blaðið - 17.02.2006, Side 18
18 I GÆLUDÝR
FÖSTUDAGUR 17. FEBRÚAR 2006 blaðið
í ósanngjarnri samkeppni við ríkið
Kristín Jóhannsdóttir opnaði nýverið einangrunarstöð og er því í samkeppni við einangrunarstöðina í Hrísey.
Þegar flutt er búferlum til annars lands þá fá dýrin oftast að fylgja
með, þrátt fyrir að það geti verið kostnaðasamt og flókið. Kristín Jó-
hannsdóttir opnaði nýverið einangrunarstöð í Reykjanesbæ þar sem að-
staðan er mjög góð enda var húsið sérstaklega byggt undir starfsemina.
Á Einangrunarstöðinni er pláss fyrir
rúmlega þrjátíu dýr, 25 hunda og 9
ketti. Kristín tók fyrstu dýrin inn
1. desember í fyrra en hún vinnur
á stöðinni ásamt tveimur öðrum
starfsmönnum.
„Þetta hefur gengið mjög vel. Það
er alltaf eitthvað um að fólk sé að
flytja með sér dýr inn til landsins
en helst er þetta fólk sem er að flytja
heim með dýr. Það er ósköp eðlilegt
að fólk vilji að dýrin fylgi með þegar
flutt er heim enda eru dýrin oft á
besta aldri og eiga mikið eftir.“ Öll
dýr fara í gegnum strangan feril áður
en þau koma til landsins auk þess
sem þau eru í einangrun í mánuð.
Kristín segir að aðstaðan í Einangr-
unarstöðinni sé mjög fín enda sé
allt splunkunýtt. „Dýrin eru hvert í
sínu búri og við erum með inni- og
útibúr. Þau eru alltaf i búrunum því
þau eru vitanlega í einangrun hvort
frá öðru líka. Hvert dýr hefur sitt
búr og úti- og innibúrin er samtengd.
Við tökum alls kyns próf á þeim
hér og núna erum við til dæmis að
prófa fyrir hestainflúensu sem gekk
í Bandaríkjunum og smitaðist yfir í
hunda líka. Svo þarf að fylgjast með
og hafa eftirlit með dýrunum, hvort
þau eru smitberar eða ekki.“
„Það er eins með dýrin og mannfólkið, þau eru eins misjöfn og þau eru mörg."
Margt ábótavant í Hrísey
Auk Einangrunarstöðvar Kristínar
er einangrunarstöð í Hrísey sem er
í eigu ríkisins en Kristín segist ekki
vera sátt við að vera í samkeppni
við ríkið. „Ríkið á einangrunarstöð
í Hrísey en hún er rekin af öðrum.
Reyndar er stöðin í Hrísey ekki sam-
keppnishæf miðað við mína þar sem
hún er rekin á undanþágu. Helst
leiðist mér að vera í samkeppni við
einhvern sem fær undanþágu þegar
miklar kröfur eru gerðar til mín. Ég
byggði mína stöð alfarið í samstarfi
við dýralæknisembættið og fer eftir
þeirra reglugerðum. Ég veit því að
það er margt ábótavant í Hrísey sem
þyrfti að lagfæra en hefur ekki verið
gert. Hún fær bara undanþágu til
reksturs á meðan ég er með fullnægj-
andi stöð. Mér finnst þetta skrýtið
og ósanngjarnt," segir Kristín og við-
urkennir að það var töluvert meira
mál að byggja þessa stöð heldur en
hún bjóst við í fyrstu. „Ég hefði ekki
farið út í þetta ef ég hefði vitað hve
mikið þetta kostaði mig en aftur á
móti er svo gefandi að gera það sem
maður hefur gaman af þannig að ég
sé ekki eftir þessu.
Allt sem viðkemur dýraríkinu
Ég hef óskaplega gaman af dýrum
og skepnuhaldi yfir höfuð. Dýr og
allt sem viðkemur dýrarikinu er líf
mitt og yndi. Þetta er eitthvað sem
ég fæddist með og ekki hefur það
batnað eftir því sem ég eldist. Með
því að stofna Einangrunarstöðina
fann ég kjörið tækifæri til að skapa
mér atvinnu við það sem mér finnst
gaman að gera. Ég sé alls ekki eftir
því, þetta er ofboðslega gaman,“
segir Kristín með tilfinningu og
bætir við að það sé allt skemmtilegt
við þetta starf. „Um leið og ég loka
á eftir mér hurðinni og er kominn
inn í stöð þá er þetta svo gaman.
Mér finnst til dæmis gaman að spá
í atferli hvers dýrs. Það er eins með
dýrin og mannfólkið, þau eru eins
misjöfn og þau eru mörg.“
svanhvit@bladid. net
Fiskadagar
í Dýraríkinu
DÝRARÍKIO
Grensásvegi s: 5686668 - Skútuvogi 16 s: 5680020
Akureyri s:4612540 - www.dyrarikid.is
Hjartasjúkdómar eru
algengari hjá sumum
hundategundum
Rétt eins og mannfólkið fá
hundar og önnur dýr alls kyns
sjúkdóma. Sjúkdómarnir eru
misalvarlegir en til dæmis fá
hundar hjartaáföll. Það er án efa
mikið áfall þegar hundurinn í fjöl-
skyldunni veikist þar sem hann
er jafnan besti vinur mannsins, í
orðsins fyllstu merkingu. Helga
Finnsdóttir, dýralæknir, fræddi
blaðamann Blaðsins um sjúk-
dóma hunda.
Ákveðnir sjúkdómar eru algengari í
sumum hundategundum en öðrum.
.Þegar svo er má álíta að um sé að
ræða arfgengan sjúkdóm. Til dæmis
er vitað að það eru þekktir hjaxta-
sjúkdómar í smáhundum en það er
ekkert síður í stærri hundum. Hjarta-
sjúkdómareruþekktiríöllumhunda-
tegundum en algengari hjá sumum
en öðrum.“ Helga segir að samt sem
áður eru aldrei framkvæmdar hjarta-
aðgerðir á hundum hér enda eru það
mjög flóknar aðgerðir. „í sumum
tilfellum er hjartasjúkdómur áunn-
inn og getur líka verið öldrunarsjúk-
dómur enda verður hjartað veikara
með aldrinum. Þá er reynt að auka
á vellíðan hundsins með lyfjum sem
henta hverju tilfelli fyrir sig,“ segir
Helga og bætir við að hundar sem
eru með meðfædda sjúkdóma
sem eru arfgengir geta lifað ein-
kennalausir í ákveðinn
tíma en þegar ein-
íí kennin konia í
ljósþáeruþau
meðhöndluð.
svanhvit@
bladid.net
Þaö er án efa mikið áfall þegar hundurinn í fjölskyldunni veikist
þar sem hann er jafnan besti vinur mannsins, í orðsins fyllstu
merkingu.
30% - 50% AFSLÁTTUR
Af öllum gæludýravörum.
NUTRO — CHOICE KATTAFÓÐUR í
HÆSTA GÆÐAFLOKKI 50% AFSLÁTTUR.
TOKYO
Igæludýravörur
Hjallahraun 4
Hafnarfirði s.565-8444
Opið
mán-fös. 10-18
Lau. 10-16
Sun 12-16