blaðið - 23.02.2006, Blaðsíða 21
blaðið FIMMTUDAGUR 23. FEBRÚAR 2006
SNYRTIVÖRUR I 21
Heilbrigðara hjarta með hollari mat
Það er áreynslulaust með öllu að elda hollari mat enjákvœðu áhrifin eru þeim mun meiri á hjartað.
Með því að borða hollan og fitu-
snauðan mat með lágu kólesteróli
er hægt að minnka áhættuna á
hjartaáfalli. Það er því án efa góð
hugmynd að breyta mataræðinu
í þá átt að það muni minnka
möguleika á hjartaáfalli en mun
samt sem áður fylla mallakútinn.
Stundum getur verið erfitt að átta
sig á hvaða matur hentar og hér eru
því nokkrar leiðbeiningar.
Til að lækka blóðþrýstinginn þarf að
borða minna af mettaðri fitu, fitu og
kólesteróli. Af daglegri kaloríuneyslu
ætti fitan að mælast undir 10% og eins
ætti mettaða fitan að vera undir 10%.
Auk þess ætti kólesterólneyslan að
vera minni en 300 milligrömm á dag.
Ef aðrir fjölskyldumeðlimir eða þú
sjálf/ur hafa verið með hátt kólesteról
þá þarftu að taka virkilega á mataræði
þínu.
Minnka inntöku mettaðrar fitu
Mettuð fita eykur kólesterólstig meira
en nokkuð annað í mataræði þínu sem
gerir það að verkum að það er mjög
mikilvægt að fjarlægja hana að mestu
úr mataræðinu. Megnið af þeirri mett-
aðu fitu sem þú neytir kemur senni-
lega úr dýraríkinu. Mjólkurvörur,
svo sem smjör, ostur, mjólk, rjómi og
ís auk fitunnar úr kjöti og fuglakjöti
hefur að geyma hátt hlutfall af mett-
aðri fitu. Grænmeti getur líka verið
ríkt af mettaðri fitu, til dæmis kókos-
hnetuolfa, kókossmjör, hnetuolía og
pálmaolía. Ólíkt mettaðri fitu finn-
urðu kólesteról eingöngu í mat sem
kemur af dýrum. Þú getur gjörbreytt
mataræði þínu með því að minnka
inntöku af þessu fæði.
Ekki nota eggjarauðurnar
Það er margt sem hægt er að borða
sem mun bæta heilsuna og minnka
líkurnar á hjartasjúkdómum og hjarta-
áfalli. Það er mögulegt að skipta út
uppáhaldsmatnum með hollum mat.
í stað kjöts eins og pylsur, beikon og
annan fitumikinn mat er hægt að
borða fisk, fuglakjöt og grennra kjöt
þar sem fita og skinn hefur verið fjar-
lægt. Einnig er hægt að minnka inn-
töku af líffærakjöti, eins og lifur, nýra
og heila. Drekktu undanrennu í stað
nýmjólkur og veldu ætíð fituskertan
ost og jógúrt. Ekki nota smjörlíki
heldur fituskert smjör eða olfu. Einnig
er hægt að nota einungis eggjahvítur
sem eru lausar við fitu og kólesteról,
í stað eggja með rauðum. Hjartanu
líður án efa betur á eftir.
Borða mat úr öllum fæðutegundum
Hvernig maturinn er eldaður hefur
áhrif á næringarlegt gildi hans. Það
er betra að grilla, baka eða sjóða mat-
inn heldur en að steikja hann. Það er
frábært að nota ólífuolíu í stað smjörs
þegar steikja á grænmeti. Þegar fyrir-
fram eldaður matur er keyptur skal
ætíð skoða pakkningarnar og kaupa
einungis mat sem hefur lágt fitumagn,
lágt magn mettaðrar fitu og lágt magn
kólesteróls. Notið alla fitu, olíu og sæ-
tindi sparlega. Heilbrigt mataræði
ætti alltaf að innihalda mat úr öllum
grunnfæðutegundunum. Vertu viss
um að borða daglega kornmeti, græn-
meti, ávexti, mjólkurmat og kjöt.
Með smá skipulagningu ættirðu að
geta eldað hollan ljúffengan mat án
áreynslu.
svanhvit@bladid.net
Kynning
Sjónarhóll Gleraugnavérslun
Reykavíkurvegi 22
Hafnarfirði
á morgun föstudag
10:00 til 19:00
Komdu og vertu ineð!
> - - • - > • f
er retti timi nntyrir fÍMPDk
á Tempur heilsudýnum og stillanlegum rúmum
Að sofa er eitt, að hvílast er annað.
í febrúar bjóðum við Tempur heilsudýnur,
stillanleg rúm og kodda á frábæru tilboði.
Yfir 30 þúsund læknar, sjúkraþjálfarar og
kírópraktorar um heim allan mæla með
Tempur. Með Tempur heilsudýnunni nærðu
hámarksslökun, hvíld og svefni sem er lykillinn
að góðri andlegri og líkamlegri heilsu.
EINA DYNAN OG KODDINN SEM
VIÐURKENND ERU AF NASA OG
SKJALFEST AF GEIMFERÐA-
STOFNUN BANDARÍKJANNA ♦
l
ÓSVIKIÐ
TEMPUR* EFNl
Betra
BAK
Faxafeni 5 • Reykjavík • Sími 588 8477 • betrabak@betrabak.is • www.betrabak.is
Opib virka daga frá kl. 10-18 • Laugardaga frá kl. 11-16