blaðið - 09.02.2006, Síða 22
22 I VIÐTAL
FIMMTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2006 blaðið
Trúi á einstaklinginn
BlaÖiÖ/SteinarHugi
Sigríður Rut Júlíusdóttir lög-
maður er einungis þrítug en er
þegar kölluð stjörnulögfræðingur.
Hún hefur tekið að sér erfið og
umdeild mál eins og til dæmis
mál Jóns Ólafssonar gegn Hann-
esi Hólmsteini Gissurarsyni og
mál Bubba Morthens gegn Hér og
nú. Sigríður Rut lætur sér fátt um
finnast þegar talið berst að titl-
inum „stjörnulögfræðingur“. „Ég
veit ekki hvaðan þetta orð kemur
og mér finnst það misskemmilegt.
Ég hef bara verið að sinna starfi
mínu,“ segir hún. „Stundum
vinn ég mál og stundum tapa ég
málum en meðan ég veit að ég hef
gert mitt besta þá reynir maður
að vera sáttur.“
Manneskja með keppnisskap, eins
og ég geri ráð fyrir að þú hafir,
hlýtur að verða nokkuð súr þegar
hún tapar máli?
„Já, já, það er aldrei auðvelt að tapa,
og því er kannski auðvelt að vera
súr þegar maður tapar. Það gerist
stundum
Ertu metnaðargjörn?
„Já, ég held að ég hafi alltaf verið
það. En er þetta ekki líka spurning
um að setja sér markmið, ákveða
hvert maður vill fara og stefna
þangað. Þetta hef ég gert. En hluti
afþessu eru örlög eða jafnvel heppni,
það að vera rétta manneskjan á
réttum stað á réttum tíma.“
Þú trúir á örlög?
„Við höfum auðvitað fulla stjórn
á tilverunni en það sem við köllum
kringumstæður færa okkur líka
tækifæri. Já, að vissu marki trúi ég
á örlögin “
Fjölmiðlar og einkalíf
Nú ertu með þekkta skjólstœðinga
á þínum vegum, Bubba Morthens
og Jón Ólafsson sem eru kannski
ekki auðveldustu menn í heimi.
Hvernig er að vinnafyrir þá?
„Það er ekkert öðruvísi að eiga við
þá en hverja aðra. Þeir eru báðir mjög
skemmtilegir menn. Það er ákaflega
gaman að vinna með þeim, þeir hafa
öðruvisi sjónarhorn á lífið.“
Þú sœkir mál Bubba Morthens
gegn Hér og nú. Sumir segja að
frœgafólkið verði að sœtta sig við
umfjöllun vegna þess að það er op-
inberar persónur.
„Ég er mikill talsmaður tjáningar-
frelsis. En tjáningarfrelsinu fylgir
ábyrgð og það tekur mið af friðhelgi
einkalífsins. Fólk verður að virða
bæði þessi jafnréttháu réttindi. Það
er ekki auðvelt að segja hvar mörkin
liggja en það er alltaf hægt að draga
þau. Hvert mál þarf að skoða fyrir
sig. Ef manneskja vill fara í viðtal um
einkalíf sitt þá gerir hún það. Einka-
líf manneskju sem vill ekki hafa
einkalíf sitt í blöðunum á almennt
ekki erindi til almennings nema í
mjög takmörkuðum tilvikum."
Finnst þér rétt að sekta fjöl-
miðla og láta þá greiða háar
miskabætur fyrir að brjóta gegn
friðhelgi einstaklings?
„Það skiptir engu máli fyrir fjár-
sterkt risafyrirtæki að borga ein-
hverja smáaura fyrir að brjóta gegn
friðhelgi annarrar manneskju. Það
felast engin varnaðaráhrif fyrir fjár-
sterkt fyrirtæki í svo lágri sekt og
ekkert sem kæmi í veg fyrir að sami
aðili bryti aftur á sama hátt gegn
friðhelgi einkalífs. Um leið væru
dómstólar og þjóðfélagið að viður-
kenna að það megi græða á því að
brjóta á réttindum annarra. Fjölmið-
illinn mun halda áfram slíkri frétta-
mennsku enda kæmist hann upp
með það. Hann gæti jafnvel sett inn í
fjárhagsáætlun sína lið þar sem gert
væri ráð fyrir slíkum miskabótum.
Sá liður yrði ekki sérstaklega dýr ef
bæturnar væru lágar. Til að sporna
við þessu þyrftu bæturnar að vera
það háar að fjölmiðillinn spyrði sig
spurninga sem fjölmiðlar eiga að
spyrja: Á fréttin erindi til almenn-
ings eða erum við að brjóta gegn
friðhelgi einkalífs með frétt sem á
ekki erindi til almennings? Ef svarið
er nei og fréttin á ekki erindi til al-
mennings, þá hikar fjölmiðillinn
hugsanlega við að henda einkalífs-
fréttinni á flenniforsíðu og setja við
hana brostin hjörtu ef hann veit að
slíkri fréttamennsku fylgi fjárhags-
legar afleiðingar og enginn fjárhags-
legur ávinningur.“
Að neyða gildum upp á aðra
Hvaðfinnstþérum myndbirtingar
í fjölmiðlum af mönnum sem ein-
hver úti í bœ sakar um svívirðilegt
athœfi?
„Það þarf að stíga afar varlega til
jarðar hvað varðar umfjöllun og
myndbirtingar af mönnum sem eru
sakaðir um glæp en hafa ekki verið
ákærðir. Við höfum stjórnarskrár-
ákvæði sem segir að hver maður sé
saklaus þar til sekt hans sé sönnuð
fyrir dómi. Það að búa til flennifyr-
irsögn og myndbirta og nafngreina
mann í rannsókn sem er rétt á frum-
stigum getur verið mannorðsmorð."
Erum við nógu meðvituð um þá
grundvallarreglu að maður sé sak-
lausþar til sekt hans sé sönnuð?
„Fátt er skelfilegra en að vera sak-
laus sakfelldur fyrir dómstóli. Það er