blaðið - 11.02.2006, Qupperneq 54
541 FÓLK
LAUGARDAGUR 11. FEBRÚAR 2006 blaöiö
GLANSMYND
STJÓRNMÁLAMANNA
Smáborgarinn er orðinn ótrúlega
leiður á prófkjörum. Endalaust þarf
hann að hlusta á fleira og fleira fólk
lofa að bjarga borginni, sveitarfélaginu,
landinu og jafnvel heiminum með
alveg snilldarlegri nýrri hugsun. Hvaða
hugsun er það? Jú, allt þetta fólk, sem
margt hvert hefur setið árum saman
að kjötkötlunum, er sko alveg með
það á hreinu að með þvi að setja fólkið
í fyrirrúmi þá muni ekki það ekki
vera í nokkrum vandræðum með að
stýra heiminum í eilífðarhamingjuna.
Hvílíkur frumleiki! Hvílík snilld. Það
væri auðvitað óskandi að fólk hefði
kosningaslagorðin sín að boðorðum í
stjórnsýslunni þegar það nær kosningu
en það er líklega til of mikils mælst.
Hvf skyldu stjórnmálamenn líka
þurfa að muna nokkuð þegar kjósendur
gleyma hverjum skandalnum á fætur
öðrum á þremur sekúndum sléttum?
Þegar Smáborgarinn var að alast
upp þá var það nú talinn hinn mesti
dónaskapur að mæra sjálfan sig Ifkt
og hver frambjóðandinn á fætur
öðrum gerir nú gargandi upp f ginið
á hver öðrum og hafa gert í framboði
flokkana síðustu mánuði. Mikið er
Smáborgarinn orðinn þreyttur á að
heyra af framtíðarsýn einstakra manna
fyrir borgina sem speglast í glansandi
hvftu brosinu á kosningamyndum
frambjóðenda. Þar birtast þeir eins
og glansmynd af sjálfum sér háleilagir
með háleit markmið. Hvar var þetta
sama lið þegar bæjarstjórnir voru
að úthluta ættingjum og vinum
lóðum, já eða jafnvel sínum eigin
verktakafyrirtækjum? Hvar var þá
framtíðarsýnin á framtíðina?
Fjölskylduna? æskuna?
Smáborgarinn er kominn á þá
skoðun að ægimargir stjórnmálamenn
hugsi lítfð um hefldarhag nema
í hjáverkum. Þeirra helsta
hugmyndafræði virðist snúast um að
uppfylla eigin æskudrauma. Fólkið
sem það vill setja í fyrirrúm er þeirra
eigin fjölskylda og framtíðin snýst um
að viðhalda völdum.
Smáborgarinn sér bara ekki hvað
er svona nýtt við það. Þetta virðist
allt saman vera sama gamla tóbakið.
Hingað til hefur það nú lítið gert fyrir
heiminn.
HVAÐ FINNST ÞÉR?
Kristján L. Möller, alþingismaður
Er bara rausað á Alþingi?
„Nei, alls ekki. En við höfum kannski séð það í gær að ráðherrar geti stundum
verið vanstilltir. Þegar þeim leiðist í vinnunni finnst þeim þingmenn stundum
vera að rausa. Yfirleitt fer þarna fram málefnaleg og góð umræða og hún var það
í þessu tilviki þar sem við ræddum um byggðamálin. Það voru líklega ekki nógu
margir sem hældu ráðherranum í umræðunni og þess vegna hafi hún verið svona
vanstillt. En ég óska Valgerðar bara góðrar helgar.“
Valgerður Sverrisdóttir sagöi f kjölfar umræðu um byggðamál I þinginu að hún hefði orðiö fyrir gríð-
arlegum vonbrigðum með málflutning þingmanna, þar á meðal Kristjáns. Hún sagði þingmennina
hafa rausað í átta klukkustundir.
Pamela í Baywatch mynd
Sllíkonbomban Pamela Anderson mun leika lítið hlutverk í nýrri kvikmynd
byggðri sjónvarpsþáttunum margrómuðu Baywatch, eða Strandverðir, sem sýndir
voru á Rúv fyrir nokkrum árum.
David Hasselhoff, Mitch sjálfur, vinnur að myndinni ásamt íslandsvininum
Eli Roth, sem er einn af framleiðundum myndarinnar og hefur verið orðaður
við leikstjórn. Pamela er ein þeim fyrstu leikurum þáttarins sem samþykkir
að koma fram í myndinni en bomburnar Carmen Electra, Erika Eleniak,
Yasmin Bleeth og Traci Bingham eiga eftir að samþykkja.
Eli Roth sagði líklegt að flestar konurnar sem léku í
þáttunum komi fram í litlum hlutverkum en aðalhlut-
verkum verða í höndum nýrra skvísa.
