blaðið - 23.02.2006, Blaðsíða 38

blaðið - 23.02.2006, Blaðsíða 38
38IFÓLK FIMMTUDAGUR 23. FEBRÚAR 2006 blaðiö PÍKUSÖGUR PINGKVENNA Smáborgarinn (kona) hefur áhuga á pólitík. Þess vegna koma þær stundir að Smáborgarinn hugsar með sjálfum sér að hann myndi sóma sér vel á þingi. En svo sér hann hvað þingmenn láta hafa sig í og þá hugsar hann með sér að hann sé langt yfir það hafinn að sitja á þingi. Þingmenn eru sífellt á þeytingi og virðast alls ekki una sér nógu vel í vinnunni þar sem þeir þurfa að hugsa og einbeita sér. Smáborgaranum finnst stundum eins og þingmenn uni sér aldr- ei betur en þegar þeir eru að stunda sprell úti í bæ fyrir framan sjónvarps- myndavélar. Smáborgarinn var í pólitískri vímu á dögunum og dálítið angurvær þeg- ar hann velti því fyrir sér hvort hann hefði ekki átt að finna sér pólitískan jarðveg í stað þess að verða aum blaðamannadrusla. Þá sá Smáborgar- inn frétt þess efnis að þingkonur ætl- uðu sér að leika í Píkusögum. Segja þingmenn aldrei nei? hugs- aði Smáborgarinn með sér. Hann átt- aði sig svo á því að það er erfitt fyrir sæmilega þekkt fólk að segja nei þeg- ar því er veifað framan í það að það sé að sinna góðgerðarmálum, eins og mun vera í þessu tilviki. Þá segir þing- maður ekki: „Nei, takk. Ég hef ekki áhuga á að stfga á svið. Ég er önnum kafinn við að sinna vinnu minni og hún byggist ekki á því að vera á leiit- sviði." Hann hugsar: „Já, ég er sannar- lega til. Ég fæ mynd í blöðunum og at- hygli og það verður klappað heilmikið fyrir mér." Það nægir þingmanninum alveg. Svo er Ifka gott að það berist út til fjöldans að hann hafi gefi vinnu sína frítt í þágu góðgerðarmála. Smáborgarinn las Píkusögur á sínum tíma í handriti. Það var satt best að segja ekki eftirminnileg lesn- ing. Smáborgarinn hefur nefnilega ekkert voðalega mikinn áhuga á pík- um. Hann er meira gefinn fyrir það listræna og slíkt var sannarlega ekki að finna í þessu heldur auma leikriti sem hefur öðlast óverðskuldaðar vin- sældir. Smáborgarinn á hins vegasr vin (karlmann) sem las Píkusögur sér til ómældrar ánægju. Hann er mikill kvennamaður og píkur eru því sérstakt áhugamál hans. Svona er nú áhugamálum manna misskipt í þess- um heimi. HVAÐ FINNST ÞÉR? Björgvin G. Sigurðsson, alþingismaður Er ekkert erfitt fyrir þig að vera mögulega á sömu skoðun og dómsmálaráðherra? „Það er alltaf gott þegar menn ná saman um mikilvæg mál þvert á flokkslín- ur. Björn getur verið erfiður við að eiga þó átti ég ekki von á öðru en því að hann tæki þessari málaleitan vel. Ég er því glaður yfir óvæntu, hugsanlegu bandalagi við Björn.“ Björgvin G. Sigurðsson hefur óskað eftir umræðu á þingi um heimildir lögreglu til þess að leita uppi barnaníðinga. Hann hefur varpað þeirri spurningu fram hvort til greina komi að nota tálbeitur f þeirri vinnu en þeir dómsmálaráðherra hafa að undan- förnu deilt um réttmæti þess að koma upp sérstakri greiningardeild við embætti Ríkislögreglustjóra. Brosnan sýnir Bond samúð Pierce Brosnan hefur mikla samúð með hinum nýja James Bond, Daniel Craig, eftir að hann slasaðist við tökur á nýju myndinni um njósnara hennar hátignar. Nokkrar tennur voru kýldar úr Craig í bardagaatriði en Brosn- an sagði í vikunni að hann vissi hversu hættulegt það gæti verið að leika sjálfan 007. „Ég var saumaður saman marg oft, það komst bara ekki í blöðin,“ sagði Brosnan. „Áhættuleikari skar mig í andlitið, ég rústaði á mér hnénu, maður lendir í svona löguðu í þessum myndum.“ Valið á Craig sem hinum næsta Bond hefur mikið verið gagnrýnt en Brosnan er ánægður með það „Mér finnst Daniel Craig vera góður leikari, hann er mjög umdeildur en ég held að hann muni sýna öllum hvað í honum býr.