blaðið - 09.02.2006, Side 38
381 FÓLK
FIMMTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2006 biaðið
SMÁ
borgarinn
ÚTLITIÐ BJART
HJÁ TOTTENHAM
Smáborgarinn hefur verið nokkuð ánægð-
ur i vetur enda er liðið hans, Tottenham
Hotspur, að gera fína hluti í ensku úrvals-
deildinni. Liðið er um þessar mundir í
fjórða saeti, fjórum stigum á undan erki-
fjendunum í Arsenal sem þó eiga leik til
góða. Efstu fjögur sætin í deildinni gefa
þátttökurétt í Evrópukeppni meistara-
liða og myndi það gleðja Smáborgarann
og aðra Spursara ákaflega að komast í þá
miklu keppni eftir fremur magurt gengi
undanfarin ár.
Ekki myndi það minnka ánægjuna
ef Evrópusætið kæmi á kostnað áður-
nefndra erkifjenda. Gengi Arsenal hefur
verið skrykkjótt íveturog virðast Gúnarar
sakna síns gamla fyrirliða, Patrick Vieira,
ákaflega. Þá hefur Sol Campbell, sem
Spursarar þekkja ekki undir öðru nafni en
„Júdas", verið langt frá sinu besta eins og
raun fleiri leikmenn liðsins.
Tottenham varð síðast enskur meistari
árið 1961 og er eyðimerkurgangan þvi
orðin 45 ár. Hið litla hjarta Smáborgarans
hefur ekki alltaf tekið mótlætinu vel og
oft hefur Smáborgarinn verið nálægt því
að gefa áhorf á enska boltann upp á bát-
inn. Hann hefur þó sem betur fer aldrei
svo mikiö sem ihugað að skipta um lið
enda slær hjartað stolt, þó stigin hafi á
tíðumveriðfá.
Eftir að hollenski bangsinn Martin Jol
tók við liðinu í vetrarbyrjun 2004 hafa
hins vegar ferskir meginlandsstraumar
blásið um liðið og þegar það leikur sem
best er unun á að horfa. Bolabíturinn
Edgar Davids, landi Jols, hefur auk þess
komið með langþráða baráttu í liðið og
er hinum fjölmörgu ungu og efnilegu
leikmönnum liðsins vafalaust dýrmætur
kennari. Það var líklega síðast brjálæð-
ingurinn Paul Gascoigne sem barðist af
slíkri áfergju í hvítu treyjunni. Um borð í
skútunni eru nú sex enskir landsliðsmenn
og þá getum við auk þess státað af því að
eiga einn íslenskan leikmann; hinn stór-
skemmtilega Emil Hallfreðsson, þó að
hann hafi reyndar ekki fengið að spila
með aðalliðinu ennþá.
Það eru bjartir tímar framundan hjá
Tottenham og Smáborgarinn bindur
vonir við að eyðimerkurgangan nái ekki
hálfrar aldar afmæli. En í dag lætur hann
sér nægja að hugsa til sunnudagsins. Þá
heimsækir Tottenham botnliðið Sund-
erland sem eru sýnd veiði en ekki gefin.
Spurs-herinn þarf að hafa allar klær úti
- þá og alltaf!
HVAÐ FINNST ÞÉR?
Árni Johnsen, fyrrverandi Alþingismaður
Eru jarðgöng til Eyja úr sögunni?
Nei, nei. Langt frá því. Þetta mat er byggt á forsendu sem er ein af mörgum mögu-
legum. Þarna vantar líka ákveðnar grunnupplýsingar sem menn virðast ekki hafa
vitað um. En nú skoðum við þetta bara. Þarna er valin dýrasta mögulega leið, sem
búið var að slá út af borðinu fyrir löngu. Það er til dæmis reiknað með að heilbora
aðra leiðina, sem lengir framkvæmdatímann um helming og fóðra göngin á eftir.
Við höfum hins vegar bent á aðrar leiðir sem eru miklu hagkvæmari og við mun-
um berjast fyrir þessu máli áfram. Þær forsendur sem við höfum gefið okkur, sem
gera ráð fyrir kostnaði upp á 16 milljarða, eru enn í fullu gildi.“
Sérfræðingar á vegum Vegagerðarinnar hafa reiknað út að kostnaður við jarðgöng til Vestmannaeyja nemi um 70 milljörðum.
Keira og Scarlett naktar á forsíðu
Hollywood skvísurnar Keira
Knightley og Scarlett Johansson
sitja naktar fyrir á forsíðu á hinu
árlega Hollywood-hefti tímaritsins
Vanity Fair. Á myndinni með þeim
er heppni hönnuðurinn Tom Ford,
en hann er listrænn stjórnandi
heftisins. Hann hljóp í skarðið fyrir
leikkonuna Rachel McAdams, sem
hætti við á síðustu stundu.
Ljósmyndarinn Annie Leibovitz,
sem tók myndirnar, sá um að eitt-
hvað væri hulið og skilið eftir fyr-
ir ímyndunaraflið. Leikkonurnar
fögru, sem aldrei höfðu sést áður,
voru samt stressaðar fyrir mynda-
tökuna og flissuðu vandræðalega
þegar þær fóru úr hvítu sloppunum
sínum.
