blaðið - 27.01.2006, Page 24
24 I TÍSKA
FÖSTUDAGUR 27. JANÚAR 2006 blaðiö
Á tískuviku í París:
Nornir, hörkulegt sakleysi og
framúrstefnulegir fortíðarstraumar
Andi vor- og sumartískunnar 2005 svífur nú um Parísarborg, en nú stendur einmittyfir franska tískuvikan. Mikill
fjöldifrœgafólksins erþar saman kominn til að sjá hvaða línur hafa verið lagðarfyrir nœstu mánuði
Það kennir margra grasa á pöll-
unum í París þetta árið, líkt og svo
mörg önnur. Galliano, sem hannar
fyrir tískuhús Dior kom öllum í
uppnám með nýju línunni sinni,
en hann sækir innblástur sinn
þetta árið í nornabrennur fyrri
alda og teflir fram Diorlínu sem
er þrungin af andspyrnu og allt
af afturgenginni kvennabyltingu.
Leður og gamaldags korsiletti,
með víðum, follufullum pilsum
og trúartáknskreyttar fyrirsætur
þrömmuðu um palla Parísar og
lýsingin var í anda vítislogandi bál-
kastanna. Það má með sanni segja
að ekki hafi áður sést viðlíka bylt-
ingarkenndir straumar hjá Dior,
en sýningin er vissulega fjöður í
skreyttan hatt Galliano.
Sumarlínan frá Valentino er
aftur á móti innblásin af sakleysi
og hreinleika enda hvítir og ljósir
litir áberandi. Hönnunin tekur
Brúnt leðrið
bylgjast
fallega yfir
mjaðmirnar,
en kjóllinn
gæti talist
nokkuð
þungurfyrir
sumarið.
einnig mið af fínlegri, næstum
brothættri kvenlegri líkamsbygg-
ingu líkt og algengt hefur verið
undangengin ár. 1 fullkominni and-
stöðu við sakleysislega hönnunina
eru fyrirsæturnar hvassbrýndar,
dökkmálaðar um augun, með
lostafullar þrútnar rauðar varir,
og svipbrigði þeirra lýsa næstum
blíðlegri grimmd.
Ungi Portúgalski hönnuðurinn
Baptista fer svo allt aðrar leiðir en
einfaldleiki og látleysi hönnunar
hans minna nánast á klæðaburð
karaktera úr framtíðarsjónvarps-
þáttum á borð við Star-Trek. Svart
og hvítt eru áberandi litir, skarpar
andstæður bæði í litum og sniðum
eru ráðandi í þessari straumlínu-
Jöguðu hönnun Baptista fyrir vor
og sumar 2006.
ernak@vbl.is
Þessi kjóll minn-
iráklæðaburð
kvenna frönsku
byltingarinnar.
Þessi hönnun
minnirá hætt-
una af þvíað
byltingin borði
börnin sín þó
óneitanlega
hljóti Galliano af
fá plús fyrir að tefla á tæpasta vað.
dagar útsölunnar!
www.stilistinn.is aa stilistinn
Sunnumörk, Hveragerði Sími 483-4121
Þessi giæsilegi leðurjakki minnir á klæða-
burð príoría fyrri tíma og krossinn undir-
strikar svo klaustursklæðnaðinn. Hvítt
pilsið enda skírskotun i brúðarklæðin.
Handunninn körfuvefnaðurinn á efri
hluta þessa kjóls gefa honum mikla sér-
stöðu en hann er bæði grófur og fínlegur
ísenn.
Fleginn hlýrakjóll með litlum vængjum
sem Ijá honum englablæ.
Þessi hárauði, einfaldi kjóll úr smiðju Adeline Andre bylgjast af kvenlegum þroska en
hann er hluti af tískulínu vors og sumars komanda. Hönnun Andre er sérlega fínleg og
kvenleg á sama tíma og þægindi og þroski fá sín notið í hverjum saumi.
Þessi glæsilegi kjóll er úr línu hins unga
Baptista. Minnir á stefnumót Kleópötru
við Napóleon.
Einfaldleikinn er einkennismerki Baptista
en hér fær efnið að njóta sín ríkulega til
móts við einfaldleika sniðsins.