blaðið - 11.02.2006, Page 1
BENSÍN DÍSEL
EGO er við: Fellsnnila, Hagasmára, Hædasmára, Salaveg, Stekkjabakka og Vatnagarða!
Frjálst,
óháð &
ókeypis!
35. tölublað 2. árgangur
laugardagur
11. febrúar 2006
■ HEIMILI
Þarftii hjálp við að
fegra heimilið þitt?
Auður Ögn Ámadótti
heimsækirfólkog
gefur góð ráð
| SlÐA 30
■ TÍSKA
Naeem Khans
á tiskuvikunni
í New York
Munúðarfullir kjólar
og mjúkar línur
| SlÐA 24
■ BÍLAR
Ekkert stoppar
íslenska jeppamenn
Hafa farið á Suðurskautið og
Hvannadalshnjúk
| SÍÐA 34
Fórnaði alemunni
fyrir listina \ .4iff
Einar Hákonason segir listina
háskólavædda og hundleiðinlega
Blaölí/Frikki
------V---
Refefeian
FULL BÚÐ AF FRÁBÆRUM
AMERÍSKUM HEILSURÚMUM
Amerískar Heilsudýnur í
hæsta gæðaflokki. King
Koil hefur framleitt hágæða
rúm í Bandaríkjunum síðan
árið 1898 og framleiðir í
dag einu dýnurnar sem eru
bæði með vottun frá FCER
og Good Housekeeping,
stærstu neytendasamtök í
Bandaríkjunum.
Febrúartilboð
119.400.-
Klng Kol) Splne suppoii Quoen slxe
hellsudýnusett og fætur
■ VIÐTAL
Eurovision gerir
okkur kolvitlaus
Selma Björnsdóttir er ein
þeirra sem standa að
baki atriði Silvíu Nóttar í
forkeppni Eurovision hér á
íslandi og segist gjarnan vilja
sjá hana sigra.
Algengt að ökumenn stingi af
Algengt er að ökumenn forði
sér af vettvangi verði þeim á
að keyra á kyrrstæðan bíl. FÍB
býður verðlaun til þeirra sem
verða vitni að slíku.
Friðrik S.Björgvinsson, lögreglu-
maður í Kópavogi, segir þetta
algengan vanda. „Það er alltaf eitt-
hvað um þetta. Kannski svona að
meðaltali þrjú tilvik á viku hér hjá
okkur.“ Friðrik segir hlutfall upp-
lýstra mála þó vera stærra en ætla
mætti í fyrstu. „Það er oft sem ein-
hver verður vitni að slíkri ákeyrslu
og lætur síðan eiganda bílsins sem
verður fyrir tjóninu vita eða snýr
sér til okkar. Síðan er algengt að
öryggismyndavélar séu í kringum
verslunarmiðstöðvarnar og það er
alloft sem við höfum upplýst mál
með því að nýta okkur þær.“
Varðar við umferðarlög
Að stinga af eftir árekstur er brot á
tíundu grein umferðarlaga. Sektin
hljóðar upp á tíu þúsund krónur
í þeim tilfellum sem upp kemst
um ökumenn sem ekki greina frá
árekstrinum.
„Fólk ber því oft við að það hafi
einfaldlega ekki tekið eftir því að
hafa valdið tjóni. Við metum það
í hvert skipti þegar menn segjast
ekki hafa orðið varir við þetta, en
oft er tjónið það mikið að það er
ósennilegt annað en að fólk hafi
orðið vart við áreksturinn," segir
Friðrik.
FÍB lofar verðlaunum
Félag íslenskra bifreiðaeigenda,
FÍB, býður einskonar „fundar-
laun“ fyrir þá sem verða vitni að
afstungum og láta vita af því til
þartilbærra yfirvalda. Leiði upp-
lýsingarnar til þess að sá sem að
tjóninu er valdur finnst, greiðir
félagið þeim sem varð vitni að
árekstrinum og tilkynnti um
hann tíu þúsund krónur. Þetta á
þó aðeins við þegar sá sem verður
fyrir tjóninu er meðlimur í Félagi
íslenskra bifreiðaeigenda.
„Ætli þetta séu ekki orðin ein
þrjú eða fjögur ár síðan félagið
tók upp á þessu,“ segir Runólfur
Ölafsson, framkvæmdastjóri FÍB.
„Það er alltaf eitthvað um það að
fólk tilkynni um slíka árekstra
en miðað við það hve algeng slík
tilvik eru hefði maður haldið að
meira væri um tilkynningar. Hug-
myndin á bakvið þetta hjá okkur er
sú að gera almenning meðvitaðan
um mikilvægi þess að greint sé frá
slíkum atburðum."
Kl\i,
K« >ii
wíSjjíjjijj;
Refefejan
Skipholt 35 Sín\i 588 1955 www.rekkjan.ia
Gloymum ekld 1 leit okkar að góðu liti
að þaó eru llísgæði að fá góðan sveín