blaðið - 17.12.2005, Síða 60
60 I FÓLK
LAUGARDAGUR 17. DESEMBER 2005 blaöið
AT TT T
HIMNALAGI
Smáborgarinn er auðvitað smáborgar-
legur í þrifum fyrir jólin. Hann hefur hing-
að til tekið allt í gegn, þrifið glugga að inn-
an og utan, sent gluggatjöldin í hreinsun,
pússað upp allt silfrið, já og koparinn,
hreinsað allar mottur og farið yfir lím-
föst teppi þar sem mest á lætur, bónað
parketið, vegghreinsað, jafnvel málað ef
vel eríári, endurraðað falla skápa og svo
framvegis. Þessi verklisti er auðvitað svo
langur að til að vel megi vera hefur Smá-
borgarinn þurft að hafa sig allan við allt
frá því í september enda eru þrifin bara
einn hluti af öllum jólaundirbúningnum.
Það þarf einnig að hnoða í þrettán smá-
kökusortir og baka randalín og jólaköku
og síðustu ár hefur heimagerða kon-
fektið sífellt orðið flóknara, svo ekki tal-
að sé um kostnaðinn. Þá er óupptalið allt
föndrið og viðgerðir á gömlu jólaskrauti,
þó auðvitað sé líka gaman að kaupa nýtt,
þá þarf að útbúa aðventukrans og setja
upp jólaseríur (alla glugga, á þakkantinn
og helst öll trén f garðinum, að minnsta
kosti þau stærstu.
Svo eru það jólagjafirnar. Smáborgar-
inn var rétt að komast upp á lagið með
að velja akkúrat hið rétta fyrir hvern ætt-
ingja og vin þegar þessi hópur ákvað að
fara að fjölga sér í gríð og erg. Þessi við-
haldsþörf gerði jólaundirbúninginn öllu
erfiðari fyrir Smáborgarann sem þarf
nú að hendast út um allar trissur í leit að
þessari dúkkunni eða hinni og þeirri ofur-
hetjunni sem í tfsku er þetta árið. Svo
ekki sé minnst á alls kyns ólíkar gerðir af
pelahiturum og þroskaleikföngum sem
fást baraþarenekki hér.
Smáborgarinn er þetta árið kominn
á þá skoðun að annaðhvort hafi sykur-
neysla fslendinga aukist all verulega
eða þá að heimurinn sé farinn að snúast
hraðar en áður. Þrátt fyrir að hafa byrjað
sfn hefðbundnu jólaverk snemma er eins
og ekkert hafi gengið á eðlilegum hraða
og allt er á eftir áætlun. Þetta hefur auð-
vitað tekið á taugar Smáborgarans sem
hefur haft sína bíólógísku jólaklukku í
stakasta lagi undangengin ár og aldrei
misst úrslag. Eftir að hafa tapað sér íjóla-
glögginu af áhyggjum hefur Smáborgar-
inn ákveðið að snúa þessum jólum upp (
kæruleysi. Hann neitar að láta ófrágeng-
inn verklistann buga sig. Smáborgarinn
ræður. Hann verður ekki yfirbugaður af
samfélagsþrýstingnum, (þó það sé ein-
mitt eðli Smáborgarans). Þessi jólin ætlar
Smáborgarinn að helga sig aðfangadegi
sjálfum, slökkva á rafmagnsljósunum til
að fela rykið, kveikja á kertum, og njóta
kyrrðarinnar. Það hlýtur að vera í lagi,
bara svona á jólunum.
HVAÐ FINNST ÞER?
Þórhallur Sverrisson, leikari.
Hvaö finnst þér um þreifingar
íslenskra kaupsýslumanna á
búlgarska tóbaksmarkaðnum?
„Auðvitað líst mér mjög vel á þetta. Þetta átti nú að vera dæmi um hinn draum-
kennda íslenska „bisnessmann" með vonlausa viðskiptahugmynd, en það hefur
greinilega eitthvað verið spunnið í hugmyndina. Þeir hefðu átt að hlæja meira að
Tóta á sínum tíma þegar hann fór að flytja inn Opal sígaretturnar. Það er spurning
hvaðan þeir fengu hugmyndina og hvort Tóti sé á prósentum. Hann mun væntan-
lega kanna rétt sinn í þessu máli, ég á ekki von á öðru.“
Fréttir þess efnis að íslenskir aðilar hafi reynta að hasla sér völl í búlgörskum tóbaksiðnaði minna mann á tilraunír Tóta f kvik-
myndinni „Isienski draumurinn", þar sem hann reynir að selja búlgarskar sígarettur hér á landi.
BlaÖiÖ/Frikki
Stœrðin
skiptir máli
Leikkonan Scarlett Johansson hefur sagt að henni hafi liðið illa yfir því
að fólk hafi gert athugasemdir um hversu smávaxin hún sé. „Einu sinni
var ég inni á klósetti og heyrði tvær konur tala saman og önnur þeirra
sagði: Er þetta Scarlett Johannsson, guð minn góður hvað hún er lítil!“. Ég
byrjaði að finna til minnimáttarkenndar yfir því hversu smávaxin ég var
þegar ég var í New York og þjónninn talaði um hversu lágvaxin ég væri.
