blaðið - 05.01.2006, Blaðsíða 16
16 I
FIMMTUDAGUR 5. JANÚAR 2006 blaöið
Háir það aö
vera óháöur?
Gleðilegt gengis-
lækkunarár
Björk Vilhelms-
dóttir, borgar-
fulltrúi V-vinstri
grænna, tilkynnti
í gær að hún hefði
sagt skilið við
Vinstri hreyfing-
una grænt fram-
boð og hygðist
taka þátt í próf-
kjöri Samfylkingar-
innar sem verður um miðjan næsta
mánuð. Hefur borgarfulltrúum
VG því fækkað um einn og spurn-
ing hvað verður um valdahlutfall í
nefndum á vegum Reykjavíkurlist-
ans í kjölfarið.
Það vekur athygli mína að Björk
virðist ekki fá sömu gagnrýni fyrir
ákvörðun sína og ýmsir aðrir sem
skipt hafa um flokka að undan-
förnu. Þannig hefur Samfylkingar-
fólk haft stór orð um brotthvarf
oddvita þeirra úr bæjarstjórn Akur-
eyrar á dögunum og Gunnar Örlygs-
son alþingismaður, sem gekk úr liði
Frjálslynda flokksins yfir í Sjálfstæð-
isflokkinn á síðasta ári, hefur mátt
þola þungar glósur frá fyrrum sam-
herjum sínum og raunar fleirum æ
síðan.
Fleira athyglisvert mætti nefna. 1
fréttum í kvöld var talað um væntan-
legt prófkjör sem prófkjör Samfylk-
ingarinnar og óháðra. Jafnframt var
tekið fram að Björk Vilhelmsdóttir
hafi ákveðið að ganga ekki í Samfylk-
inguna, heldur taka þátt í prófkjör-
inu sem fulltrúi óháðra. Þetta vekur
athygli, því ekki eru margir dagar
síðan sérstakur fulltrúi óháðra í
Reykjavíkurlistanum, Dagur B. Egg-
ertsson, borgarfulltrúi, ákvað að
taka þátt í sama prófkjöri og gekk
fyrir vikið í Samfylkinguna.
Nú er spurningin hvort Dagur
hafi ekki talið það sér til framdráttar
að vera áfram óháður og þess vegna
gengið i flokkinn. Eða hvort honum
hafi hreinlega ekki dottið í hug að
taka þátt sem fulltrúi óháðra. Alla-
vega er ljóst að Björk Vilhelmsdóttir
telur það ekki há sér að vera óháð og
verður tíminn að leiða í ljós hvort
það mat hennar sé réttmætt.
Hitt er augljóst að brotthvarf
hennar veikir raðir vinstri grænna
og rennir stoðum undir þá kenn-
ingu að Samfylkingin muni ætla sér
stóra hluti i vinstra fylgi í borginni,
rétt eins og fyrir síðustu Alþingis-
kosningar. Þá gerði Samfylkingin
harða hríð að vinstri grænum á
lokaspretti baráttunnar, svo harða
raunar að forystumenn VG mót-
mæltu því opinberlega og sögðu
með því farið langt yfir strikið.
Skyldi sagan endurtaka sig nú?
Höfundur er aðstoðarmaður
forsœtisráðherra ogframbjóðandi
íprófkjöri Framsóknarmanna í
Reykjavík
www.bjorningi.is
Gengið lækkar. ■
Greiningardeildir I
tveggja stóru p|
bankanna hafa nú K
birt álit sitt á lík-
legri gengisþróun !■
næstu missera. Þó
áherslurnar séu Guafinnsson
ekki nákvæmlega .................
eins eru greiningar-
deildirnar alveg
sammála um eitt. Lækkun gengis
íslensku krónunnar er framundan.
Tímabil ofurgengisins er því brátt
að baki, sem betur fer og verður
ekki syrgt á þessari síðu. Þvert á
móti. Þetta eru gleðifréttir og varla
er nokkur leið betur viðeigandi
til þess að bjóða gleðilegt ár, en að
flytja svo góð tíðindi.
íslandsbanki telur að gengið fari
að gefa eftir um mitt árið. „Gengi
krónunnar gæti lækkað umtalsvert
áður en árið er liðið,“ segir í áliti
greiningardeilarinnar. Bankinn
telur þannig að gengið falli um n
prósent á þessu ári og haldi áfram
að veikjast á árinu 2007, þannig að
gengisvisitalan verði 125 en hún er
núna í kringum 105.
Landsbankinn telur líka að tími
ofurgengisins sé að líða hjá og
gengið muni staðnæmast við svip-
aðar slóðir og íslandsbanki álítur.
Þetta er meðal annars rökstutt með
skirskotun til viðskiptahallans.
Þannig segir í áliti greiningardeilar-
innar: „Viðskiptahallinn fyrstu níu
mánuði ársins var 14,3% af lands-
framleiðslu og líklegt að fyrir árið í
heild verði hallinn nálægt 15%. Halli
á viðskiptum við útlönd af þessari
stærðargráðu getur ekki viðhaldist
nema í mjög skamman tíma og ekki
eru dæmi um aðlögun slíks halla að
jafnvægi án verulegrar lækkunar á
gengi krónunnar.“
Þetta eru mjög mikilvægar fréttir
og þegar þær verða að raunveruleika
er ljóst að mikill byr verður i seglum
útflutningsgreinanna, eins og sjávar-
útvegsins. Afurðaverð er í sögulegu
hámarki, miklar hagræðingarað-
gerðir hafa átt sér stað. Innspýting
á borð við framangreindar gengis-
brey tingar munu því skila sér í góðri
afkomu fyrirtækja og fólksins sem i
þeim starfar.
Höfundur er sjávarútvegsráðherra
www.ekg.is
Björn Ingi
Hrafnsson
BAÐSTOFAN
DALVEGUR 4 201 KÓPAVOGUR SÍMI 564 5700 FAX 564 5701