blaðið - 27.01.2006, Page 28
28 I HELGIN
FÖSTUDAGUR 27. JANÚAR 2006 blaöiö
Listamenn spjalla
I Listasafni ASÍ stendur yfir sýn-
ing listamannanna Ragnheiðar
Ágústsdóttur, Sigríðar Ólafsdóttur,
Sigtryggs Bjarna Baldvinssonar og
Tinnu Gunnarsdóttur. Sýningin er
hugsuð sem bræðingur hönnunar
og myndlistar. Listamennirnir
höfðu það að leiðarljósi við gerð
verkanna að fara yfir á svið hvers
annars og vinna á óræðum og jafn-
vel forboðnum mörkum hönnunar
og myndlistar. Hvar liggja þessi
mörk og eru þau mikilvæg og af-
gerandi? Sýningin samanstendur
því af illskilgreinanlegum verkum
og hlutum sem kveikja spurningar
hvaða hlutverki þau gegni. Á sýn-
ingunni má finna verk sem hægt
er að skilgreina sem textíl, gólfverk,
mottur, púsluspil, málverk, spegla,
leirlist, innsetningar og lágmyndir,
eða ekki. Sunnudaginn 29. janúar
munu listamennirnir sjálfir taka á
móti gestum og spjalla um verk sín.
Aðgangur er ókeypis en listamanna-
spjallið hefst kl. 15.00. ■
Ofnþurrkað Mahony, Eik, Beyki
og fleiri tegundir
Smiðjuvegur 40 gul gata - s 567 5550
www islandia.is/sponn
KTM 450cc SX”S” 2004
Hjóliö er meö RG3 klemmum og
Akrapovic pústi og m.fl.
Paö er nýbúiö aö yfirfara allt hjóliöl!
Verö tilboð!!!
Upplýsingar Ellert s. 869 9903
Haldið upp á kínversk áramót
Dansandi dreki
á Laugavegi
Úr drekadansinum í fyrra:,, Drekinn er mikið þjóðartákn kínverskrar menningar og er
eiginlega æðstur þeirra dýra sem mynda þennan dýrahring."
Kínverska nýárið hefst um
helgina, eða nánar tiltekið þann
29. janúar. {tilefni þess stendur
Kínversk-íslenska menningarfé-
lagið og Félag Kínverja á íslandi
fyrir drekadansi laugardaginn
28. janúar. í göngunni verður
15 metra langur,litríkur dreki
sem eltir perlu í liðandi dansi
niður Laugaveginn. Að dansinum
loknum verður sýning á Taichi-
leikfimi, Kungfu og Wushu bar-
dagalist í tjarnarsal Ráðhússins.
Arnþór Helgason, formaður Kín-
versk-íslenska menningarfélagsins,
segir að Kínverjar séu einmitt á leið
í tveggja vikna frí í Kína vegna nýárs-
ins. „Kínverjar halda upp á nýárið
þannig að það er í raun um tveggja
vikna hátíðahöld að ræða og það
er til dæmis gefið frí í Kína í þann
tíma. Kínverjar nota þá tímann til
að heimsækja ættingja og vini,“ segir
Arnþór og bætir við að það hafi líka
verið efnt til drekadans í fyrra. „Við
vonum að þetta geti orðið árleg
hefð. Drekinn er mikið þjóðartákn
kínverskrar menningar og er eigin-
lega æðstur þeirra dýra sem mynda
þennan dýrahring. Dýrahringur-
inn er samansettur úr tólf dýrum og
fimm frumefnum þannig að hann
endurtekur sig á sextíu ára fresti.
Nú er til dæmis að renna upp ár hins
rauða hunds, eldhundsins.“
Margt líkt með Kína og íslandi
Island er fjölmenningarlegt samfé-
lag og því eru ansi margir búsettir
hér sem eru af kínverskum ættum.
