blaðið - 09.02.2006, Qupperneq 10
10 I ERLENDAR FRÉTTIR
FIMMTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2006 blaöiö
Skógareyðing á Borneó ógnar lífríki
Hundruðplöntu- ogdýrategunda eru talin vera í hœttu vegna áforma
yfirvalda á Indónesíu um viðamikla eyðingu skóga á Borneó
Reuters
Umhverfisverndarsinnar óttast að fyrirhuguð skógareyðing indonesískra yfirvalda á
Borneó muni hraða því að órangútangapar deyi út á eyjunni. Hundruð annarra dýra- og
plöntutegunda eru talin vera í hættu út af áætlununum.
Umhverfisverndarsinnar mótmæla
harkalega áformum yfirvalda á
Indónesíu um að ryðja óspillta regn-
skóga á stóru landsvæði á Borneó.
Stjórnvöld segjast vilja ryðja skóg-
ana til að koma þar upp pálmaplant-
ekrum en margir telja að það sé
yfirvarp og að megintilgangur skóg-
areyðingarinnar sé að selja timbur
til Kína. í staðinn munu Kínverjar
leggja fé í uppbyggingu á svæðinu.
Um er að ræða landsvæði sem er
2000 kílómetra langt og fimm kíló-
metrar í þvermál og liggur gegnum
þrjá þjóðgarða á landamærum
Malasíu og Indónesíu. Alþjóðlegu
umhverfísverndarsamtökin World
Wildlife Fund (WWF) segja að
nú þegar eyðist um tveir milljónir
hektara regnskóga á Indónesíu á ári
hverju en það er um helmingur flat-
armáls Hollands.
Landræman er á afskekktum
hluta eyjarinnar Borneó og þar er að
finna ótal sjaldgæfar fuglategundir,
plöntur og spendýr, meðal annars
stærsta stofn viltra órangútangapa
í heiminum.
Órangútangapar í hættu
Umhverfissamtök óttast að eyðing
skógarins muni hraða því að ór-
angútangaparnir deyi út á eyjunni
auk þess sem fleiri dýrategundir,
einkum stór spendýr eru talin vera
í hættu. WWF segja að fjölbreytni
dýra- og plöntulífs sé óvenjumikil á
Borneó og þar hafi að minnsta kosti
þrjár nýjar dýrategundir uppgötv-
ast í hverjum mánuði á undaförnum
áratug. Samtökin vara við því að
eyðing skóga og landrækt geti leitt
til þess að hundruð tegunda hverfi
og komið í veg fyrir að vísindamenn
uppgötvi fleiri óþekktar plöntur,
dýra- og fisktegundir.
Á svæðinu er jafnframt að finna 14
af 23 vatnasvæðum á Borneó og ótt-
ast þeir að verkefnið kunni að valda
tjóni á neysluvatnslindum á stórum
hluta indonesíska hluta Borneó.
Reuters
Tröllatíðindi í Kiev
Starfsmaður úkraínska dagblaðsins Bez Tsenzura (Engin ritskoðun) flettir sérstöku risaeintaki blaðsins sem gefið var út á þriðjudag til
að fagna þriggja ára útgáfuafmæli þess. Dagblaðið tröilvaxna var 3,8 metrar á lengd og 2,65 metrar á hæð.
www.sigrunelsa.is
Ég vil vinna . . .
... á grunni þess sem við höfum gert
... Sjálfstæðisflokkinn i vor
... að enn betri Reykjavík
í
Ég þarf stuðning þinn í
2."4. sæti
i opnu prófkjöri Samfylkingarinnar
11.-12. febrúar
SIGRÚN ELSA
ísraelsmenn hyggjast
ekki deila Jerúsalem
Ehud Olmert, settur forsætisráð-
herra Israels, sagði í fyrradag að Isra-
elar myndu aldrei gefa Austur-Jerú-
salem eftir í friðarsamningum við
Palestínumenn. Auk þess myndu
ísraelar halda Jórdandal og stærstu
landnemabyggðunum á Vesturbakk-
anum. „Við stefnum að aðskilnaði
frá Palestínumönnum og endan-
legri ákvörðun um landamæri ísra-
els,“ sagði Olmert í viðtali við ísra-
elska sjónvarpið.