“ Kylie ekki að gifta sig Poppdrottningin Kylie Minogue neitar að hún og elskhugi sinn, Olivier Martinez séu að fara að giftast, en það var sjálf móðir hans sem lét hafa eftir sér að parið sé að fara að gifta sig seinna á árinu. Minogue harðneitar þessu þrátt fyrir fullyrðingar tengdó og talsmaður hennar sagði í tilkynningu að þetta væri einfaldlega ekki rétt. „Sonur minn lofaði að senda eftir mér flugvél þegar stóri dagurinn rynni upp,“ sagði mamma Martinez, hress og kát. „Kylie gengur svo vel í baráttunni við krabbameinið, við fögnum því vegna þess að þá geta hún og sonur minn gift sig.“ Colin kœrir kjarnakonu Sjarmatröllið Colin Farrell hefur farið hamförum við að reyna að stoppa dreifingu á myndbandi sem sýnir hann í ástarleikjum með Playboykanínunni Nicole Narain. Nú hefur hann kært vinkonu Narain, fyrirsætuna Candace Smith, fyrir að reyna að koma myndbandinu í dreifingu. Farrell sakar Smith, sem er fyrrverandi ungfrú Ohio, að hafa reynt að koma mynd- bandinu í almenna dreifingu og á Internetið. Hún kemur til með að verja sig sjálf í mál- inu þar sem hún er ekki aðeins fyrirsæta og fegurðardís, heldur einnig lögfræðingur og reyndar sálfræðingur. Réttarhöldin hefjast á næstu vikum. Ef það myndi henta herranum, mun ég vera í verkfalii til stuðnings kaupkröfum mínum frá kl. tvö til fjögur eftir hádegi. HEYRST HEFUR... In Björn Ingi Hrafnsson, aðstoðarmaður HalldórsÁsgríms- sonarforsætisráð- herra og helsta vonarstjarna Framsóknarflokksins, veikt- ist nýverið svo hastarlega af lungnabólgu að hann þurfti að leggjast inn á spítala og eru honum sendar góðar batakveðj- ur með þessum línum. Hins vegar rifjast það upp þegar leið að lokum valdaferils Davíðs Oddssonar, veiktist aðstoðar- maður hans, lllugi Gunnarsson, einnig af lungnabólgu og það mjög heiftarlega. Vakna spurn- ingar um hvort starfið er svona slítandi eða hvort Múrinn er einfaldlega haldinn húsaveiki afverstu sort... Herstöðva- andstæð- ingurinn og wesserbisserinn Stefán Pálsson heldur úti fjör- legum bloggi (www.kaninka.net/stefan) auk þess sem hann skrifar reglu- lega á Múrinn (www.murinn. is). í blogginum ræðir hann m.a. um skopmyndamálið og segir hvimleiðast við það hve margir reyni að slá sig til ridd- ara í baráttunni fyrir tjáning- arfrelsinu. Bendir hann svo á að enginn þeirra riddara hafi tekið upp hanskann fyrir sagn- fræðinginn David Irving, sem dæmdur var í þriggja ára fang- elsi í Austurríki á þriðjudag fyrir að afneita helför Gyðinga í seinni heimsstyrjöld... Prátt fyr- ir að 1 íslenskt efna- hagslíf nötri eilítið þessa dagana er engan bilbug að finna á Val- gerði Sverrisdóttur viðskipta- ráðherra, sem setur íslenskt fjárfestingarþing í New York- borg í dag. Athafnaskáldið Ólafur Jóhann Ólafsson, sem jafnframt er einn af eigendum þessa blaðs, verður aðalnúm- erið ásamt ýmsum fjármála- spekúlöntum öðrum og verð- ur áhersla lögð á að Island sé kjörlendi fyrir erlenda fjárfesta. Meðal fyrirtækja, sem munu kynna sig á Manhattan í dag eru Actavis, ALCOA, Century Aluminum, FL Group, Lands- bankinn, Norræni fjárfestinga- bankinn. Sjóvá, Straumur-Burð- arás og Össur... ri Edw- ba I d hinn nýi forstjóri 365, þótti ekki ríða ýkja feitum hesti frá viðureign sinni við Magnús Ragnarsson, sjónvarpsstjóra Skjás 1, í Kast- ljósi á þriðjudagskvöld. Þótti mörgum sérkennilegt að sjá Golfat í bullandi vörn gagn- vart Davíð, en ekki síður kom á óvart að mörg grundvallar- atriði samkeppninnar milli stöðvanna virtust koma hon- um í opna skjöldu. Málsvarar Ara segja hann einfaldlega ekki orðinn nægilega kunnug- an sínum nýju vígstöðvum og benda til dæmis á að hann hafi ávallt nefnt fyrirtækið þrjá, sex, fimm, en fram til þessa hefur það ævinlega verið nefnt þrjú- hundruðsextíuogfimm... œmM

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.