„Hér á landi búa um 200 manns af
kínverskum ættum, eftir því sem
við best vitum, og hingað hafa verið
ættleidd nokkrir tugir barna á und-
anförnum árum. Islenskum af kín-
verskum uppruna mun því vafalaust
fjölga á næstu árum. Það er líka ým-
islegt í kínverskri menningu sem
getur auðgað menningu Islands. Ég
sé ekki betur en að margt fari saman
með þessum tveimur þjóðum og
þar á meðal er mikil seigla og iðni.
Nú þykjast Islendingar vera iðnari
flestum öðrum þjóðum og menn
hafa verið þrautseigir að þola við í
þessu landi á umliðnum öldum og
ekki verður það síður sagt um Kín-
verja sem búa víða við mjög erfiðar
aðstæður.“
Heilmikill hávaði
Samkvæmt Arnþóri er heilmikið
fjör í drekadansinum. „Ég mæli
eindregið með að fólk taki börn sín
með í drekadansinn og leyfi þeim að
vera með hristur og aíls kyns áhöld
til að hafa sem hæst. Ég hvet líka
alla til að sleppa fram af sér beislinu
og láta svolítið illa, börnunum og
sjálfum sér til skemmtunar. Hluti
af skemmtuninni er sá að hafa sem
mestan gauragang og það fellur drek-
anum býsna vel.“ Drekadansinn í
fyrra var vel sóttur og Arnþór býst
einnig við dágóðum fjölda um helg-
ina. „Drekinn eltir svokallaða perlu
sem Unnur Guðjónsdóttir stjórnar
og hann leggur lykkju á leið sína
og blessar ýmsar opinberar bygg-
ingar sem á leið hans verða, svo sem
Stjórnarráðið, Alþingishúsið og Ráð-
húsið. Drekinn er nefnilega tákn
hins góða í Kína, frjósemis og allt
sem gott er, gagnstætt því sem hann
merkri í norrænni goðafræði. I nor-
rænni goðafræði er drekinn tákn
stríðs og átaka en í Kína er hann
til dæmis tákn valds. Drekinn var
til að mynda tákn keisarans í Kína.“
Drekadansinn heldur frá Hlemmi kl.
14:00, gengið verður niður Laugaveg
og Bankastræti, vestur Austurstræti,
Pósthússtræti og um Austurvöll að
ráðhúsinu.
svanhvit@bladid. net
Myndir aí Srœga íólkinu
Það gefst ekki alltaf tími til að njóta
og dást að list en helgar eru einmitt
tilvaldar í það. Það eru margar og
áhugaverðar sýningar í listasöfnum
út um allan bæ og því úr nægu að
velja. Eftirtektarverð er sýning á mál-
verkum eftir listakonuna Kristínu
Halldórsdóttur Eyfells í Listasafni
Reykjavíkur, Hafnarhús. Sýningin
varpar ljósi á lífsverk afkastamik-
illar listakonu sem helgaði málverk-
inu mestan sinn tíma hin síðari ár.
Eftir Kristínu liggur mikið safn
málverka og höggmynda en á Iista-
mannsferli sínum tók Kristín Ey-
Bill Cosby, leikari.
fells þátt í yfir 100 einkasýningum
og samsýningum í Bandaríkjunum,
íslandi og viða. Á sýningunni eru
einkum sýnd málverk úr tveimur
myndflokkum Kristínar, Fræg
andlit (Famous Faces) og Óþekktar
konur (Ladies Anonymous). Heim-
sókn í Hafnarhúsið til að skoða verk
Kristínar er því án efa ekki tíma-
sóun enda verk hennar einkar falleg
og skemmtileg. Hafnarhúsið er opið
frá 10-17 alla daga.
svanhvit@bladid.net
AEG handverkfærin sverja sig í
ættina. Þau eru eins og annað sem
kemurfrá þessum þýska framleið-
anda, vönduð og traust.
ORMSSON
LAGMÚLA 6 SlMI 530 2800