blaðið - 23.02.2006, Side 1
Fyrirtæki - heimili
Pantaöu Quiznos á netinu og fáöu sent heim 1
Veidu ódýrt bensín _
^avinnmg!
■ MATUR
Kann líka að
elda kjöt
U TONLIST
Spáð i spilin fyrir tón-
listarverðlaun XFM
Dillhjúpaður lambahryggsvöðvi Dr. Spock, Jakobína-
Ragga Ómars með hvítlaukskart- rína og Trabant
öflumauki t sigurstranglegar
Kvittun fyfgir ávinningur!
Frjálst,
óháð &
ókeypis!
ÖBGO
Meirafyrir peninginn
SÍÐA 24
| SÍÐA 30
45. tölublað 2. árgangur
fimmtudagur
23. febrúar 2006
Hjartasjúk-
dómar koma
við pyngjuna
Hjarta- og æðasjúkdómar kost-
uðu ríki Evrópusambandsins 169
milljarða evra (13.520 milljarða
ísl. kr.) árið 2003 samkvæmt
nýrri rannsókn sem birst hefur
í evrópsku læknisfræðitíma-
riti. Það samsvarar 230 evrum
(rúmlega 18.000 ísl. kr.) á hvert
mannsbarn í ríkjum Evrópusam-
bandsins. Skýrsluhöfundar telja
jafnframt að tölurnar séu var-
lega áætlaðar og að kostnaður
við hjarta- og æðasjúkdóma hafi
aukist frá árinu 2003.
Bretar eyða mestu
Bretar eyddu hlutfallslega mestu
fé í þennan málaflokk af öllum
þjóðum Evrópusambandsins
en þar í landi runnu 17% af
útgjöldum til heilsugæslu í hann.
Á frlandi er samsvarandi tala .
4,4% og á Möltu 2%. Ennfremur
töpuðust 268,5 milljónir vinnu-
daga i ríkjum Evrópusambands-
ins vegna hjarta- og æðasjúk-
dóma árið 2003 auk þess sem
þeir höfðu verulega hamlandi
áhrif á daglegt líf 4,4 milljóna
manna eða eins af hverjum 100
íbúum í ríkjum sambandsins.
Þörf á meiri forvörnum
Sérfræðingar í hjartalækn-
ingum segja að niðurstöður
skýrslunnar sýni að þörf sé á
meiri og skilvirkari forvörnum.
Vísindamenn við Oxford-há-
skóla í Bretlandi gerðu rannsókn-
ina og er hún sú fyrsta sem bein-
ist að efnahagslegum áhrifum
hjarta- og æðasjúkdóma í þeim
25 ríkjum sem eiga aðild að
Evrópusambandinu.
Vísindamennirnir studdust
meðal annars við gögn frá heil-
brigðisyfirvöldum í ríkjunum
25 og rannsóknir á áhrifum sjúk-
dóma á starfsgetu sjúklinga og
vinnutap.
<
Höfuðborgarsvæðið
meðallestur
67,3
53,8
46,9
«0
15
ro
-Q
C
3 O) k. »0 O m
O
5 co
»0
iö
m
C
Samkv. fjölmiðlakönnun Gallup janúar 2006
16,6
>
Q
BlaHiMngó
Andófið er nmkilvœgt
Sigurður Gylfi Magnússon sagnfræðingur ræðir um forsetann, stjórnmálamennina og
fræðin í viðtali við Kolbrúnu Bergþórsdóttur. | síður 18 & i 9
Islenskur efnahagstitringur
veldur skjálfta á heimsvísu
Fallandi gengi og lánshœfismat veldur ekki aðeins óróa á íslenskum fjármálamarkaði, því
áhrifanna gœtir um allan heim. Lækkun nokkurra gjaldmiðla rakin til íslands.
Verra lánshæfismat ríkissjóðs íslands og fallandi
gengi krónunnar, sem sigldi í kjölfarið, hefur áhrif
langt út fyrir landsteinana, enda er íslenska hag-
kerfið orðið rækilega samofið hinum alþjóðlega
peningamarkaði. Af þeim sökum lækkuðu gjald-
miðlar fjölda ríkja í gær, einkum meðal hinna
nýfrjálsu ríkja Mið- og Austur-Evrópu, en einnig
meðal ýmissa ríkja annarra, sem hvað mest hafa
sótt í sig veðrið efnalega upp á síðkastið.
Islenska krónan féll um 4,6% gagnvart Banda-
ríkjadal á þriðjudag, en það er mesta gengislækkun
hennar í fimm ár. Ástæðan var lækkun lánshæfis-
mats ríkissjóðs hjá matsfyrirtækinu Fitch Ratings
úr stöðugu í neikvætt. Krónan hélt svo áfram að
lækka hratt gagnvart Bandaríkjadal í gær, en rétti
eilítið úr kútnum þegar á leið, en við lok markaða
hafði hún veikst um 2% alls.
Gengisfall í Brasilíu, Suður-Afríku,
Indónesíu og Tyrklandi
Þessar hrærirngar höfðu áhrif á gjaldeyrismark-
aði víða um heim, en gjaldeyrismiðlarar, sem
hafa haft dálæti á gjaldmiðlum nýju hagkerfanna
svonefndu, virtust missa móðinn og var það í fjöl-
miðlum á borð við Financial Times rakið lóðbeint
Gjaldeyrismiðlarar fylgjast nú með hræringum á fslandi.
til falls krónunnar. Þannig lækkaði brasilíski
realinn um 1,9% gagnvart Bandaríkjadal, suður-
afríska randið um 1,3%, tyrkneska líran um 1,3%
sömuleiðis, indónesíska rúpían um 1% og pólska
zlotyið um 0,5%.
Undanfarin misseri hefur það færst mjög í vöxt
hjá alþjóðlegum gjaldeyrismiðlurum að íjárfesta
í gjaldeyri hinna nýju hagkerfa, en það er óljóst
safnheiti yfir hagkerfi í örum vexti, sem yfirleitt
má rekja til aukins frjálsræðis í efnahagslífi. Flest
þeirra hafa talist til þriðja heimsins eða hinna ný-
frjálsu ríkja í austri. ísland hefur talist til þessara
hagkerfa, enda hagvöxtur hér óvenjumikill og
landið í sjálfu sér nýkomið á kortið hjá viðskipta-
jöfrum heimsins.
Þjóðarskuldir jukust um 163
milljarða á tveimur dögum
Fjármálasérfræðingar telja að gengi krónunnar
sé að mestu búið að ná fyrri stöðugleika og segja
að haldi menn ró sinni sé ekkert að óttast. Aðrir
benda hins vegar á að margir hafí beðið leiðrétt-
ingar á gengi krónunnar og ofmati á hlutabréfum í
Kauphöllinni um nokkra hríð. Telji markaðurinn
að komið sé að henni megi því vænta enn meiri
hræringa áður en langt um líður.
Samkvæmt Seðlabankanum hafa skuldir
þjóðarbúsins aukist hratt undanfarna tvo daga.
Gengi krónunnar hafi veikst um 6,4% þessa tvo
daga og skuldir þjóðarinnar því aukist um 163
milljarða, sem er um 16,5% af vergri landsfram-
leiðslu. Á móti komi þó gengishagnaður vegna
verulegra eigna landsmanna í erlendri mynt. Að
gengishagnaðinum frádregnum má því segja að
staða þjóðarbúsins hafi versnað um 55 milljarða
gagnvart umheiminum.