blaðið - 23.02.2006, Blaðsíða 32

blaðið - 23.02.2006, Blaðsíða 32
L 32 I MENWING FIMMTUDAGUR 23. FEBRÚAR 2006 blaöÍA Sígilt stórvirki Landfræðissaga íslands er vís- inda- og rannsóknasaga íslands frá örófi alda til loka 19. aldar auk þess að fjalla um ýmsa aðra þætti íslenskrar menningar- sögu. Þriðja bindi ritsins er nýlega komið út. í þessu merka menning- arsögulega riti dró Þorvaldur Thoroddsen í fyrsta sinn fram í dagsljósið heim- ildir sem voru áður lítt eða ekki kunnar og skapaði með því grundvall- arrit sem hiklaust má kalla sígilt stórvirki. í þessu bindi greinir frá seinni hluta 18. aldar fram ___ undir 1850. Þorvaldur fjallar fyrst um framfarahugmyndir Islendinga og almennt um stöðu vísindanna á Vesturlöndum í kjöl- far frönsku byltingarinnar. Síðan víkur sögunni að Eggerti Ólafssyni og Bjarna Pálssyni og sagt frá ævi þeirra og störfum. ítar- lega er sagt fráSveiniPáls- syni lækni og rannsóknum I hans, löngu l áður en frásagnir hans og hug- myndir birt- ust á prenti. Þ o r - v a 1 d u r rekur að- draganda og fram- k v æ m d s t r a n d - mælinga Dana á Islandi, bæði hinna fyrri og seinni. Þríhyrningamælingarnar mörk- uðu þáttaskil í könnun landsins og voru þrekvirki sem nútímamenn eiga erfitt með að ímynda sér. Hér hefur Þorvaldur reist mönnum eins og Lovenorn aðmíráli og mæl- ingamönnunum Ohlsen, Frisak og Scheel minnisvarða sem þeir eiga vissulega skilið. Rækilega er fjallað um Björn Gunnlaugsson, „spekinginn með barnshjartað“, sem mældi fyrstur manna allar byggðir landsins og hluta hálendisins svo að unnt var að gefa út „Uppdrátt Islands“ - fyrsta sæmilega kort af landinu öllu. Af þeim fjölda útlendinga, sem við sögu koma, má nefna Sir Joseph Banks, Sir John Stanley, Sir William Jackson Hooker, Ebenezer Hender- son og Paul Gaimard. Verkið kemur nú út í nýrri og mynd- skreyttri útgáfu, en upphaflega kom það út hjá Hinu íslenska bókmennta- félagi á árunum 1892-1904. Þorvaldur Thoroddsen. Landf ræðissaga hans hefur verið endurútgefin. Geröuberg á Safnanótt Fjölbreytt dagskrá verður í Gerðu- bergi á Safnanótt föstudaginn 24. febrúar 20:00 - 21:00 Páll á Húsafelli spilar á nýjustu uppfinningu sína, barrokk steinhörpu. Ásamt honum munu þeir Steindór Andersen og Hilmar Órn Hilmarsson flytja tónlistarat- riði til heiðurs Thor Vilhjálmssyni, rithöfundi. 20:00 og 21:00 les Thor Vilhjálms- son úr ritverkum sínum. I Gerðu- bergi stendur nú yfir yfirlitssýning á myndlistarverkum Thors. Gestum er boðið að skoða hana í nýju ljósi og finna flugfima fugla - vegleg bóka- verðlaun eru í boði fyrir fundvísa fuglaskoðendur frá Eddu útgáfu. 20:00 - 22:00 Tónlistarflutn- ingur nemenda úr Tónlistarskóla Reykjavíkur. Asta María Kjartansdóttir, Hildur Heimisdóttir og Karl Jóhann Bjarnason. 19:00 - 22:00 Opnun sýningar á handverksmunum Judithar Júlíus- dóttur í Félagsstarfi Gerðubergs. Sérviskusýning í Félagsstarfi Gerðubergs á alls kyns sérvisku- legum hlutum sem eldri borgarar Breiðsholts hafa safnað. Safnamarkaður Borgarbókasafns og Gerðubergs á bókum, bolum, geisladiskum, kortum og fleiru. Sýning Sigrúnar Björgvinsdóttur í Boganum á verkum úr þæfðri ull. Safnastrætó frá Þjóðminjasafni kl. Páll á Húsafelli að leika á steinhörpuna. 