„Ég svaraði honum og sagði „góðir hlutir koma í smáum pakkningum.“
Madonna bannar börnum
sinum að hafa farsíma
Söngkonan Madonna hefur bannað börnum sínum að eiga farsíma og
segist aldrei munu kaupa slíka síma fyrir Lourdes dóttur sína sem er níu
ára og fimm ára son sinn Rocco, enda segir hún þau ekki hafa neina þörf
á því. „Það er ekki séns að þau fái farsíma, það á ekki eftir að gerast“
sagði Madonna. Madonna hefur viðurkennt að hún sé mjög ströng
mamma og að hún hafi mjög ákveðnar reglur fyrir börn sín. Hún
segist til dæmis banna börnum sínum að horfa á sjónvarp og
borða skyndibita.
Britney skipu-
leggur endurkomu
Söngkonan Britney Spears hefur ráðið framleiðendur og höfunda laga
Madonnu til að hjálpa sér við að endurvekja söngferil sinn. Það eru þeir Bloods-
hy, Avant og Peer Astrom sem hafa verið beðnir að vinna með Britney eftir að
hún heillaðist af plötu Madonnu, Confessions On A Dancefloor. Britney er sögð
vilja að næsta lag sitt verði í svipuðum stíl og lög Madonnu og Kylie.
eftir Jim Unger
MÆLAIMLEGUR
ÁRAIMGUR
L'ORÉAL
menexpert
ÞVI ÞÚ ÁTT ÞAÐ LÍKA SKILIÐ
Auglýsingar
blaóiöj
HEYRST HEFUR.
Pað er
ljóst að
samkeppni
á fjölmiðla-!
markaði mun
harðna til
muna á næstunni vegna kaupa
Morgunblaðsins á helmings-
hlut í Blaðinu. Morgunblaðið
hefur lítið hreyft sig á fjölmiðla-
markaði undanfarin ár, en nú er
ljóst að ný stjórn ætlar að taka
fulla þátt í þeirri samkeppni
sem framundan er. Lítið hefur
heyrst um frekari áform Morg-
unblaðsins, en eins og bent var
á í þessum dálki í gær verður
nýtt sjónvarpsstúdíó tilbúið
innan skamms í nýjum höfuð-
stöðvum Morgunblaðsins við
Hádegismóa.
HannesHólm-1
steinn Giss-
urarson hélt fjöl- j
menntútgáfuhóf
á heimili sínu
við Hringbraut
í fyrrakvöld.1
GríðarÍegt fjöl-
menni var á staðnum og vakti
Davíð Oddsson mesta athygli.
Með annarra gesta voru Björn
Bjarnason, Einar K Guðfinns-
son, Valgerður Sverrisdóttir,
Bjarni Armannsson banka-
stjóri og svo auðvitað Jón Stein-
ar Gunnlaugsson. Þá heiðruðu
Jón Óttar Ragnarsson fyrrver-
andi sjónvarpsmógúll og frú
samkunduna með nærveru
sinni. Þá tóku menn auðvitað
líka eftir Friðriki Sophussyni
og Sigríði Dúnu, verðandi
sendiherra og svo Kalla í Pelsin-
um og frú. í samkvæmi Hann-
esar voru líka Sigurður Kári og
Gísli Marteinn, en leigusalinn
sjálfur Kjartan Gunnarsson var
fjarri góðu gamni þar sem hann
var staddur á Vestfjörðum.
Samkennarar Hannesar úr
háskólanum voru auðvitað
líka mættir í samkvæmið til
Hannesar og jafnvel pólitískir
andstæðingar. Þeirra á meðal
voru Margrét Björnsdóttir Ólaf-
ur Þ. Harðarson og Baldur Þór-
hallsson. Það fór hins vegar hið
besta á með fólki og sauð aldrei
upp úr hinum pólitíska suðu-
potti, eins og einhverjir hefðu
kannski ályktað. Samkvæmið
fór hið besta fram.
Bóksalar völdu
bókina Argó-
arflísina eftir Sjón
sem besta skáld-
verk ársins. Sú bók
er hins vegar ekki
einu sinni tilnefnd
til íslensku bók-
menntaverðlaunanna. 1 fyrra
völdu bóksalar samkvæmisleik
eftir Braga Ólafsson sem besta
skáldverkið og sú bók fékk ekki
heldur tilnefningu til íslensku
bókmenntaverðlaunana. Það
er því greinilega mikill munur
á bókmenntasmekk þeirra sem
selja bækur og þeirra sem gefa
sig út fyrir að vera fagmenn.
Sjálfstæðis- K
menn óttast M
mjög mögulega
endurkomu
Jóns Baldvins
Hannibalssonar
í íslenska pól- ’
itík og telja að
samfylkingin gæti mögulega
náð fylgi frá bæði Sjálfstæðis-
og Framsóknarflokki í næstu
kosningum. Jón er sjálfur volg-
ur, eins og menn hafa tekið eft-
ir í viðtölum sem hafa birst við
hann að undanförnu.
tíma bókaða í viðbót...