blaðið - 17.02.2006, Side 24

blaðið - 17.02.2006, Side 24
24 I MEWWIWG FÖSTUDAGUR 17. FEBRÚAR 2006 blaöift . Guðbergi hrósað í Pýskalandi Fyrra bindi skáldævisögu Guð- bergs Bergssonar, Faðir og móðir og dulmagn bernskunnar, kom nýverið út hjá Steidl útgáfunni í Þýskalandi en þetta er fjórða bók Guðbergs sem Steidl gefur út ■** eftir hann. Bókin hefur hlotið afar góðar móttökurogfengiðlofsam- lega dóma í fjölmiðlum í Þýskalandi og Sviss. Á útvarpsstöðinni Deutc- hlandsradio sagði Katharina Döbler gagnrýnandi að Guðbergur miðli frekar hughrifum en frásögnum í bernskulýsingum sínum og um- fjöllun um foreldra sína og aðrar per- sónur úr bernsku sinni. „Allt þetta fólk lifnar skamma stund í stuttum lýsingum, í tali sínu og tilburðum - en það fær aldrei hið endanlega yfirbragð skáldaðra sögupersóna ... Töfrarnir sem stafa frá þessari bók eru nátengdir fólki en líka hlutum: í heimi íslensks fiskiþorps á fjórða áratug síðustu aldar voru ekki til margir hlutir. Ný kolaeldavél á heim- ilinu markaði tímamót, trélistar úr smíðaafgöngum voru einstakt og makalaust leikfang og vöktu öfund. Þessir listar verða Guðbergi t.d. til- efni heillar kenningar um listir, út frá þeim skilgreinir hann goggunar- röð barnanna innbyrðis af hnitmið- aðri díalektík.“ Wolfang Miiller segir í Die Tage- zeitung: „Tónar GB eru tærir, gegn- sæir, og töfrandi fegurð þeirra suðar í höfði manns. Og þá minnir bragðið á frostrósir sem eru skafnar af rúðunum með skeið og mynda ljúffenga ísblómasúpu. Eða á brúna sósu, búna til úr uxa sem nýjasta tækni hefur pressað saman í súpu- tening og kallast „Kraft“.“ í einu stærsta dagblaði Sviss, Neue Ziircher Zeitung, skrifar Andreas Breitenstein: „Skáldævisaga GB er full af kröftugum myndum og sterkum sögum sem fjalla um arf- teknar andstæður tilverunnar: Um tímann og eilífðina, líf og dauða, menningu og náttúru, konuna og karlmanninn, fegurð og ljótleika, von og örvæntingu. Ljóðrænn texti þessara mynda meitlast í huga lesandans. Hvort heldur um er að ræða víðáttur sálarinnar eða náttúr- una - athuganir GB einkennast af hárfínni nákvæmni og óendanlegri dýpt. Tungutak hans er tilgerðar- laust og vekur engu að síður ljóm- ann í leyndardómi hlutanna.“ Aukasýningar á ' Forðist okkur Hin umtalaða leiksýning Forð- ist okkur eftir Hugleik Dagsson verður tekin til sýningar að nýju á Litla sviði Borgarleikhússins í mars. Sýningin fékk afar góðar viðtökur í haust jafnt hjá gagnrýnendum sem og almenningi og komust færri að en vildu. Forðist okkur er samstarfs- verkefni CommonNonsense og Nemendaleikhússins. Leikstjórar eru Stefán Jónsson og *•« Ólöf Ingólfsdóttir. Leikarar í sýning- unni eru: Aðalheiður Halldórsdóttir, Birgitta Birgisdóttir, Dóra Jóhanns- dóttir, Halldóra Malín Pétursdóttir, Jörundur Ragnarsson, Magnea Björk Valdimarsdóttir, Stefán Hallur Stef- ánsson, Sveinn Ólafur Gunnarsson, Víðir Guðmundsson og Valur Freyr Einarsson. Aðeins er unnt að sýna ío sýn- ingar. Miðasala er hafin hjá miða- sölu Borgarleikhússins. Esther ír sýnir í Aurum Esther ír Steinarsdóttir sýnir í Aurum Bankastræti ljósmyndina Ásta sem er hluti af myndaröð- inni Vinir, þar sem hún sýnir vini sína við uppháhalds iðju sína og í sínum uppáhalds lit. Esther ír útskrifaðist vorið 2005 frá Listaháskóla íslands sem vöru- hönnuður og hefur starfað síðan sem ljósmyndari hjá Blaðinu. Sýningin stendur yfir til 3. mars. Opið mán. - fös. klukkan 10 - 18.00 og lau. klukkan 11 -16.00 Gestur - síðasta máltfðin er gamansöm „hinsegin" óperetta sem sýnd er í Iðnó. Ástarsaga með djúpum karlaröddum Tvær sýningar eru eftir á söngfarsanum Gestur - síðasta máltíðin, sem er íslensk „hin- segin“ óperetta. Verkið er sýnt í Iðnó og síðustu sýningar verða næstkomandi sunnudagskvöld og miðvikudagskvöldið 22. febrúar klukkan 20. 1 verkinu segir frá Lauga og Óli- ver sem eru samkynhneigð hjón í Grafarholtinu og nokkuð ánægðir þar til gesturinn Gestur setur líf þeirra úr skorðum. „Það eru tólf ár síðan við Gautur Gunnlaugsson fórum að leggja drög að þessu verki,“ segir annar höfundurinn Gunnar Kristmannsson. „Við vorum í Tón- listarskólanum á þeim tíma og byrjuðum á því að semja eina aríu. Við erum báðir baritónar og okkur fannst ágætt að notast eingöngu við barítóna í verkinu. Við sáum fyrir okkur að einhver ástarþríhyrningur yrði að vera og þegar maður hugsar um það þá er besti ástarþríhyrning- urinn sem hægt er að hugsa sér í einu verki sá þar sem allir geta orðið hrifnir af öllum.“ Tónlist þeirra félaga spannar fjöl- margar stílgerðir vestrænnar tón- listar. „Söngvarnir eru í stíl Mozart og Rossini, einnig er farið aftur í bar- okkið og við leitum einnig í smiðju Verdis,“ segir Gunnar. Auk þess að semja verkið, tónlistina og textann fara Gunnar og Gauti með hlutverk í óperettunni ásamt Hrólfi Sæmunds- syni sem leikur Gest. Leikstjóri er Þröstur Guðbjartsson og Raúl Jiménez leikur á píanó. 109 SU DOKU talnaþrautir Lausn síðustu gátu 4 3 6 9 8 2 7 1 5 1 7 9 5 6 3 4 2 8 5 8 2 1 4 7 3 6 9 2 5 3 4 7 9 6 8 1 6 9 4 8 5 1 2 3 7 7 1 8 3 2 6 5 9 4 9 4 1 6 3 5 8 7 2 8 6 7 2 9 4 1 5 3 3 2 5 7 1 8 9 4 6 Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum frá 1-9 lárétt og lóðrétt í reitina, þannig að hver tala komi ekki nema einu sinni fyrir i hverri línu, hvort sem er lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu má aukin heldur aðeins nota einu sinni innan hvers níu reita fylkis. Unnt er að leysa þrautina út frá þeim tölum, sem upp eru gefnar. Gáta dagsins 9 8 4 3 2 5 3 1 5 7 6 3 8 5 9 2 5 1 8 7 6 3 4 9 2 9 3 7 6 Tilboð McDonald’s Salat + SpriteZero + Skrefamælir

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.