Þegar myndtakan var búin,
stúlkurnar komnar í föt og komið
að kveðjustund sagði Knightley
við Scarlett: „Gaman að hitta þig,
kannski sjáumst við einhvern tíma
aftur, naktar að sjálfsögðu.“ Johans-
son skaut þá til baka: Mjög gaman
að hitta þig sömuleiðis, á svona ná-
in hátt.
Tímaritið inniheldur einnig
myndir af Angelinu Jolie í baði og
George Clooney, fullklæddan, að
leikstýra hópi af konum í húðlituð-
um göllum.
Carey er vöðvastœlt
Poppdrottningin Mariah Carey er brjáluð út í tískugagnrýnendur í Holly wood sem
segja hana of þunga til að klæðast efnislitlum klæðnaði. Hún segir fólk hafa angrað
sig mikið vegna þess hvernig hún klæðir sig en hún er ánægð með útit sitt og lítur
á að hún sé vöðvastælt, ekki feit.
„Ég fylgist ekkert voðalega mikið með þyngd minni, ég þyngist og léttist sitt
á hvað vegna þess að ég er mjög vöðvastæít, fólk gerir sér ekki grein fyrir því,“
sagði Carey aðspurð um málið. Hún segir þyngd sína vera í umræðunni vegna
þess að hún er aðeins þykkari en aðrar poppstjörnur. Ég vil ekki vera algjör
Glæsilegir rafhitaðir nuddpottar frá Californiu
verð frá 370.000
Rúmgóðir og djúpir nuddpottar frá 13001. til 17001
Njóttu vetrarins í nuddpotti frá nuddpottar.is
Hvað er betra en að liggja í heitum nuddpotti á
köldu vetrarkvöldi, horfa á stjörnurnar
Nei, nei.Taktu bara þinn tíma.
Vélin fer ekki í loftið fyrr en eftir 3 mínútur.
HEYRST HEFUR...
Eins og fjöl-
miðlaneyt-
endur hafa
ekki komist
hjá því að taka
eftir er enn
eitt prófkjörið
í aðsigi. Mik-
ið ber á fram-
bjóðendum, sem hafa eitt og
annað til málanna að leggja,
þó fæst sé það kannski hollt
fyrir veski kjósenda. Hér á ís-
landi hefur ekki tiðkast eins
og sums staðar út í heimi, að
fjölmiðlar lýsi yfir beinum
stuðningi við einn frambjóð-
anda í prófkjörum öðrum
fremur. DV vék þó aðeins út
af þeirri braut í gær, ekki með
stuðningsyfirlýsingu, heldur
með því að taka einn frambjóð-
andann til bæna. Páll Baldvin
Baldvinsson, ritstjóri, skrifar
þar á leiðarasíðuna og skamm-
ar Dag B. Eggertsson fyrir að
hafa ekki sinnt fyrirspurnum
Höfuðborgarsamtakanna um
skipulagsmál.
Menn hafa löngum vitað
að Árni Johnsen hefði
ofurmannlegt afl á mörgum
sviðum, en þegar flett er upp á
honum í simaskránni kemur i
ljós að hér í Reykjavík er Árni
Johnsen blaðamaður. í Vest-
mannaeyjum er hann hins veg-
ar alþingismaður... ef marka
má símaskrána. Þetta minnir
auðvitað aðeins á ofurmennið
sjálft, sem brá sér einmitt inn
í símklefa til þess að breytast
úr aumum blaðamanni í ofur-
mennið á nokkrum nanósek-
úndum...
Athygli
vakti
að Dags-
brún und-
ir stjórn
Gunnars
Smára Eg-
ilssonar
hefur fest
kaup á Senu, sem áður hét
Skífan, að því frátöldu þó að
Róbert Melax heldur áfram
í sjálfan verslunarreksturinn.
Dagsbrún hefur hins vegar
keypt til sín alla útgáfu, um-
boð og því um líkt á myndefni,
tónlist og tölvuleikjum. Nú
velta menn því fyrir sér hvað
verði um Skífubúðirnar, því
Melax er engin búðarloka. Sag-
an segir að Hagar (Baugur)
muni kaupa þær áður en mjög
langt um líður, en ekki mátti
selja Senu alla saman vegna
athugasemda Samkeppniseft-
irlitsins...
DŒskndu
ekki alveg
í því um
d a g i n n
hvað Morg-
unblaðið
fjallaði ná-
kvæmlega á forsíðu blaðsins
um hræringar á atvinnumark-
aði í Austur-Asíu, en nokkrir
starfsmenn Asíudeildar Ice-
landic sögðu upp og réðu sig
til fyrirtækisins Asia Seafood.
Ástæðan kann að vera sú að
fyrirtækið Athygli vakti at-
hygli blaðsins á þessu, enda var
einum viðskiptamanni þess,
Ólafi Ólafssyni í SÍF, frekar
skemmt yfir hremmingum Ice-
landic. Nú munu hins vegar all-
ir starfsmennirnir nema fjórir
komnir aftur í faðm Icelandic,
en ekkert bólar á ábendingu
frá Athygli vegna þess...