Hann vildi ekki tilgreina ná-
kvæmlega hvar hugmyndin væri
að landamæri Israels yrðu, en sagði
aðeins að „þau landamæri sem við
höfum í huga eru ekki þau sömu og
Israel hefur núna“. Það markmið að
aðskilja Israela og Palestínumenn
þýddi að halda yrði áfram byggingu
aðskilnaðarmúrsins umdeilda, sem
Olmert sagði að væri árangursrík að-
ferð til að koma i veg fyrir að Palest-
ínumönnum tækist að komast inn á
ísraelskt yfirráðasvæði.
Pólskri konu var neitað um fóstureyðingu þrátt fyrir að læknar hefðu varað hana við því
að hún ætti á hættu að missa sjónina ef hún eignaðist barnið. Hún hefur vísað málinu til
Mannréttlndadómstóls Evrópu.
Neitað um fóstureyðingu
þrátt fyrir hættu á sjónmissi
Pólsk kona sem var neitað að gang-
ast undir fóstureyðingu þrátt
fyrir viðvaranir lækna um að hún
kynni að missa sjónina ef hún
eignaðist barn ætlar með mál sitt
fyrir Mannréttindadómstól Evr-
ópu. Sjón Alicju Tysiac versnaði
til muna eftir að hún eignaðist
þriðja barnið sitt árið 2000 og
hún óttast að verða blind.
I Póllandi þar sem staða kaþólsku
kirkjunnar er sterk eru fóstureyð-
ingar ólöglegar nema heilsa móður
eða hins ófædda barns sé í hættu.
Tysiac heldur því fram að hún hafi
átt rétt á því að gangast undir fóstur-
eyðingu af heilsufarsástæðum.
Þegar Tysiac varð ólétt í þriðja
skipti i febrúar árið 2000 vöruðu
þrír augnlæknar hana við því að
sjón hennar gæti stafað alvarleg
hætta af því að eignast barn. Allir
neituðu þeir þó að heimila að hún
gengist undir fóstureyðingu.
Tveimur mánuðum síðar leitaði
hún til kvensjúkdómalæknis til að
fara fram á fóstureyðingu en hann
hafnaði einnig beiðninni.Tysiac
gengur nú með gleraugu með
þykkum og sterkum sjónglerjum en
sér engu að síður ekki hluti sem eru
í meira en eins og hálfs metra fjar-
lægð frá henni.
Tysiac er einstæð móðir og segist
eiga í erfiðleikum með að ala upp
börnin sín þrjú á eigin vegum. Hún
er öryrki og lifir á bótagreiðslum
sem nema aðeins um 140 evrum
(rúmlega 10.000 ísl. kr.) á mánuði.
Óvíða er löggjöf um fóstureyðingar
jafnströng og í Póllandi. Mannrétt-
indadómstóllinn getur ekki haft
áhrif á löggjöf í Póllandi en hann
getur úrskurðað að brotið hafi verið
á réttindum Tysiac.
Kosningar á Haítí gagnrýndar
mbl.is | Kosningaeftirlitsmenn á veg-
um Evrópusambandsins gagnrýna
hversu lengi tók að opna kjörstaði í
forseta- og þingkosningunum á Ha-
ítí í fyrradag. Johan Van Hecke, full-
trúi hópsins sem í voru á sjöunda
tug manna, segir Haítíbúa eiga
betra skilið.
Fjórir létust í gær og nokkrir slös-
uðust þegar æstur múgur æddi að
kjörstöðum sem sumir hverjir voru
enn lokaðir fjórum tímum eftir að
þeir áttu að opna. Van Hecke telur
að allt hefði átt að vera reiðubúið
kvöldið fyrir kosningarnar. Hið
góða sé þó að tiltölulega lítið hafi
verið um ofbeldisverk. Alþjóðlegir
eftirlitsmenn segja kosningarnar
að öðru leyti hafa farið vel fram en
ekki er búist við að úrslit þeirra liggi
fyrir fyrr en á morgun.
Sí 1)1 sn DAGAE
ÚTSÖLTJ
hjá~Qý€rufhhildi
Opið virka daga frá kl. 10*18
Engjateigi 5 • Sími 581 2141 Laugardaga frá kl. 10-16