blaðið - 05.01.2006, Qupperneq 30
30 I ÍPRÓTTIR
FIMMTUDAGUR 5. JANÚAR 2006 blaðiö
_ Dakar rallið:
Carloz Sainz og Andreas Schulz á Volkswagen í forystu
Carloz Sainz og Andreas Schulz á
Volkswagen Race Touareg 2 hafa
forystuna eftir fjóra leggi í hinu erf-
iða Dakar ralli sem nú stendur yfir
í Afríku. Þeir félagar sigruðu fjórða
legg sem var 639 kílómetra leið frá
Rachidia til Quarzazate í Marokkó
og hafa nú unnið þrjá af fjórum
leggjum sem búnir eru. Rallið er
ekki fyrir hvern sem er, ekið er
um eyðimerkur og reynir keppnin
mikið á bæði ökumenn og bíla.
Staðan er þessi:
1. Carloz Sainz og Andreas Schilz
Volkswagen RaceTouareg 2
2. Bruno Saby og Michel Périn
Volkswagen RaceTouareg 2
3. Jutta Kleinschmidt og Fabrizia
Pons
Volkswagen RaceTouareg 2
4. Luc Alphand og Gilles Picard
Mitsubishi Pajero Evolution
5. Giniel de Villers og Tina Thörner
Volkswagen RaceTouareg 2
^ Niclas Anelka
Souness að hœtta hjá Newcastle?
Anelka hugsanlega
keyptur á næstu dögum
Óstaðfestar fregnir frá Englandi
herma að svo geti farið að Graeme
Souness, framkvæmdastjóri Newc-
astle, kunni að verða rekinn á næstu
sólarhringum og að Sam Allardyce,
framkvæmdastjóra Bolton, verði
boðið starfið í staðinn. Fátt heyrist
hins vegar úr herbúðum félagsins
en ljóst er að mikið gengur á inn-
andyra enda hefur gengi Newcastle
verið afleitt það sem af er leiktíð.
Ekki bætir úr skák að félagið náði
aðeins einu stigi í þremur leikjum í
kringum áramótin.
Talið er líklegt að Nicolas Anelka,
leikmaður Fenerbahce í Tyrklandi,
verði fenginn til Newcastle á næstu
dögum, en fáliðað er í framlínu
félagsins eftir að Michael Owen tá-
brotnaði og ljóst varð að hann yrði
frá keppni í þrjá mánuði.
Anelka, sem er 26 ára, hefur þegar
lýst því yfir að hann hafi áhuga á að
fara aftur til Englands. I viðtali við
breska blaðið Sun sagði hann: „Ef ég
fer frá Fenerbasche þá hef ég mestan
áhuga á að fara til Englands. Tilhugs-
unin um að komast í stóran klúbb
heldur mér gangandi."
Talið er að Graeme Souness hafi
áhuga á að fá Anelka til liðs við sig
enda hefur hann lengi verið aðdá-
andi hans. Anelka lék með Arsenal,
Liverpool og Manchester City áður
en hann fór til Tyrklands. ■
Fullt hús stiga
Mikið var um dýrðir í fyrrakvöld
þegar tilkynnt var hver kosin
hefði verið íþróttamaður ársins
2005. Alls hlutu 29 einstaklingar
atkvæði í kjörinu en sá fáheyrði
atburður gerðist að þessu sinni
að sigurvegarinn, Eiður Smári
Guðjohnsen, fyrirliði íslenska
landsliðsins í knattpspyrnu og
leikmaður Chelsea, hlaut fullt
hús stiga, eða atkvæði í fyrsta
sæti frá öllum þeim sem atkvæði
greiddu í kjörinu. Blaðið óskar
Eiði til hamingju með titilinn.
Fótbolti:
Hættur að heilsa
að sið fasista
Hinn ítalski Paolo Di Canio, leik-
maður Lazio, sagði í viðtali við
ítalska útvarpsstöð í vikunni að
hann myndi aldrei aftur heilsa að
sið fasista. Myndir náðust af slíkri
kveðju hans þann 11. desember síð-
astliðinn þegar lið hans tapaði fyrir
«Livorno og var myndin birt í fjöl-
miðlum daginn eftir. Leikmaðurinn
var í kjölfarið dæmdur til að greiða
rúmlega 700.000 króna sekt og í
eins leiks bann. Þetta var í annað
sinn sem slíkt atvik kom upp, en í
fyrra skiptið slapp Di Canio með
sekt. Hann hefur ávallt haldið því
fram að kveðjan hafi ekki haft neina
pólitíska þýðingu. ■
Blikar fá liðsstyrk
Frjálsíþróttamennirnir Kári Steinn
Karlsson og Þorbergur Ingi Jóns-
son tilkynntu nú um áramótin um
félagaskipti í Breiðablik.
Kári Steinn er landsliðsmaður
í frjálsum íþróttum og besti lang-
hlaupari Islands í dag. Hann setti
unglingamet sl. sumar í 10 km hlaupi,
hljóp á 31:10:10 minútum og varð
10. í Evrópumeistaramóti unglinga
í Litháen í þeirri grein. Hann varð
einnig þriðji á Norðurlandamóti
unglinga sem haldið var í Kristjánss-
andi í ágúst í 5.000 metra hlaupi. Nú
í lok desember var hann nálægt því
að setja íslandsmet í i.5oom hlaupi
unglinga (19-20 ára) innanhúss
þegar hann hljóp á 3:58:37.
Þorbergur Ingi er einn efnilegasti
millivegalengda- og langhlaupari
íslands. Hann setti nýverið per-
sónulegt met í 1.500 m hlaupi inn-
Frjálsíþróttamennirnir Kári Steinn Karlsson og Þorbergur Ingi Jónsson
anhúss, hljóp á 4:01:04 mín. Hann ÍR þar sem hann hljóp 10 km á 33:51
náði góðum árangi í gamlárshlaupi mín og kom þriðji í mark. ■