Nick með vinkonu Jessicu
Aðeins viku eftir að fréttir bárust hugsanlegri endurlífgun Sambands Jess-
icu Simpson og Nick Lachey fóru sögusagnir af stað um samband Nicks
við Cacee Cobb, sem er í senn besti vinur og aðstoðarkona Jessicu.
Tímaritið Life & Style hefur eftir vitnum sem sá Nick og Cacee sam-
an á skemmtistað að þau hafi ekki fengið nóg af hvort öðru. „Nick var
hélt utan um hana og var að kyssti hana á fullu, hún hélt líka utan um
hann,“ sagði dauðskelkað vitni. „Við trúðum ekki eigin augum, við
biðum bara eftir að þau rifu fötin af hvort öðru.“
Talsmaður Nicks neitaði öllum sögusögnum. „Nick og Cacee eru
bara vinir,“ sagði hann bálreiður
West will vera
persóna í Biblíunni
Rapparinn sjálfumglaði Kanye West hefur stungið upp á að
ný útgáfa verði skrifuð af Biblíunni vegna þess að honum
finnst að hann ætti að vera persóna í henni.
West vann þrjú Grammy verðlaun á hátíðinni á Þriðju-
dag og var það ekki til að minka „egóið.“ „Ég tala
um sagnfræðileg málefni í textum mínum sem
fá börn til að vilja læra um þau,“ sagði West,
kampakátur. „Ég er hvatning. Ég hef breytt tón-
list heimsins oftar en einu sinni, þess vegna ætti
ég að vera í Biblíunni. Ég er pottþétt kominn í
Mánudaginn 13. febrúar
[J fl 1:
Viðtöl • Sushi • Trafflur og margt fleira
blaðió
Auglýsendur, upplýsingar veita:
Kolbrún Ragnarsdóttir • Simi 510 3722 • Gsm 848 0231 • kolla@bladid.net
Ellert Ágúst Pálsson • Sími 510 3746 • Gsm 869 9903 • eUi@bladid.net
Bjami Danielsson • Sími 510 3725 • Gsm 856 4299 • bjarni@bladid.net
by Jim Unger
4-25
O Jim Unger/dlst. by Unlted Medla, 2001
Ég þoli ekki uppþvott.
HEYRST HEFUR...
Tíðindi frá Mannanafna-
nefnd vekja jafnan kátínu
enda er þar skemmtilega geggj-
að fyrirbrigði á ferðinni. I gær
var sagt frá nýjasta úrskurði
nefndarinnar og enn eru henni
mislagðar hendur. Hvernig
í ósköpunum getur nefndin
hafnað karlmannsnafninu
Hnikarr? Það nötrar af þjóðleg-
heitum og er eitt nafna Óðins
ef rétt er munað. Nefndin sam-
þykkir aftur á móti Bill (flott)
og Daley (svalt). Tóki er nú við-
urkennt nafn, hljómfagurt og
sérstakt, og kvenmannsnafnið
Naranja fær einnig blessun
þessarar bráðskemmtilegu
nefndar. Naranja hefur yfir sér
framandi og ljúfan blæ en þess
má geta að orðið þýðir „appels-
ína” á spænsku.
Loksins,
loksins
er komið
að því!
Prófkjör
Samfylk-
ingarinnar
í Reykja-
vík fer
fram um
helgina og verða víst ýmsir því
fegnir, einkum þessi fáeinu
hundruð borgarbúa sem ekki
hafa hugsað sér að taka þátt í
því og eru ekki í framboði að
þessu sinni. Spennan hefur far-
ið vaxandi með degi hverjum
og hefur titringurinn m.a.s.
komið fram á skjálftamælum
í því mikla metrópólis, Kópa-
vogi. Stuðningsmenn Steinunn-
ar Valdísar Óskarsdóttur borg-
arstjóra leggja nú áherslu á að
ekkert dugi nema fyrsta sætið
vilji vinstri menn áfram njóta
krafta hennar í borginni.
Bj a r t-
s ý n i
um gott
gengi í
prókjörinu
hefur farið
v a x a n <f i
í röðum
stuðningíl-
m a n n a
Bjarkar Vilhelmsdóttur síð-
ustu dagana en hún sækist eft-
ir 3. til 4. sæti á listanum. Hún
ein frambjóðenda er ekki félagi
í Samfylkingunni og fer fram
sem fulltrúi óháðra. Stuðnings-
menn segja að þessi sérstaða
Bjarkar mælist vel fyrir og að
margir kunni að meta stað-
festu hennar að segja skilið við
Vinstri-græna eftir andlát R-list-
ans. Degi
B. Eggerts-
syni gekk
vel þegar
hann var
óháður en
hann hefur
núgerstháð-
ur, þ.e.a.s.
Samfylk-
ingunni,
og stefnir
enn hærra. Nú er að sjá hvort
öfugur hringur við Dag kemur
Björk Vilhelmsdóttur til góða.
Stuðningsmenn binda vonir
við öfluga grasrótarvinnu og
staðfastan hóp raunverulegra
vinstri manna.