blaðið - 23.02.2006, Blaðsíða 2

blaðið - 23.02.2006, Blaðsíða 2
2 I INNLENDAR FRÉTTIR FIMMTUDAGUR 23. FEBRÚAR 2006 bia6ÍA blaökkk; Bæjarlind 14-16,201 Kópavogur Sími; 510 3700 • www.vbl.is FRÉTTASÍMI: 51Q 3799 netfang: frettir@bladid.net AUGLÝSINGADEILD: 510 3744 netfang: auglysingar@bladid.net Misvísandi nióurstööur um afstöðu landsmanna til frekari stóriðju Tvær nýlegar kannanir Gallup, ann- arsvegar fyrir Samtök atvinnulífsins (SA) og hinsvegar fyrir viiistrihreyf- inguna Grænt framboð (VG) gefa nokkuð ólíka sýn á afstöðu almenn- ings til áframhaldandi uppbyggingar stóriðju hér á landi. Sem dæmi eru tæp 52% landsmanna „andvíg þvi að ráðist verði í nýjar virkjanafram- kvæmdir vegna álframleiðslu á næstu fimm árum“ samkvæmt könnun VG, sem kynnt var í vikunni. Könnun SA, sem gerð var í nóvember síðast- liðnum, bendir hinsvegar til þess að aðeins 37% landsmanna séu „andvíg frekari uppbyggingu áliðnaðar hér á landi“. Ennfremur sýnir könnun VG að tæplega 63% landsmanna séu „and- víg því að stjórnvöld beiti sér fyrir því að byggð verði ný álver á íslandi á næstu fimm árum“. - Notað til að styðja vissan málstað I könnununum tveimur er augljós- lega ekki verið að spyrja um nákvæm- lega sama hlutinn en þeir eru óneitan- lega mjög tengdir. Ennfremur hafa báðir aðilar notað niðurstöður til að styðja málstað sinn í hinu umdeilda stóriðjumáli. Þannig er því slegið upp í fyrirsögn fréttar á heimasíðu SA frá 27. janúar síðastliðnum að mikill meirihluti sé með frekari virkjunum hér á landi og í fréttinni segir ennfremur að meirihluti landsmanna sé jákvæður í garð áliðnaðar. Fyrirsögn fréttatil- kynningar VG frá því fyrr í vikunni var hinsvegar „afgerandi meirihluti þjóðarinnar andvígur stóriðjustefnu ríkisstjórnarinnar". Stjórna ekki hvernig niðurstöður eru kynntar En hvað er hið rétta? Vilja íslendingar fleiri álver og virkjanir eða er mikill meirihluti þeirra á móti þeim? Eða er hreinlega ekkert að marka niður- stöður skoðanakannana? „Þarna er verið að mæla svipaða hluti, en alls ekki þá sömu“, segir Þóra Ásgeirsdóttir hjá Gallup. „í ann- arri könnuninni er einungis spurt um næstu 5 ár en í hinni er spurt almennt. Fýrri könnunin er gerð í nóvember en seinni í febrúar og á þessum tíma hefur tengd umræða verið þónokkur. Þetta eru tvær sjálf- stæðar kannanir og á þeim er þó- nokkur áherslumunur", segir Þóra ennfremur. Einar Mar Þórðarson, verkefnis- stjóri hjá Félagsvísindastofnun Hl segir að ekkert sé að spurningum eða vinnubrögðum Gallup. „Það verður að hafa í huga að að- eins er verið að mæla afstöðu fólks til ákveðinna spurninga," segir Einar. Hann segir ennfremur að eftir að könnun hefur verið gerð geti rannsak- endur ekkert skipt sér af því hvernig sá sem hana kaupi kynni niðurstöð- urnar, eða hvaða hlutar hennar eru kynntir eða ekki. „Viðskiptavinir vilja draga upp sem fegursta mynd af sér. Það hefur komið fyrir að við höfum sopið hveljur þegar við sjáum hvernig lagt er út frá niðurstöðum kannana, og ég geri ráð fyrir að það sama hafi komið fyrir hjá Gallup", segir Einar. Ekki hægt að kaupa niðurstöður I könnun SA er heildar niðurstaðan sú að almenningur sé almennt frekar fylgjandi uppbyggingu virkjana og stóriðju hér á landi, meðan niður- staða könnunar VG virðist sýna þver öfuga niðurstöðu. En er hægt að kaupa niðurstöðu kannana? „Nei, það er ekki hægt,“ segir Þóra. „Fyrirtæki sem kaupa könnun ráða um hvað er spurt en við setjum að- ferðafræðilegu viðmiðin og tryggjum að spurningarnar séu aðferðafræði- lega réttar. Ég ítreka hinsvegar að ekki er verið að bera saman sömu hlutina og að ekki var spurt á sama tíma“, segir Þóra að lokum. Halldór hitti Blair í Down- ingsstræti 10 Það fór vel á með þeim Halldóri Ásgrímssyni, forsætisráðherra og starfsbróður hans, Tony Blair, í gær, en Halldór er staddur í opinberri heimsókn í Bretlandi. Þeir áttu fund í Downingsstræti 10 þar sem breski forsætisráðherrann býr og starfar. íslenskur forsætisráð- herra hefur ekki farið í opinbera heimsókn til Bretlands frá árinu 1976 þegar Geir Hallgrímsson heimsótti Harold WUson. Er kvíðinn að fara með þig? IZhena's Gypsy Tea gæti komio að gagni Rasberry Earl Grey Sölustaðir Bakarameistarinn, Bernhöfts-bakarí, Breiðholtsbakarí, Fjarðarkaup, Gjafir Jarðar, Hjá Jóa Fel, Kaffi Hljomalind, Kaffi Berg, LaVida, Maður Lifandi, Melabúðin, Ostabúðin, Yggdrasill, Kaffi Rós á Akureyri. Englatár - Listhúsinu - 551 8686 Allar Teknos vörur eru framleiddar skv. IS0 9001 gæðastaðli. "ÍSLANDS MÁLNING Sætúni 4/Sími 5171500 / Útimálning / Viðarvörn / Lakkmálning / Þakmálning / Gólfmálning / Gluggamálning / Innimálning Gljástig 3,7,20 / Verð frá kr. 298 pr.ltr. ^ Gæðamálningáfrábæruveröi BlaÖiÖ/Steinar Hugi Dansinn dunar Um þessar mundir standa yfir æfingar (slenska dansflokksins á stóra sviði Borgarleikhússins, en á föstudag verða frumsýnd þar tvö verk í samstarfi við evrópska danshöfunda, þau Didy Veldman og Rui Horta - en bæði hafa getið sér gott orð fyrir list sína. (3 Helðskfrt 0 Léttskýjað Skýjað Alskýjað ✓ ^ Rjgning,Ijtilsháttar / Rigning 9 9 Súld 'I' Snjókoma y-ý Slydda ijj Slydda Snjóél y~j Amsterdam 02 Barcelona 12 Berlín 01 Chicago -02 Frankfurt 02 Hamborg 01 Helsinki -07 Kaupmannahöfn 02 London 04 Madrid 05 Mallorka 13 Montreal -05 NewYork 04 Orlando 17 Osló 07 París 04 Stokkhólmur -01 Þórshöfn 07 Vin 01 Algarve 13 Dublin 05 Glasgow 05 Breytilegt 0*2C Breytilegt w3° Breytilegt // / /// /// Veðurhorfur í dag kl: 15.00 Veðursíminn Í02 0600 Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu fslands 6° Breytilegt V Á morgun

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.