blaðið - 27.01.2006, Síða 10
10 I ERLENDAR FRÉTTIR
FÖSTUDAGUR 27. JANÚAR 2006 blaAÍÓ
Kínverjar styðja tillögur Rússa
Kínverjar eru hlynntir málamiðlunartillögu Rússa í deilunni um kjarnorkumál írana.
Utanríkisráðherrar ríkja sem hafa neitunarvald í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna hittast
á mánudag vegna málsins.
Kínverjar hafa lýst yfir stuðningi við
tilboð Rússa um að leyfa írönum að
auðga úran á sínu landssvæði. Með
tilboðinu vilja Rússar freista þess að
leysa viðkvæma deilu um kjarnorku-
áætlun frana.
„Við teljum að þessi tillaga sé góð
tilraun til að eyða þeirri pattstöðu
sem upp er komin,“ sagði Kong
Quan, talsmaður kínverska utanrík-
isráðuneytisins. Kong ítrekaði jafn-
framt þá afstöðu Kínverja að þeir
væru mótfallnir því að íranar yrðu
beittir refsiaðgerðum og að frekar
ætti að leita diplómatískra lausna á
deilunni.
Hvatning til auðgunar úrans
Ali Larijani, aðalsamningamaður fr-
ana í kjarnorkumálum, hefur tekið
vel í tillögurnar en hann kom í stutta
heimsókn til Peking í gær. Ali Larij-
ani, sagði á miðvikudag að ef máli
frana yrði vísað til öryggisráðsins
myndi það vera þeim hvatning til að
hefja auðgun úrans. Samkvæmt til-
boði Rússa gætu f ranar auðgað úran
til að nota til raforkuframleiðslu en
jafnframt yrði dregið úr getu þeirra
til að koma sér upp kjarnavopnum.
Kong sagði að ríkin fimm sem
hafa neitunarvald í öryggisráði Sam-
einuðu þjóðanna ættu að reyna að
komast að diplómatískri lausn áður
en fundur Alþjóðakjarnorkumála-
stofnunarinnar um málefni frana
fer fram í næstu viku. Auk Kínverja
og Rússa hafa Bandaríkjamenn,
Frakkar og Bretar neitunarvald í
öryggisráðinu. Utanríkisráðherrar
ríkjanna fimm funda á mánudag
um þá stöðu sem upp er komin.
George Buh Bandaríkjaforseti:
Taka verður Bin Laden alvarlega
George Bush, Bandaríkjaforseti, segir
að Bandaríkjamenn verði að taka
alvarlega hótanir Osaman bin Laden
um frekari árásir. „Þegar hann seg-
ist ætla að særa amerísku þjóðina á
ný, þá er honum alvará', sagði Bush
við fréttamenn eftir heimsókn til
miðstöðvar þjóðaröryggisstofnunar
Bandaríkjanna. „Ég met þær alvar-
lega og það gerir Þjóðaröryggisstofn-
unin líka,“ sagði Bush.
George Bush telur fulla ástæðu til að taka
hótanir Osama bin Laden alvarlega.
Þetta var í fyrsta sinn sem Bush
tjáði sig um bin Laden síðan A1
Kaída-leiðtoginn varaði við því i
síðustu viku að hryðjuverkamenn á
hans vegum væru að undirbúa nýjar
árásir á Bandaríkin. Bin Laden bauð
Bandaríkjamönnum jafnframt upp
á vopnahlé en bandarísk stjórnvöld
sögðust aldrei semja við manninn
sem stóð að baki árásum á landið
þann n. september 2001.
Þjóðaröryggisstofnunin heldur
utan um umdeilda eftirlitsáætlun
yfirvalda í Bandaríkjunum sem veitir
starfsmönnum hennar meðal annars
rýmri heimildir til að hlera samtöl
fólks.
Fjórir háttsettir öldungadeildar-
þingmenn Demókrata skrifuðu Bush
bréf fyrr í vikunni þar sem þeir segj-
ast styðja allar löglegar tilraunir til
þess að berjast gegn hryðjuverkum
en áætlun Þjóðaröryggisstofnunar-
innar brjóti að því er virðist í bága
við alríkislög.