19:20 -19:40 - 20:00 - 20:20 - 20:40 109 SU DOKU talnaþrautir Lausn síðustu gátu Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum frá 1-9 lárétt og lóðrétt í reitina, þannig að hver tala komi ekki nema einu sinni fyrir í hverri linu, hvort sem er lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu má aukin heldur aöeins nota einu sinni innan hvers níu reita fylkis. Unnt er að leysa þrautina út frá þeim tölum, sem upp eru gefnar. Gáta dagsins 6 7 5 5 3 2 2 5 1 3 9 2 5 8 7 1 3 6 7 2 7 9 5 9 1 2 1 4 5 5 6 9 7 2 4 1 8 3 7 1 4 9 8 3 6 5 2 8 2 3 5 6 1 7 9 4 3 4 1 2 9 6 5 7 8 9 7 2 8 4 5 3 6 1 6 5 8 3 1 7 4 2 9 2 3 6 4 5 8 9 1 7 1 8 7 6 3 9 2 4 5 4 9 5 1 7 2 8 3 6 Ljósmyndanámskeið §| hotoshop námskeið ;fv1r byrjendur Námskeiöin eru fyrir þá sem eru aö stíga sín fyrstu skref i stafrænu liósmyndatækninni. Boðiö er upp á mismunandi löng námskeiö: 8 tíma, 12 tíma og 16 tíma. Fariö er ýtarlega í allar helstu stiilingar á stafrænu vélinni og útskýrð í máli og myndum ýmsar myndatökur og veitt ýmis góð ráö. Fariö er i tölvumálin og útskýrt hvernig best er aö setja myndir í tölvu, prenta þær út, senda þær í tölvupósti og koma skipulagi á myndasafnið. Nemendur fá að taka myndir í Ijósmyndastúdiói og setja auk þess upp lítið heimastúdio á staðnum. Sýnd er notkun á forritum, m.a. Movie Maker, Picasa og Photoshop. Nemendurfá afhent ýmis kennslugögn. Þeir sem skrá sig á 4ra daga námskeið gefa unnið sér inn gjafabréf á Photoshop námskeið. Dregið er ut 1 nafn á hverju námskeiði. Alllr nemendur fá afsláttarkort sem gildir í öllum helstu Ijósmyndavöruverslunuum á Höfuðborgarsvæðinu. K Helgarnámskeiö (8 tímar) kl. 13-17 kr. 10.900 1.-2 aprii (uppselt a námskeiöið 25.-26. feb.) ■ 3ja daga námskeið (12 tímar) kl. 18-22 kr. 14.900 (mánud. + miðvikud. +fimmtud.) 6.-9. mars 13. • 16. mars 27. -30. mars 4ra daga námskeiö (16 tímar) kl. 18-22 kr. 19.900 (mánud. + miövikud. +fimmtud.+þriðjud.) 20.-28. mars Skráðu þig núna og tryggðu þér sæti. Lestu umsagnir nemenda á vefsíðunni. PH0T0SH0P Námskeiðið er ætlað þeim sem vllja geta breytt sínum myndum á ýmsa vegu. Nemendur þurfa að koma meö fartölvu með uppsettu Photoshop forriti. Námskeið þetta er bæði verklegt og bóklegt og fá nemendur ýmis verkefni að glima við. Farið er i eftirfarandi atriöi: Að taka burt atriði úr myndum, skera af myndum, laga halla á myndum, gera myndir brúntóna, skipta um lit í hluta af myndum. Setja ramma utan um myndir og texta inn á þær. Breyta myndum með effectum, setja saman tvær eða fleiri myndir. Etnnig er sýnt hvernig hægt er að lagfæra skemmdar myndir. Auka og minnka kontrast i myndum. Setja saman nokkrar myndir og gera úr þelm panorama mynd. Velja réttar stærðir og upplausn fyrír mismunandi notkun og vista myndirtil notkunar siðar meir, vinna með layera (glærur) og margt fleira. ■ PHOTOSHOP námskeið 18. -19. mars kl. 13-17. kr.12.900 www.ljosmyndari.is ^ Völuteigur 8 Mosfelisbær S: 898 3911 f Leiðbeinandi er Pálmi Guðmundsson I

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.