blaðið - 17.12.2005, Side 48

blaðið - 17.12.2005, Side 48
48ibaRwAeFni LAUGARDAGUR 17. DESEMBER 2005 blaðið Þegar íslensku ostarnir eru bornirfram, einir sér, á ostabakka eða til að kóróna matargerðina — þá er hátíð! Dala-Yrja Sígildur veisluostur sem fer vel á ostabakka. Gullostur I Bragðmikill hvítmygluostur, glæsilegur á veisluborðið. CULL OSTUR Jóla-Yrja Bragðmild og góð eins og hún kemurfyrir eða í matargerð. Gráðaostur Tilvalinn til matargerðar. Góður einn og sér. Höfðingi Bragðmildur hvítmygluostur sem hefur slegið í gegn. Jóla-Brie A ostabakkann og með kexi og ávöxtum. 'Wf/Æ ^••/77 Camembert Einn og sér, á ostabakkann ogí matargerð. Stóri-Dímon Ómissandi þegar vanda á til veislunnar. Jólaostakaka með skógarberjajyllingu Kætir bragðlaukana svo um munar. Jólaosturinn 2005 Sétframleiddur ostur i ætt við Gouda Mjúkur og mildur. Blár kastali Meðferskum ávöxtum eða einn og sér. Rjómaostur A kexið, brauðið, í sósur og ídýfur. Hrókur ™ Ljúffengur hvitmygluostur með gati i miðjunni. Enginjól án ennra Gíraffar Gíraffar eru hæstu dýr í heimi. Hæð þeirra getur náð allt að fimm og hálfum metra sem er hærra en Þórey Edda Elísdóttir stangastökkvari hefur stokkið. Þrátt fyrir að almennt sé bara rætt um eina tegund gíraffa eru í raun til átta undirtegundir þeirra. Gíraffar halda sig ekki á einhverju ákveðnu svæði heldur ferðast um á stóru landssvæði í hjörðum. Hjarðirnar geta farið hratt yfir þar sem gíraffarnir geta hlaupið á allt að 6o kílómetra hraða. Mataræði gíraffa samanstendur fyrst og fremst af laufblöðum en fullorðin dýr éta allt að 35 kíló af þeim á einum sólarhring. GÍRAFFA GRÍN Hvenær hafa gíraffar átta lappir? Þegar þeir eru tveir saman. Hvers vegna eru gíraffar með svona langan háls? Til þess að tengja hausinn við búkinn. Samkvæmt Heimsmetabók Guinness hét hæsti gíraffi heims Georg. Hann mældist heilir 5,8 metrar á hæð í Chester dýragarðinum á Englandi árið 1959- Jólin nálgast Núna er síðasta helgin fyrir jól og því ekki seinna vænna að drekka í sig jólastemninguna. í jólaþorpinu í Hafnarfirði verður nóg um að vera fyrir þá sem þangað mæta. 1 dag munu hljóðfæraleikarar úr Lúðra- sveit Tónlistarskólans í Hafnarfirði leika jólalög klukkan 14.00 en ásamt þeim ætlar Bjössi bolla og einn jóla- sveinanna að mæta. Jólasveinninn mætir þó með henni mömmu sinni svo fólk verður að fara varlega. Á morgun verður skemmtunin ekki síðri þar sem Gluggagægir og Grýla ætla að dansa í kringum jóla- tréð með öllum þeim sem það vilja. Grýla gefur nammi um síðustu helgi. Einnig mun kór Flensborgarskóla syngja fyrir gesti þorpsins og Immi ananas og Rauða eplið úr Ávaxta- körfunni kíkja líka í heimsókn. Hvað er verra en gíraffi með hálsbólgu? Margfætla með hælsæri. Hvað færðu ef þú blandar saman gíraffa og broddgelti? Mjög stóran tannbursta. Hvað er verra en að finna maðk í eplinu sínu? Að finna hálfan maðk í eplinu sínu. ÞRAUTIN A R G T s E N U K Dæmi: Sterkur, gras... Hér kemur ný og betri orðaþraut. Hvað getur þú myndað mörg orð með því að nota stafina sem gefnir eru í reitunum. ÖIl orðin sem þú finnur verða þó að inni- halda stafinn í miðjunni. Ekkert takmark er á því hversu oft hver stafur má koma fyrir þannig að það getur verið alveg jafnerfitt að finna löng orð. JÓNSPÆJÓ Vissir þú að engir tveir gíraf- far eru eins? Þeir hafa allir mismunandi bletti á hálsinum. Kæru njósnarar Eins og ég sagði ykkur í síðustu viku er mjög mikilvægt fyrir spæjara að geta talað sín á milli án þess að aðrir skilji. Þá kenndi ég ykkur á mors- kerfið sem þið ættuð nú að kannast við. I dag ætla ég hins vegar að kenna ykkur nýtt tungumál sem getur nýst vel þegar óviðkomandi mega ekki vita hvað talað er um. Þetta leyni- lega tungumál heitir tottamál og er í raun sáraeinfalt. Þó er nauðsynlegt að æfa sig vel til að ná tungumálinu almennilega. Með góðri æfingu er hægt að tala reiprennandi og þá er útilokað að utanaðkomandi skilji neitt. Tottamál: Stafirnir skiptast niður í sérhljóða og samhljóða. Sérhljóðarnir eru a, á, e, é, i, í, o, ó, u, ú, y, ý, æ og ö. Aðrir stafir eru samhljóðar. Tottamál gengur út á að þegar maður talar bætir maður stafnum o fyrir aftan hvern samhljóða. Því næst endurtekur maður samhljóð- ann áður en maður heldur áfram með orðið. Dæmi: Hæ á tottamáli verður H o h æ. Æfðu þig að segja það hratt, hohæ. Sosvovo voverorðoðuror momaðoð- uror sosvovakoklolegoga fofloljoj- ótoturor aðoð totalola ogog enongog- inonon soskokiloluror momanonon. Njósnakveðja, Jojónon Sospopjojæjojó. Hafðu samband: krakkar@vbl.is eða Krakkaumfjöllun, Blaðið, Bæjarlind 14-16, 201 Kópavogur.

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.