Sex.com selt á
12 milljónir dala
Lénið sex.com sem lengi hefur
verið talið eitt gróðavænlegasta lén
á veraldarvefnum hefur verið selt
fyrir um 12 milljónir Bandaríkjadala
(um 732 milljónir ísl. kr.). Hópur
fjárfesta sem ekki vildi láta nafns
sín getið keypti lénið eftirsótta.
Þrátt fyrir að sex.com sé
verðmætt og eftirsótt lén hefur ekki
verið mikið efni á síðunni fram að
þessu. Því hyggjast nýir eigendur
breyta. 1 tilkynningu frá þeim segir
að þeir ætli sex.com forystuhlutverk
í heimi afþreyingar fyrir fullorðna
og þar verði meðal annars boðið
upp á stefnumótaþjónustu, ráðgjöf
um kynlíf og sambönd og spjallborð.
Stefnumóta-
þjónusta
fyrir fugla
Stefnumótaþjónusta fyrir páfagauka
sem fuglaff æðingur kom nýlega á lagg-
irnar í Berlín hefur slegið í gegn. Fugla-
ff æðingurinn, Rita Ohnhauser hefur
þegar sameinað 1300 einmana gauks-
hjörtu og'Öfugt við aðra hjónabands-
miðlara er hún fullviss um að pörin
muni aldrei skilja þar sem páfagaukar
haldi tryggð við sama maka alla ævi.
„1 náttúrunni leita villtir páfagaukar
sér að lífsförunaut sem þeir verja
hverri mínútti dagsins með. Þegar
þeim er haldið sem gæludýrum finna
þeir einkum til einmanakenndar
og verða mjög þunglyndir," sagði
Ohnhauser. Hún hefur nú þegar um
150 fugla í makaleit.„Fuglar verða
ástfangnir við fyrstu sýn rétt eins og
mannfólkið. Aðrir vanda mjög vahð
áður en þeir hefja samband. Það getur
tekið allt að þrjá mánuði,“ sagði hún.
afsláttur
af hreinlætis- og blöndunartækjum!
Lögregla rannsakar vettvang slyssins rétt hjá Butler-vatni í Flórída.
Harmleikur í Flórída:
Sjö systkini
fórust í bílslysi
Sjö systkini fórust í bílslysi í Flór-
ída á miðvikudag. Slysið varð með
þeim hætti að vörubill ók aftan á
bíl barnanna þar sem hann stóð
fyrir framan kyrrstæðan skólabíl.
Við áreksturinn gaus upp eldur í
bílnum að sögn lögreglu. Börnin
sem voru á aldrinum 2 til 15 ára voru
ein í bílnum þegar slysið átti sér
stað. Börnin, sem öll voru ættleidd,
fórust í slysinu, þar á meðal 15 ára
stúlka sem hafði aðeins æfingaleyfi
og mátti því ekki aka bílnum ein.
Frænka stúlkunnar sem ók bílnum
sagði að hún hefði verið á leið heim
með systkini sín þegar ekið var á
þau. Slysið átti sér stað skammt frá
heimili barnanna. „Jafnvel þó að
hún hafi verið of ung til að aka þá
skilst mér að hún hafi ekki valdið
slysinu. Það sama hefði gerst ef það
hefði verið einhver fullorðinn með
henni í bílnum. Þá hefði bara orðið
eitt dauðsfall til viðbótar í fjöslskyld-
unni,“ sagði hún í viðtali við frétta-
stöðina CNN.
Skólabíllinn var kyrrstæður á
biðstöð þegar slysið varð og barst
hann um 60 metra áður en hann
valt á hliðina. Níu nemendur voru
í bílnum þegar ekið var á hann og
þeyttust þrír þeirra út úr honum.
Þrír nemendur voru lagðir alvarlega
slasaðir inn á sjúkrahús en aðrir
sluppu með minniháttar meiðsl.
Rannsókn leiddi í ljós að flutn-
ingabíllinn hemlaði ekki áður en
hann rakst á fólksbílinn. Ökumaður
hans slapp án teljandi meiðsla og
verður yfirheyrður auk þess sem at-
hugað verður hvort hann kunni að
hafa verið undir áhrifum.