en snoturt
útlit þá hefur hann fullan rétt á því
að nota þessa einu guðsgjöf sér til
framdráttar. Rétt eins ogljóta fólkið
notar heilabúið eða einstaka hæfi-
leika til að finna sér stað í lífinu.
Einhverjum dögum eftir að hafa
gert athugasemdir við skeytasend-
ingu forsætisráðherra gerðu femín-
istar athugasemd við meinleysislega
blaðaauglýsingu sem sýnir fremur
kynþokkafullan jólasvein, með hálf-
bera bringu ef ég man rétt. Við hlið
hans er kona sem líst greinilega vel á
hann og gerði sig líklega til að kyssa
Kolbrún Bergþórsdóttir
hann. Þetta þótti femínistum hinn
mesti subbuskapur og mættu í sjón-
varpsviðtal og töluðu afvandlætingu
eins og verið væri að klámvæða jólin
á hinn svívirðilegasta hátt. Menn
geta haft misjafna skoðun á þessari
auglýsingu en óneitanlega lýsir það
sérkennilegum hugsunarhætti að
lesa úr henni klám og kvenfyrirlitn-
ingu. Það er einfaldlega bráðsnjallt
að gera jólasveininn að kyntákni,
þótt mér hefði persónulega þótt
betra að hann hefði haft einhver hár
á bringunni.
Óttinn við líkamann
Harðlínu femínistarnir virðast
hafa vissa andstyggð og fyrirlitn-
ingu á líkamanum. Allavega má
ekki sjást of mikið af honum því
þá gelta þeir í kór að líkaminn sé
orðinn að söluvöru. Þetta er furðu-
lega pempíulegt viðhorf og með
því eru femínistar að gefa mynd
af sér sem uppþornuðum strang-
trúarlegum siðapostulum. Slíkir
hópar munu þrífast vel í alræðis-
ríkjum þar sem talið er heppilegast
að þegnarnir séu eins og hugsi eins
og fái ekki óþægilegar hugmyndir.
Síst af öllu á þeim að þykja gaman
að lifa. Fólk sem hefur ánægju af líf-
inu er nefnilega líklegt til að hugsa
sjálfstætt.
Ég efast ekki um að femínistar
hafi nóg að iðja. Þess vegna ættu
þeir að hætta að berjast gegn gleð-
inni og snúa sér að alvörumálum.
Kosning íslenskrar alheimsfegurðar-
drottningar er gleðiefni. Jólasveina-
auglýsing Pepsi er skemmtileg og
saklaus og ekki líkleg til að auka á
lauslæti landsmanna. Femínistar
verða að venja sig af óttanum við
líkamann og bert hold. Líkami og
nekt þurfa ekki endilega að merkja
klám. Það kennir listasaga heimsins
okkur og varla gera harðlínu femín-
istarnir athugasemdir við hana. Eða
hvað? Er nakin kona kannski alltaf
fórnarlamb?
Klippt & skorið
klipptogskorid@vbl. is
„Grafarþögn umlykur Geir
á meSan Þorgerður Katrln
hefur átt býsna erfiða daga.
Geirveiteinsog Vilhjálmur
borgaríhald aö þögn og kyrrð
vinnur alltafmeð Sjálfstæðis-
flokknum. Það er hinsvegar undarlegt að
Geirskuli almennt ekki hafa meiri metnaðen
raun ber vitni. Jú, mildari útgáfa afDavlð og
verkefnið að endurheimta miðjuna. Það segir
Mogginn allavega. En ekkert meir Geir?
Maður hefði haldið að óskapiltur íhaldsins
léti aðeins meira að sér kveða. Sýndi með
afgerandi hætti að það væri nýr karl i brúnni.
Ekki bara rausið og skrumið um stétt með stétt.
Tómt tal einsog opinberast nú þegar Steinunn
Valdís borgarstjóri semur við verkakonur hjá
borginni um sanngjarnar og löngu tlmabærar
launahækkanir. Neiþátryllistlhaldið. Hvað
finnst Geir Haarde um það mál?"
BjÖRGVIN G. SlGURÐSSON * HEIMASÍDU SINNI, WWW.8J0IIGVIN.IS
StefnaDVÍEvrópu-
málum skýrðlst
nokkuð óvænt í
gær. í leiðara blaðsins fer Eiríkur Jónsson mik-
inn og greinilegt á skrifunum að hann er hund-
fúll yfir háu matarverði hér á landi. Þar segir
hann að sú staðreynd að matvöruverð sé 40%
hærra hér á landi en í nágrannaþjóðunum þýði
aðeins eitt—ísland verði aðgangaf Evrópusam-
bandið. „Helst má ætla að listamenn, mennta-
menn og aðrir gáfumenn setji sig upp á móti
Evrópusamstarfi í nafni þjóðrembu. Þær raddir
þagna fljótt þegar menningarstyrkir Evrópu-
sambandsins streyma til landsins.
Að lokum birtir Eiríkur mynd af Effel-
turninum f París við hlið leiðara og
segir; „Þarna hefur fólk allavega efni
áþvfað kaupa íjólamatinn".
Lftil frétt á síðunni www.billinn.is í
gær vakti óskipta athygli Klippara. Þar
segir frá því að Björgvin Freymóðsson
hafi orðið fyrstur til að kaupa bifreið af tegund-
inni Mazdaó MPS. í fréttini segirsfðan orðrétt:
„Þetta er fyrsti blll sinnar tegundar hérá
Islandi og erhann hlaðinn staðalbúnaði".
Klippari veit kannski ekki mikið um bíla, en
hann veit þó að venjulega eru bílar hlaðnir
aukabúnaði, en ekki staðalbúnaði. Hvort frétta-
skrifari á billinn.is eigi við að f bílnum sé auka
stýri, bremsur og gírstöng sem viðbótar staðal-
búnaður, skal hinsvegar ósagt látið.